Skessuhorn - 02.03.2016, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2016 27
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang-
ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu-
dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að
tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akra-
nesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi
á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum
lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessu-
horni.
74 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnin var: „Táknmynd.“ Vinningshafi er:
Þóra S Einarsdóttir, Hamravík 6, 310 Borgarnesi.
mm
Máls-
háttur
Kvörn
Slórar
Tengi
Blaut
Hakan
Munda
Sjá
eftir
Hvíldir
Um
Valt
Stólpi
Mynd
Ögn
Mótar
Ekra
Væl
Lærðu
Læti
Ólíkir
Spil
Ái
Próf
Riðar
Tvíhlj.
Hviða
Meiður
Verk-
færi
Baldin
6
Móðg-
aðist
Fæða
4 Goð
Afar
Fróð
100
Kvakar
Bein
Kækur
Rót
Reimin
Þreyta
Kústur
Báran
Litað
Menn
Óvættur
1
Hlýja
Risa
Drasl
10 Álit
Þrot
8
Bætt
Gjöf
Hetjur
Feikn
Koss
Heill
2 Tala
Stærsti
Vont
Samhlj.
Blóm
Óleyfi
Farvi
Senn
Skipar
Glöð
Lét
fara
Hroka-
full
Stærð
Flínk
Snúið
reipi
Trjóna
Rugl
Ösla
Alltaf
Núna
Púkar
Listi
Tvíhlj.
Hestur
Tvíhlj.
Sam-
tenging
Til
Barði
Sérhlj.
Féll Virði Reykir
7 Bara
Spurn
5
Togaði
Kopar
Þekkt
Sjór
Kunni
Flan
Fikta
Gort
9 Tvíhlj.
Vild
Óð
Mynni Mun Á fæti
3
Hlífa
Fé
Röð
Samið
Sá
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Í tilefni alþjóða dags kvenna 8.
mars nk. mun Ugla Zontaklúbbur
Borgarfjarðar kynna starf sitt þann
dag á torginu Smiðjuvöllum 32 á
Akranesi og á Hyrnutorgi í Borg-
arnesi. „Víða um heim er haldið
upp á alþjóða dag kvenna þennan
dag. Sameinuðu þjóðirnar héldu
í fyrsta skipti upp á daginn 1975,
en það ár var alþjóðlegt ár kvenna.
Undanfarin 40 ár hefur margt
breyst varðandi stöðu kvenna og
dagurinn hefur öðlast nýjar vídd-
ir fyrir konur í heiminum. Fjórar
alþjóðlegar ráðstefnur um málefni
kvenna hafa verið haldnar af Sam-
einuðu þjóðunum og kvennahreyf-
ingin hefur eflst samhliða. Á al-
þjóða degi kvenna er mikilvægt að
minnast þeirra alþýðu kvenna sem
höfðu kjark og sannfæringu til að
leika lykilhlutverk í þróun þeirra
samfélaga. Baráttunni fyrir bættri
stöðu kvenna í heiminum þarf að
halda áfram,“ segir í tilkynningu
frá Uglu Zontaklúbbi Borgarfjarð-
ar.
Ugluklúbburinn sem var stofn-
aður í árslok 2011 hefur hingað til
styrkt innlend verkefni, en á hverju
ári gefur klúbburinn hvatningar-
verðlaun til stúlkna eða kvenna
sem hafa sýnt miklar persónuleg-
ar framfarir í námi, góða ástundun
og útskrifast úr framhaldsskólum á
Vesturlandi. Eins hafa Uglur styrkt
Stígamót með fjárframlagi og gefið
saumavél til BISER sem eru sam-
tök í Bosníu sem styðja flóttakonur
og börn þeirra til betra lífs.
Ugluklúbburinn styrkti í ár í
fyrsta sinn alþjóðasamstarf Zonta
International með 2.500 dollarum
eða um 330.000 króna styrk. Styrk-
urinn skiptist milli þriggja verk-
efna, Fistula verkefnið í Líberíu en
það verkefni snýst um læknisað-
stoð til kvenna í kjölfar barnsburð-
ar, HIV verkefnið í Rúanda sem
stuðlar að því að hindra alnæmis-
smit milli móður og barns og hef-
ur gengið svo vel að vonir standa til
um HIV lausan árgang barna í Rú-
anda. Og loks nýtt verkefni Zonta
International og sem snýr að bætt-
um samskiptum kynjanna í skólum
í Víetnam til að vinna gegn ofbeldi
stúlkna og kvenna en heimilisof-
beldi er viðurkennt vandamál í Ví-
etnam þar sem 58% giftra kvenna
hafa liðið fyrir það svo vitað sé.
„Margt smátt gerir eitt stórt segir
máltækið og Uglukonur eru stolt-
ar af því að hafa getað lagt eitthvað
af mörkum til þessara stóru verk-
efna sem öll stuðla að bættum hag
kvenna. Ugluklúbburinn er opinn
fyrir nýjum félagum. Áhugasam-
ir hafi samband við Ullu R. Peder-
sen, formanni klúbbsins. Lesa má
um Zonta á Íslandi á www.zonta.
is“ mm
Zontaklúbbur kynnir starf
sitt á alþjóða degi kvenna
Þriðju Menntabúðir Vesturlands
voru haldnar í Grunnskóla Stykk-
ishólms í gær. Eins og Skessuhorn
hefur áður greint frá er Mennta-
búðum ætlað að vera umræðuvett-
vangur grunnskólakennara, þar
sem þeir geta komið saman deilt
hugmyndum sínum og sagt frá
reynslu sinni. Kennarar af Snæ-
fellsnesi voru áberandi í kynning-
um að þessu sinni, enda þar unnið
að mörgum spennandi skólaþró-
unarverkefnum. Í kynningu á
Menntabúðum í gær var fjallað um
innleiðingu Office 365 í Heiðar-
skóla og hvernig nemendur á mið-
stigi nýta sér skýjalausnir Micro-
soft hugbúnaðarins. Einnig var til
umfjöllunar Osmo, sem er marg-
verðlaunað leikja- og kennslutæki
fyrir iPad og Mystery Skype, þar
sem grunnskólabörn eiga sam-
tal við önnur börn um allan heim.
Er það leikur sem nýtist vel í sam-
félagsfræðikennslu.
Fjallað var um byrjendalæsi
og áhugasviðsverkefni 9. bekkjar
nemenda í Stykkishólmi í ensku.
Þá fjallaði Gunnlaugur Smára-
son um tölvuleikinn Minecraft og
hvernig hann nýtist til kennslu, en
hann vinnur þessa að verkefna-
bók upp úr leiknum og mun kynna
hana á Menntabúðum. kgk
Menntabúðir Vesturlands voru
nú haldnar í Stykkishólmi
Tæplega 60 kennarar komu saman og deildu með sér hugmyndum á Mennta-
búðum Vesturlands sem haldnar voru í Heiðarskóla í haust.
Fjölbrautaskóli Vesturlands stóð fyr-
ir stærðfræðikeppni fyrir efstu bekki
grunnskóla á Vesturlandi í átjánda
sinn síðastliðinn föstudag. Fyrsta
keppnin af þessu tagi var haldin í
FVA 1998 og hefur hún verið hald-
in árlega síðan. Að þessu sinni voru
keppnisgögn búin til af Garðari
Norðdahl stærðfræðikennara í FVA
og var keppnin með nokkuð öðru
sniðið en vanalega. Hefðbundin
verkefni voru úr kennslubókum og
sum dæmin ansi þung. Keppendur
máttu hvorki notast við vasareikni
eða síma í keppninni. Allir keppend-
ur þurftu að glíma við dæmin í að
minnsta kosti hálftíma en keppnin í
heild tók eina og hálfa klukkustund.
Alls skráðu rúmlega 150 nemendur
sig til leiks og koma þeir frá grunn-
skólum á Akranesi í suðri allt norður
til Hólmavíkur í norðri. Nemendur
úr FVA sátu yfir í keppninni og voru
keppendum innan handar þegar
þurfti. Þegar úrslit liggja fyrir verð-
ur tíu hæstu nemendum úr hverj-
um árgangi boðið að koma aftur og
munu þá fá viðurkenningarskjöl fyr-
ir góðan árangur. Að auki verða veitt
verðlaun fyrir þrjár bestu lausnirnar
úr hverjum árgangi fyrir sig.
grþ
Grunnskólanemar af Vesturlandi kepptu í stærðfræði
Laugardaginn 5. mars næstkomandi
klukkan 13.00 verður opnuð sýningin
„Ástkæra Borgarnes – Beloved Borg-
arnes“ í Safnahúsinu í Borgarnesi. Það
er sýning á verkum Michelle Bird og
verður í Hallsteinssal. Þetta er önnur
sýning Michelle í Safnahúsi, en hún
flutti fyrir nokkru til Íslands og býr
í Borgarnesi. Sýningin verður opin
til 8. apríl. Í tilkynningu frá Safna-
húsi segir: „Í verkum Michelle má sjá
hvernig hún sem listamaður upplifir
og túlkar mannlíf og umhverfi Borg-
arness. Viðfangsefnið er náttúrufeg-
urð staðarins og sterk tengsl íbúa við
umhverfi sitt. Innsetning er í and-
dyri rýmisins. Þess má geta að Mic-
helle verður með teiknismiðju fyrir
alla aldurshópa tvisvar í viku á með-
an á sýningunni stendur, þriðjudaga
og fimmtudaga. Vonast er til að skól-
ar geti nýtt sér þetta til fræðslu fyrir
nemendur um myndlist og vinnuað-
ferðir við hana.“
Michelle Bird er fædd í San Franc-
isco árið 1965. Hún er ættuð frá
Bandaríkjunum og Kína en ólst upp í
San Francisco, Hawai og víðar í Kali-
forníu. Hingað kom hún frá Sviss
þar sem hún hafði vinnustofu síðustu
árin. Hún lærði myndlist í Banda-
ríkjunum og í Hollandi þar sem hún
var búsett um tíma. Þar lærði hún
við Rietveld listaháskólann. Michelle
Bird hefur sýnt víða um Evrópu og
í Bandaríkjunum. Hún hefur hald-
ið fyrirlestra um myndlist og haldið
vinnustofur og auk málaralistarinnar
hefur hún lagt stund á listrænt hand-
verk.
Sýningin verður opin til kl. 16.00
á opnunardaginn og listakonan verð-
ur á staðnum. Eftir það verður opið
virka dag kl. 13.00 – 18.00 eða eftir
samkomulagi. Aðgangur er ókeypis.
mm/gj
Michell Bird við verk eftir hana.
Michelle Bird opnar sýninguna Ástkæra Borgarnes