Skessuhorn - 02.03.2016, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2016 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skallagrímsmenn lögðu land undir
fót síðasta föstudag og mættu KFÍ
vestur á Ísafirði í 1. deild karla í
körfuknattleik. Jafnt var á með lið-
um á upphafsmínútum leiksins en
með góðum kafla undir lok fyrsta
leikhluta náðu gestirnir undirtök-
unum. Þeir bættu lítillega við for-
skot sitt en Ísfirðingar hleyptu
þeim aldrei langt frá sér. Í hálfleik
leiddu Borgnesingar með tíu stig-
um, 36-46.
Bæði lið mættu ákveðin til síð-
ari hálfleiks og munurinn hélst að
kalla óbreyttur þar til seint í þriðja
leikhluta. Þá náðu Skallagríms-
menn góðum spretti og 18 stiga
forustu. Ísfirðingar gerðu heiðar-
lega tilraun til að vinna upp for-
skot Skallagríms í lokafjórðungn-
um en höfðu ekki erindi sem erf-
iði. Þeir komust aldrei nær en sem
nam sjö stigum áður en leikmenn
Skallagríms bættu við á nýjan leik
og höfðu að lokum 13 stig sigur,
88-101.
J.R. Cadot átti stórleik fyr-
ir Skallagrím þar sem hann daðr-
aði við þrennuna. Hann skoraði
31 stig, tók tólf fráköst og gaf átta
stoðsendingar. Sigtryggur Arn-
ar Björnsson kom honum næstur
með 24 stig, reynsluboltinn Haf-
þór Ingi Gunnarsson skoraði 14
og Davíð Ásgeirsson tólf.
Skallagrímur situr í þriðja sæti
deildarinnar með 22 stig eft-
ir 15 leiki. Næst leikur liðið gegn
Breiðabliki föstudaginn 4. mars í
Borgarnesi.
kgk
Skallagrímur vann
góðan útisigur á KFÍ
J.R. Cadot daðraði við þrennuna þegar
Skallagrímur lagði KFÍ á föstudag.
Ljósm. Skallagrímur.
Snæfell heimsótti Hamar í Domino‘s
deild kvenna í körfuknattleik á sunnu-
dagskvöldið. Leikurinn fór fremur
hægt af stað. Leikmönnum beggja
liða gekk illa að hitta úr skotum sín-
um í upphafsfjórðungnum en Snæfell
hafði þó heldur yfirhöndina. Hamar
minnkaði muninn í eitt stig snemma í
öðrum leikhluta áður en Snæfell náði
góðum spretti og níu stiga forskoti í
hálfleik, 21-30.
Í síðari hálfleik sýndu Snæfellskon-
ur mátt sinn og megin og réðu lög-
um og lofum á vellinum. Þær juku
forystuna jafnt og þétt eftir leikhléið
en lögðu svo drög að stórsigri með
góðum kafla undir lok þriðja leik-
hluta. Heimaliðinu gekk illa að skora
og mátti sín lítils gegn góðum sókn-
arleik Íslandsmeistaranna. Munurinn
var orðinn 24 stig og átti aðeins eft-
ir að aukast lítillega það sem eftir lifði
leiks. Lokatölur í Hveragerði urðu
39-69 , Snæfelli í vil.
Berglind Gunnarsdóttir var at-
kvæðamest Snæfellskvenna með 22
stig og tíu fráköst. Næst henni kom
Haiden Palmer með 14 stig, tólf frá-
köst og sjö stoðsendingar.
Snæfell trónir á toppi deildarinnar
með 34 stig eftir 19 leiki. Næsti leik-
ur liðsins fer fram í kvöld, miðviku-
dag, þegar liðið tekur á móti Stjörn-
unni. kgk
Snæfell vann stórsigur á Hamri
Fyrirliðinn Berglind Gunnarsdóttir dró
vagninn þegar Snæfell skellti Hamri
með 30 stiga mun. Ljósm. úr safni.
Íslenska kvennalandsliðið vann
glæsilegan sigur á ósigruðu toppliði
Ungverja í Laugardalshöllinni síð-
astliðið miðvikudagskvöld, þegar
liðin mættust í fjórðu umferð und-
ankeppni Evrópukeppninnar. Ís-
lensku stelpurnar byrjuðu leikinn
frábærlega, stóðust öll áhlaup gest-
anna og unnu að lokum sannfær-
andi tíu stiga sigur, 87-77.
Meðfylgjandi mynd tók Þor-
steinn Eyþórsson að leik lokn-
um. Á henni eru Snæfellingarn-
ir Gunnar Svanlaugsson, formað-
ur körfuknattleiksdeildar Snæfells,
ásamt Gunnhildi Gunnarsdóttur,
Bryndísi Guðmundsdóttur, Hrefnu
Dögg Gunnarsdóttur, Haiden Pal-
mer leikmanni Snæfells og Berg-
lindi Gunnarsdóttur. Gunnhildur,
Hrefna og Berglind eru allar dætur
Gunnars. Því má við þetta bæta að
auk þeirra Bryndísar, Gunnhildar
og Berglindar spilaði Borgnesing-
urinn Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
einnig með landsliðinu og átti sinn
þátt í þessum frábæra sigri Íslend-
inga.
mm
Snæfellingar á landsleik
ÍA tók á móti Fjölni í 1. deild karla í
körfuknattleik síðastliðinn fimmtu-
dag. Fyrir leikinn voru Skaga-
menn á mikilli siglingu í deildinni
og höfðu unnið fimm leiki í röð.
Mikið jafnræði ríkti með liðunum
í fyrsta fjórðungi. Þau fylgdust að
í stigaskori og útlit fyrir jafnan og
spennandi leik. En það varð örlít-
il töf á því. Skagamenn áttu erfitt
uppdráttar í öðrum leikhluta. Skot-
in féllu ekki og á tímabili hefðu þeir
ekki geta keypt sér körfu ef slíkt
hefði staðið til boða. Þeir luku þó
fyrri hálfleik með flautukörfu Sean
Tate frá miðju. Kannski uppsöfnuð
heppni og forskot Fjölnis minnkaði
í sjö stig, 32-39.
Leikmenn ÍA byrjuðu síðari hálf-
leikinn af krafti, söxuðu jafnt og
þétt á forskot Fjölnis og náðu for-
ystunni undir lok þriðja leikhluta.
Virtist það gefa Skagamönnum
aukinn vind í seglin því þeir gengu
á lagið og náðu tíu stiga forskoti.
Fjölnismenn voru hins vegar ekki
af baki dottnir og tryggðu áhorf-
endum spennandi lokamínútur.
Þeir náðu að minnka muninn í tvö
stig þegar mínúta lifði leiks. Voru
Skagamenn þá sendir ítrekað á
vítalínuna en skyttur þeirra stóðust
álagið og fóru með fimm stiga sig-
ur af hólmi, 85-80. Var þetta sjötti
sigur ÍA í röð og liðið á mikilli sigl-
ingu í baráttunni um sæti í úrslita-
keppninni í vor.
Sean Tate átti stórleik, skoraði
33 stig og gaf sex stoðsendingar.
Næstur honum kom Áskell Jónsson
með 16 stig og fimm stoðsendingar.
Fannar Freyr Helgason var með 15
stig, ellefu fráköst og sex stoðsend-
ingar og þá skoraði Jón Orri Krist-
jánsson tíu stig og tók tíu fráköst.
ÍA situr í fjórða sæti deildarinn-
ar með 20 stig eftir 15 leiki, tveim-
ur stigum á undan Val í sætinu fyr-
ir neðan. Þau lið mætast einmitt
næsta föstudag í Valshöllinni.
kgk/ Ljósm. jho.
Sex sigurleikir í röð hjá Skagamönnum
Fannar Freyr Helgason lék vel þegar ÍA lagði Fjölni í gær. Var það sjötti sigurleikur
liðsins í röð. Ljósm. jho.
Myndin þessi heitir Sex í röð hjá ÍA. F.v. Áskell Jónsson, Ómar Örn Helgason, Birkir
Guðjónsson, Sean Tate, Steinar Aronsson og Erlendur Ottesen.
Síðastliðinn laugardag tók Skalla-
grímur á móti Breiðabliki í 1. deild
kvenna í körfuknattleik. Skalla-
grímskonur höfðu yfirhöndina í
upphafi leiks en Blikar voru þó
aldrei langt undan. Borgnesing-
ar fóru þó að síga fram úr undir
lok fyrsta leikhluta og jók forskot
sitt jafnt og þétt þar til flautað var
til hálfleiks. Þá munaði 15 stigum
á liðunum, staðan 49-35 og staða
Skallagrímskvenna vænleg.
Þær mættu af miklum krafti til
síðari hálfleiks og gerðu út um
leikinn í þriðja leikhluta með góð-
um varnarleik þar sem Blikar skor-
uðu aðeins átta stig. Í lokafjórð-
ungnum bættu Skallagrímskon-
ur hægt og rólega við forskot sitt.
Þegar lokaflautan gall var munur-
inn orðinn 29 stig og staðan 85-56,
Skallagrími í vil.
Erikka Banks var atkvæðamest
Skallagrímskvenna með 18 stig og
16 fráköst. Ka-Deidre J. Simmons
kom henni næst með 14 stig, Sól-
rún Sæmundsdóttir skoraði tólf
stig og Kristrún Sigurjónsdóttir
og Þóra Kristín Jónsdóttir tíu stig
hvor.
Sigurinn tryggði Skallagríms-
konum deildarmeistaratitil í 1.
deild. Þær hafa verið langbesta lið
deildarinnar í vetur, aðeins tap-
að einum af 17 leikjum sínum og
eru vel að titlinum komnar. Deild-
armeistaratitillinn tryggir þeim
heimaleikjarétt í úrslita-
keppninni í vor. Þar verð-
ur leikið um sæti í úrvals-
deild og verða Skalla-
grímskonur að teljast sig-
urstranglegastar í þeirri
keppni, slíkt hefur gengi
þeirra verið það sem af er
vetri.
kgk/ Ljósm. Skalla-
grímur.
Skallagrímskonur eru deildarmeistarar
Erikka Banks var
atkvæðamest í leiknum
og skilaði góðri tvennu
stiga og frákasta.
Skallagrímskonur fögnuðu deildarmeistaratitli með sigri á Breiðabliki á föstudag.
Þær hafa borið af í deildinni og eru vel að titlinum komnar.