Skessuhorn - 02.03.2016, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 201630
Hver er uppáhalds
kvikmyndin þín?
Spurning
vikunnar
(spurt á Akranesi)
Gísli Gunnarsson:
„Spectre, nýjasta Bond-mynd-
in.“
Sindri Víðir Einarsson:
„Fast and the Furious.“
Þorbjörg Gunnlaugsdóttir:
„Mamma Mia.“
Alma Garðarsdóttir:
„The Sound of Music.“
Aya Sameer:
„The Revenant.“
Víkingur Ólafsvík stóð fyrir firma-
keppni í innanhúss fótbolta á dögun-
um. Hefur félagið staðið fyrir firma-
keppni undanfarin ár, en hún féll þó
niður í fyrra vegna ónógrar þátt-
töku. Sex lið voru skráð til keppni,
en það voru: Guðmundur SH-717,
VK-lagnir, Ragnar og Ásgeir, Fisk-
markaður Íslands, Breiðavík ehf. og
Deloitte. Var spilað í tveimur riðl-
um og svo krossað. Endað var svo
á úrslitakeppni. Verðlaun voru veitt
fyrir fyrsta og annað sæti. Í fyrsta
sæti varð lið Ragnars og Ásgeirs og í
öðru sæti Deloitte. Var keppni hörð
og gáfu leikmenn ekkert eftir. Góð
mæting var á áhorfendapöllum og
gerði það keppnina enn skemmti-
legri. þa
Ragnar og Ásgeir
sigraði firmakeppni
Um liðna helgi var Bikarmót ung-
linga í hópfimleikum haldið í Ver-
sölum, húsnæði íþróttafélagsins
Gerplu í Kópavogi. Var það stærsta
fimleikamót unglinga sem hald-
ið hefur verið til þessa, en rúm-
lega þúsund keppendur tóku þátt í
mótinu.
Fimleikafélag Akraness sendi sex
lið á Bikarmótið; þrjú í 4. flokki,
tvö í 3. flokki og eitt í 2. flokki.
Unnu fimleikagarpar af Skagan-
um til verðlauna því stúlkurnar í 3.
flokki höfnuðu í þriðja sæti A riðils
á mótinu og hrepptu því bronsið.
kgk
Fimleikastúlkur úr FIMA í
þriðja sæti á Bikarmótinu
Stúlkurnar í 3. flokki unnu til bronsverðlauna í A riðli á Bikarmóti unglinga í
hópfimleikum. Ljósm. FIMA.
Snæfell tók á móti liði FSu í Dom-
ino‘s deild karla í körfuknattleik
síðastliðinn fimmtudag. Fyrirfram
mátti búast við hörkuleik því sigur
myndi tryggja Snæfelli sæti í efstu
deild að ári en FSu mikilvæg stig í
botnbaráttunni. Gestirnir hugðust
koma heimamönnum í opna skjöldu
með örum breytingum á varnarleik
sínum. Snæfellingar eru hins vegar
eldri en tvævetur í körfunni og létu
tilraunir gestanna ekki slá sig út af
laginu. Þeir léku vel og létu boltann
ganga. Leystu hverja þraut sem gest-
irnir lögðu fyrir þá og leiddu með 19
stigum í hálfleik, 54-35.
FSu spyrnti aðeins við fótum í
upphafi síðari hálfleiks og reyndi að
klóra í bakkann. Þær tilraunir báru
hins vegar lítinn árangur því Snæ-
fellingar bættu í og höfðu 30 stiga
forskot fyrir lokafjórðunginn og að-
eins formsatriði að ljúka leiknum.
Enn juku þeir forskotið það sem eft-
ir lifði leiks og unnu að lokum stór-
sigur, 113-74 og áframhaldandi vera
í efstu deild tryggð.
Stefán Karel Torfason átti stórleik
fyrir Snæfell þar sem hann daðraði
við þrennuna. Stefán skoraði 27 stig,
tók 15 fráköst og gaf sjö stoðsend-
ingar. Næstur honum kom Sherrod
Wright með 25 stig og fimm fráköst
og þá Sigurður Þorvaldsson með 18
stig, átta fráköst og fimm stoðsend-
ingar.
Eins og áður sagði tryggði sigur-
inn Snæfelli áframhaldandi þátttöku-
rétt í úrvalsdeild. Liðið er í áttunda
sæti með 16 stig eftir 19 leiki. Næst
mætir liðið ÍR á útivelli fimmtudag-
inn 3. mars. kgk
Snæfellingar öruggir með
úrvalsdeildarsætið
Sherrod Wright í þann mund að skora
tvö af sínum 25 stigum í leiknum.
Ljósm. sá.
Félagarnir Þórhallur Teitsson frá
FAB og Jens Meinhard Berg úr
FEBBN gerður sér lítið fyrir og sigr-
uðu á tvímenningsmóti í boccia sem
UMSK stóð fyrir að Varmá í Mos-
fellsbæ síðastliðinn laugardag. Í öðru
sæti urðu Jón Sverrir Dagbjartsson
og Gunnlaugur Skaftason úr Garða-
bæ en þriðja sætið féll í skaut þeirra
Páls Þorsteinssonar og Svönu Svan-
þórsdóttur frá Gjábakka í Kópavogi.
Þótt aldur sé afstæður í góðum fé-
lagsskap eldri borgara vekur engu að
síður athygli að Meinhard Berg er
nú kominn á tíunda árhundraðið en
slær engu að síður við sér yngra fólki
þegar boccia er annars vegar.
mm/ Ljósm. Stefán Stefánsson.
Borgfirðingar sigruðu á
tvímenningsmóti í boccia
Yngri iðkendur Sundfélags Akraness
hafa verið duglegir að sækja ýmis
mót frá áramótum. Árangurinn hef-
ur ekki látið á sér standa, nánast allir
hafa bætt sig persónulega og sund-
mennirnir hafa sópað að sér verð-
launum. Um síðustu helgi gekk vel
hjá ungu sundfólki frá Akranesi þeg-
ar Vormót Fjölnis var haldið. Þar
fékk Ragnheiður Karen Ólafsdóttir
brons fyrir 200 m skriðsund og 50 m
flugsund meyja. Aníta Sól Gunnars-
dóttir náði silfri fyrir 50 m flugsund
og 100 m baksund meyja. Þá hlaut
Ásgerður Jing Laufeyjardóttir brons
fyrir 50 m bringusund og 100 m
baksund telpna. Ásgerður fékk jafn-
framt gull í 50m baksundi og brons í
100 m skriðsundi telpna. Ngozi Jó-
hanna Eze vann silfur í 200 m flug-
sundi vann silfur í 200 m flugsundi
telpna og Hekla María Arnardóttir
vann brons í 200 m flugsundi telpna.
Þá vann Laufey María Vilhelmsdótt-
ir brons í 100 m skriðsundi kvenna. Í
fyrsta hluta vormótsins vann Ragn-
heiður Karen Ólafsdóttir gull í 100
m bringusundi og brons í 50 m
skriðsundi meyja, Guðbjörg Bjartey
Guðmundsdóttir fékk brons í 100
m bringusundi meyja, Alex Benja-
mín Bjarnason brons í 50 m skrið-
sundi sveina og Ásgerður Jing Lauf-
eyjardóttir brons í 50 m skriðsundi
og 100 m bringusundi telpna.
grþ
Góður árangur hjá yngri kynslóðinni í Sundfélagi Akraness
Ragnheiður Karen Ólafsdóttir, Aníta
Sól Gunnarsdóttir og Ásgerður Jing
Laufeyjardóttir stóðu sig vel á Vormóti
Fjölnis.
Duglegir tíu ára sundmenn á Vormóti
Fjölnis með þátttökuverðlaun. Frá
vinstri: Freyja Hrönn Jónsdóttir,
Sóley Saranya Helgadóttir, Tómas Týr
Tómasson og Bjarni Snær Skarphéð-
insson.
Sóldís Ninja Helgadóttir með
vinkonum sínum Ásgerði Jing Lauf-
eyjardóttur, Ngozi Jóhönnu Eze og
Heklu Maríu Arnardóttur.
Laufey María Vilhelmsdóttir hlaut
brons í 100 m skriðsundi kvenna.
Ragnheiður Karen Ólafsdóttir, Guð-
björg Bjartey Guðmundsdóttir, Alex
Benjamín Bjarnason og Ásgerður Jing
Laufeyjardóttir.
Um miðjan febrúar var haldið
Gullmóts KR. Þar unnu sundmenn
frá Sundfélagi Akranes til margra
verðlauna en myndin sínir hluta sund-
krakkanna sem þar kepptu.
Tuttugu krakkar kepptu á Speedo móti i
Keflavik í byrjun febrúar. Þessir duglegu
krakkar mættu á mótið og stóðu sig
mjög vel. Sundfélagið er afar stolt af
þessum flottu sundgörpum sem eru
framtíð félagsins.