Skessuhorn - 13.04.2016, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 20168
Óska eftir verð-
mati á OR
BORGARBYGGÐ: Eiríkur
Ólafsson, fjármálastjóri Borg-
arbyggðar og starfandi sveit-
arstjóri, sendi í marsmánuði
Akraneskaupstað og Reykja-
víkurborg bréf fyrir hönd
byggðarráðs Borgarbyggðar
þar sem óskað er eftir því að
verðmat á Orkuveitu Reykja-
víkur fari fram. Borgarbyggð
á 0,93% hlut í OR. Í bréfinu
kemur fram að á árinu 2015
hafi verið mikil umræða innan
sveitarstjórnar Borgarbyggð-
ar um hagræðingu í rekstri
sveitarfélagsins og voru skip-
aðir vinnuhópar um ýmis mál.
„Vinnuhópurinn lagði til að
farið verði í verðmat á fyrir-
tækinu í samvinnu við meðeig-
endur. Í framhaldi af því verð-
mati verði skoðað hvort selja
eigi hluta af eignarhlutanum
eða jafnvel allan,“ segir í bréf-
inu. Bæjarráð Akraneskaup-
staðar hefur falið Regínu Ás-
valdsdóttur bæjarstjóra að afla
frekari upplýsinga um mál-
ið en samkvæmt Eiríki Ólafs-
syni hafa engin viðbrögð enn
komið frá Reykjavíkurborg.
„Ég á alveg eins von á því að
þetta verði rætt í tengslum við
aðalfundina, sem fyrirhugaðir
eru hjá Orkuveitunni í næstu
viku,“ segir Eiríkur.
- grþ
Framkvæmdir
við Borgar-
fjarðarbrú
BORGARFJ: Vegagerðin
vekur athygli á því að vegna
vinnu við Borgarfjarðarbrú er
önnur akreinin á brúnni lok-
uð. Er umferð stýrt með ljós-
um. Áætlað er að framkvæmd-
unum ljúki 20. júní næstkom-
andi.
-mm
Opna Borgar-
fjarðarmótið
framundan
BORGARFJ: Að vanda
spiluðu borgfirskir briddsspil-
arar síðastliðinn mánudag. Til
leiks mættu níu pör og voru
spiluð 24 spil. Jón og Baldur
virðast enn í svipuðu formi og
fyrir viku þar sem þeir settu
stigamet en núna tóku menn
bara aðeins harðar á þeim en
þeir unnu nú samt. Skorið í
þetta skiptið var 60,3%. Næst
komu í mark Sveinbjörn og
Anna Heiða með 59,5% og
þriðja sætið tóku Sveinn og
Flemming með 54%. Næst á
dagskrá er ferð norður á Borð-
eyri á fimmtudag og er skrán-
ing hjá Jóni á Kópareykjum.
Rúta verður í boði félagsins og
fer hún frá Baulunni klukkan
18:00. Mánudaginn 18. apríl
hefst svo Opna Borgarfjarðar-
mótið og verður það jafnframt
Vesturlandsmót í tvímenn-
ingi þetta árið. Spilað verð-
ur í Logalandi 18. og 25. og
svo klárast mótið á Akranesi
fimmtudaginn 28. apríl.
-ij
Halda Íslands-
mót í boccia
AKRANES: Félag eldri
borgara á Akranesi og Fé-
lag áhugafólks um íþrótt-
ir aldraðra hefur auglýst
Íslandsmót FÁÍA 60+ í
boccia. Mótið verður haldið
í Íþróttahúsinu við Vestur-
götu á Akranesi laugardag-
inn 16. apríl og hefst kl 10.
Í hverjum riðli verða fimm
lið, þar sem allir leika við
alla. Efsta sveitin í hverjum
riðli kemst í úrslitakeppn-
ina. Leikið verður á átta
völlum, þannig að hámarks-
fjöldi sveita verður fjörutíu.
Þrjár efstu sveitirnar vinna
til verðlauna.
-mm
Ráðinn
kynningar-
fulltrúi UMFÍ
LANDIÐ: Jón Aðalsteinn
Bergsveinsson hefur ver-
ið ráðinn kynningarfulltrúi
Ungmennafélags Íslands.
Hann verður ritstjóri Skin-
faxa, tímarits UMFÍ, mun
stýra upplýsingagjöf og
verður tengiliður UMFÍ
við fjölmiðla og aðra hags-
munaaðila UMFÍ. Jón Aðal-
steinn var áður sérfræðing-
ur hjá alþjóðlega almanna-
tengslafyrirtækinu Cohn &
Wolfe Íslandi. Hann hefur
verið fréttastjóri netfrétta á
Viðskiptablaðinu, viðskipta-
blaðamaður á Fréttablaðinu
og umsjónarmaður Mark-
aðarins, blaðamaður á net-
fréttadeild mbl.is, Vísir.is,
Tölvuheimi og fjölda tíma-
rita. Jón Aðalsteinn er með
MA gráðu í blaða- og frétta-
mennsku frá Háskóla Ís-
lands og BA gráðu í sagn-
fræði frá sama skóla.
-mm
Jafnt á toppi
Opna Akraness-
mótsins
AKRANES: Staðan í Opna
Akranesmótinu í tvímenn-
ingi í bridds er lítið tek-
in að skýrast, þrátt fyrir að
lokið sér þremur kvöldum
af mótinu. Í efsta sæti eru
félagarnir Leó og Magnús
með 477 stig. Fast á hæla
þeirra með 474 stig koma
svo Jón Alfreðsson og Þórð-
ur El. Þriðju eru svo Árni
Braga og Þorvaldur og
fjórðu Tryggvi og Þorgeir,
en þeir síðastnefndu náðu
besta skori á fimmtudaginn,
58,44%. -mm
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á
fundi sínum í liðinni viku að ráða
Sigurð Arnar Sigurðsson í stöðu
skólastjóra Grundaskóla. Sex um-
sækjendur voru um stöðuna en
einn umsækjandi dró umsókn sína
til baka. Sigurður Arnar tekur við
starfinu af Hrönn Ríkharðsdótt-
ur sem sagði starfi sínu lausu eft-
ir áramótin og hættir í sumar. Sig-
urður Arnar hefur gegnt starfi að-
stoðarskólastjóra frá árinu 2006
en hann hefur starfað í skólanum
í 24 ár. Hann er með meistara-
gráðu í stjórnun menntastofnana
frá Háskóla Íslands frá árinu 2013
og lauk diplómanámi í stjórnun og
forystu frá Háskólanum í Reykja-
vík 2008 og frá Háskóla Íslands
2006. Auk þess hefur hann B.ed.
gráðu frá Kennaraháskólanum frá
árinu 1992. Þá hefur Sigurður Arn-
ar einnig réttindi sem héraðsmats-
maður í skólum tengt ytra gæða-
mati menntamálayfirvalda frá árinu
2014. Sigurður Arnar hefur verið
virkur í félagsmálum. Hann hefur
meðal annars setið í stjórn Skóla-
stjórafélags Íslands og var kjörinn
formaður Íþróttabandalags Akra-
ness árið 2014.
Miklar breytingar
framundan
Að sögn Sigurðar Arnars leggst
starfið ljómandi vel í hann. „Þetta
er spennandi starf. Það er mikið um
að vera í öflugum skóla, mjög margt
framundan og það verður nóg að
gera við að undirbúa næsta skólaár.“
Aðspurður um hvort sömu áherslur
yrðu undir hans stjórn sagði hann að
byggt yrði á sama grunni og sömu
stefnu. Þó væru töluverðar breyt-
ingar framundan sem ótengdar
væru skólastjóraskiptunum. „Skól-
inn stendur á tímamótum. Hér er
nemendum að fjölga og töluverðar
breytingar á starfsmannahaldi á sama
tíma. Við erum einnig að breyta um
stjórnskipulag í skólanum þannig
að það verður ýmislegt sem tekur
breytingum ásamt þeim breytingum
sem fylgja nýjum stjórnanda.“
Nemendafjöldi í Grundaskóla
hefur verið í kringum 600 á und-
anförnum árum en á næsta skóla-
ári fjölgar þeim upp í um það bil
630. „Þá kemur inn fyrsti fjögurra
bekkja árgangurinn í fyrsta bekk í
sögu skólans. Við höfum verið með
tveggja til þriggja bekkja árganga
en á næsta skólaári verða eingöngu
þriggja bekkja árgangar og einn
fjögurra bekkja,“ segir Sigurður
og bætir því við að starfsfólki skól-
ans muni fjölga og að bætt verði við
tveimur kennslustofum.
Sigurður tekur formlega við sem
skólastjóri 1. ágúst næstkomandi.
„Við Hrönn vinnum saman að þeim
breytingum sem eru framund-
an. Við erum sammála um að hún
stígi smátt og smátt til hliðar en
sem dæmi taki ég forystu um skipu-
lag næsta skólaárs. Um næstu helgi
verða svo auglýstar lausar stöður og
þar þarf að byrja á því að ráða nýjan
aðstoðarskólastjóra.“
grþ
Sigurður Arnar Sigurðsson ráðinn
skólastjóri Grundaskóla
Sigurður Arnar Sigurðsson mun taka
við sem skólastjóri Grundaskóla
1. ágúst.
Ársreikningur Snæfellsbæjar var
kynntur í bæjarstjórn í síðustu
viku. Í tilkynningu til Kauphallar-
innar segir að rekstur hafi gengið
vel á árinu og að rekstrarniðurstað-
an hafi verið nokkuð betri en áætl-
un hafi gert ráð fyrir, eða jákvæð
um 188 milljónir króna. Kristinn
Jónasson bæjarstjóri segir að sem
betur fer sé það þannig að bæjar-
stjórn nái settum markmiðum í
rekstri og oft sé afkoman betri en
gert er ráð fyrir. Fyrir því sé skýr-
ing: „Við höfum það fyrir vana að
gefa okkur í fjárhagsáætlanagerð
að tekjur verði í lágmarki en gjöld
í hámarki. Auk þess gerum við ráð
fyrir óvæntum útgjöldum í rekstri
bæjarsjóðs og auðvitað kemur allt-
af eitthvað óvænt upp á. Við erum
að sjálfsögðu ánægð með að vel
hafi gengið og ekki er síst ánægju-
legt að skuldahlutfall bæjarsjóðs
er komið niður í 78% af tekjum.
Það eru ánægjulegustu tíðindin að
mínu mati,“ segir Kristinn í sam-
tali við Skessuhorn.
Rekstrartekjur Snæfellsbæjar á
árinu námu 2.078 milljónum króna
en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir
að rekstrartekjur yrðu 1.893 millj-
ónir. Eigið fé sveitarfélagsins í árs-
lok var 2.752 milljónir króna sam-
kvæmt efnahagsreikningi. Fram
kemur að laun og launatengd gjöld
sveitarfélagsins voru 1.008 millj-
ónir króna en starfsmannafjöldi
var 133 stöðugildi í árslok. Veltufé
frá rekstri var 212 milljónir króna
og veltufjárhlutfall er 1,02. Hand-
bært fé frá rekstri var 258 millj-
ónir króna. Heildareignir bæjar-
sjóðs námu 3.467 milljónum króna
og heildareignir sveitarfélagsins í
samanteknum ársreikningi A og B
hluta voru 4.485 milljónir króna í
árslok 2015. Heildarskuldir bæjar-
sjóðs námu 1.282 milljónum króna
og í samanteknum ársreikningi um
1.733 milljónum króna. Lækkuðu
skuldir milli ára um 41 milljón.
Snæfellsbær fjárfesti á árinu
2015 fyrir 219 milljónir í varan-
legum rekstrarfjármunum og ný
lán voru tekin að upphæð 41 millj-
ón. Greidd voru niður lán um 155
milljónir króna og skuldahlutfall-
ið komið niður í 78% eins og áður
sagði. mm
Afkoma Snæfellsbæjar mun betri
en áætlun gerði ráð fyrir
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar ásamt bæjarstjóra. Ljósm. snb.is
Norðurálsmótið í knattspyrnu fyr-
ir 7. flokk drengja er löngu orðið
fastur liður í menningarlífi Akra-
neskaupstaðar. Það verður haldið
helgina 10.-12. júní næstkomandi,
eða viku fyrr en vanalega vegna
þátttöku karlalandsliðs Íslands á
Evrópumótinu í knattspyrnu sem
hefst skömmu síðar.
Skráningu á Norðurálsmótið
2016 er lokið og munu 33 félög
taka þátt í ár. Reikna má með að
keppendur verði um 1500 talsins .
Aldrei hafa félög verið skráð
til þátttöku á mótinu og hróð-
ur þess virðist hafa borist út fyr-
ir landsteinana. Tvö lið frá grönn-
um okkar á Grænlandi hafa nefni-
lega boðað komu sína, annars veg-
ar lið frá höfuðstaðnum Nuuk og
hins vegar frá bænum Qaqortoq á
suðurströnd landsins. kgk
Tvö lið frá Grænlandi munu
taka þátt í Norðurálsmótinu
Svipmynd frá Norðurálsmótinu í fyrra.