Skessuhorn - 13.04.2016, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 20162
Síðastliðinn sunnudag bættist nýr
bátur í útgerðina í Rifi þegar Rifs-
hólmi ehf. fékk bátinn Kára III
SH-9 til heimahafnar. Báturinn er
af gerðinni Sómi 990 og var smíð-
aður árið 2013. Vélin er níu lítra
Volvo Penta sem skilar allt að 500
hestöflum. Bógskrúfa var sett á bát-
inn áður honum var siglt til heima-
hafnar. Fyrir á Rifshólmi annan
Sómabát sem heitir Kári II SH. Að
sögn Lúðvíks Smárasonar skipstjóra
og eins af eigendunum er gamli
Kárinn orðinn 22 ára gamall og við
auknar kröfur um bætta meðferð
afla og kælingu á fiski var ákveðið
að fara út í þessa fjárfestingu í nýrri
og öflugri báti. „Auk þess að vera
með gott dekkpláss, meðal annars
fyrir kör, tekur nýi báturinn níu kör
í lest,“ sagði Lúðvík og bætti við að
útgerðin gerði aðeins út á handfæri
og væri 110 tonna kvóti á bátnum.
Nú strax eftir hrygningarstoppið
21. apríl fara þeir til veiða. af
Frá og með föstudeginum 15. apríl næst-
komandi má samkvæmt lögum ekki aka bíl-
um á nagladekkjum. Verði bílstjórar uppvísir
að slíku má lögregla beita sektum. Sé færð
með þeim hætti að nagladekkja sé þörf
mega þau þó vera undir lengur. Hins vegar
bendir flest til þess að nú sé allavega orðið
tímabært að skoða ástand sumardekkjanna.
Það verður norðlæg átt á morgun, fimmtu-
dag. 5-10 m/s og léttskýjað en skýjað með
austurströndinni. Frystir norðaustanlands
en hiti allt að 8 stigum yfir daginn sunnan
heiða. Breytileg átt 3-8 m/s á föstudag. Þurrt
og bjart með köflum víðast hvar á land-
inu en þykknar upp vestan til seinni part
dags. Hiti 0-7 stig, kaldast á Norðausturlandi.
Sunnan- og suðvestan 5-10 m/s um helgina.
Skýjað með dálítilli vætu af og til, en þurrt
á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 1-7 stig.
Vestlæg átt á mánudag, skúrir eða slydduél
og heldur svalt í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hvenær vaknar þú á frídögum?“ Flest-
ir, 26,49%, vakna „milli 8 og 9“ en næst-
flestir, 22,19%, „milli 9 og 10“. 20,83% vakna
„milli 10 og 11“ og 19,11% „milli 11 og 12“.
10,45% eru árrisulir og vakna „fyrir 8“ en að-
eins 0,93% segjast vakna „eftir hádegi.“
Í næstu viku er spurt:
„Hvað ertu búin(n) að grilla oft í vor?“
Körfuknattleiksfólk af Vesturlandi gerði
það gott í vikunni sem leið. Snæfellskonur
tryggðu sér sæti í úrslitaviðureigninni um
Íslandsmeistaratitilinn, Skallagrímskonur
tryggðu sér sæti í deild þeirra bestu í fyrsta
skipti og Skallagrímskarlar geta gert slíkt
hið sama eftir ótrúlegan viðsnúning í und-
anúrslitunum gegn Val. Þetta hæfileikaríka
og spræka íþróttafólk er Vestlendingar vik-
unnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Tvö banaslys í
umferðinni
Alls urðu tíu umferðaróhöpp í
umdæmi Lögreglunnar á Vest-
urlandi í liðinni viku, þar af tvö
banaslys laugardaginn 9. apríl.
Hið fyrra varð á Holtvörðu-
heiði en að kvöldi sama dags
varð annað í Stykkishólmi.
Tildrög slyssins á Holtavörðu-
heiði voru þau að bíll á norð-
urleið valt og fór nokkrar velt-
ur. Farþegi í aftursæti var ekki
spenntur í bílbelti og kastaðist
út úr bifreiðinni. Hann var
fluttur á Landspítalann þar
sem hann var nokkru síðar úr-
skurðaður látinn. Ökumaður
og annar farþegi sem í bílnum
voru sluppu með minnihátt-
ar meiðsli. Pilturinn sem lést
var á átjánda aldursári. Um
klukkan 21:30 að kvöldi laug-
ardagsins fór bifreið í höfn-
ina í Stykkishólmi. Einn mað-
ur var í bílnum og var hann
látinn þegar björgunaraðil-
ar náðu á vettvang. Maðurinn
var fjölskyldumaður, búsett-
ur í Stykkishólmi. Lögregl-
an á Vesturlandi rannsakar til-
drög og orsakir þessara slysa.
Síðdegis í gær var ekki búið að
birta nöfn hinna látnu.
-mm/ Ljósm. sá.
Lionsmenn gáfu
tæki á HVE
AKRANES: Lionsmenn á
Akranesi færðu lyflækninga-
deild Heilbrigðisstofnunar
Vesturlands á Akranesi gjafir
síðastliðinn þriðjudag. Færðu
þeir deildinni hjartalínurits-
tæki af nýjustu tegund, búið
þeim eiginleikum að geta
flutt upplýsingar beint yfir í
rafræna sjúkraskrá sjúklings.
Upplýsingar eru því aðgengi-
legar til úrlestrar fyrir sér-
fræðing hvort heldur hann er
staðsettur innan sjúkrahúss-
ins eða á Landspítalanum.
Auk hjartalínuritstækisins gaf
Lionsklúbburinn svokallaðan
Holter hjartasírita. Tækið er
notað við rannsóknir á taktt-
ruflunum í hjarta og tekur upp
hjartalínurit í heilan sólar-
hring eða lengur eftir ástæð-
um. Verðmæti gjafanna er um
1,5 milljón króna.
-mm
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Skrautfjöðrum íslenska fiskisipa-
flotans; Venusi og Víkingi, frá Akra-
nesi var í síðustu viku siglt frá Akra-
nesi til Reykjavíkur. Svona stór skip
þóttu ekki henta í leikmynd vegna
töku á Fast-8 kvikmyndinni, en
tökur á myndinni hefjast í nágrenni
Akraneshafnar í þessari viku. Skip-
unum verður nú siglt á kolmunna-
miðin við Færeyjar en HB Grandi á
eftir að veiða 26.150 tonn af 32.424
tonna kvóta fyrirtækisins.
mm
Halda til veiða á kolmunna
Eins og Skessuhorn greindi frá í
blaði sem kom út 23. mars síðastlið-
inn er verið að stækka Hótel Hamar
í Borgarnesi. Um miðjan marsmán-
uð var verið að skipta um jarðveg
undir væntanlegri stækkun og var
verið að steypa plötuna um það leyti
sem blaðið kom út. Blaðamaður átti
leið um hlaðið á Hamri síðastliðinn
fimmtudag og varð þess var að fram-
kvæmdir bæði ganga hratt og örugg-
lega fyrir sig. Starfsmenn Loftorku í
Borgarnesi og frá Eiríki J Ingólfssyni
ehf. voru þá búnir að reisa sökkla og
meðal næstu verka verður að fylla
upp, þjappa í grunninn, járnabinda
og svo í kjölfar þess að raða eining-
unum upp.
Stækkun hótelsins nemur tíu
herbergjum, þar af tveimur 35 fer-
metra svítum í enda viðbygging-
arinnar. Framkvæmdum á að vera
fullu lokið fyrir 20. júní næstkom-
andi. Verða þá samtals 54 herbergi
á Hótel Hamri.
kgk
Hlutirnir gerast hratt á Hótel Hamri
Stækkun Hótels Hamars gengur hratt og örugglega fyrir sig.
Kári III bætist í flotann í Rifi
Nýi Kári III SH-9 siglir fánum prýddur í heimahöfn í Rifi.
Hluti af fjölskyldunni sem gerir út Kára.