Skessuhorn - 13.04.2016, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 201614
Verkefnastaða hjá verktakafyrirtækinu
Borgarverki í Borgarnesi er með allra
besta móti, að sögn Óskars Sigvalda-
sonar framkvæmdastjóra. Vegagerð-
in er búin að opna tilboð í yfirlögn á
þjóðvegum allt í kringum landið og
var Borgarverk með lægsta boð í alla
landshlutana fjóra. Þó er eftir að ljúka
samningum um Austursvæðið þar
sem fyrirtækið var eini tilboðsgjafinn.
Vinna við yfirlögn þjóðveganna hefst
að líkindum í maí og stendur fram á
haust en sú vinna er alltaf háð veðri
og aðstæðum. Hjá Borgarverki eru
nú 53 starfsmenn og þar af eru 14 á
starfsstöð fyrirtækisins á Selfossi.
Óskar segir að reksturinn gangi
prýðilega og nú sé velta komin á
svipað ról og hún var fyrir gjaldþrot
bankanna 2008. Nokkur mögur ár
komu í kjölfarið en smám saman sé
land nú tekið að rísa að nýju, bæði
hjá þeim og almennt í framkvæmd-
um í þjóðfélaginu. Auk vinnu við yf-
irlögn þjóðveganna samkvæmt út-
boði eru nokkur fleiri verk í vinnslu
og undirbúningi. „Við erum með
stórt verk í vegagerð á Bjarnarfjarðar-
hálsi á Ströndum, endurnýjun lagna
í Kveldúlfsgötu í Borgarnesi stend-
ur nú yfir, framundan er grunnur að
stórhýsi við Borgarbraut 57 í Borg-
arnesi, bensínstöð í Norðlingaholti í
Reykjavík og vatnsveituframkvæmdir
á Selfossi. Auk þessa tínist alltaf eitt-
hvað fleira til. Við getum ekki annað
en borið okkur vel. Við búum afar vel
að traustum og góðum starfsmönn-
um og erum einmitt þessa dagana að
bæta við okkur fleirum fyrir sumar-
törnina. Auk þess erum við í nokkr-
um gæluverkefnum. Erum til dæmis
að gera upp tvo gamla bíla, Ford og
Benz, sem tengjast 42 ára sögu Borg-
arverks. Þeir verða hafðir í geymslu
og til sýnis hjá Fornbílafjelaginu í
Brákarey,“ segir Óskar Sigvaldason.
mm
Síðastliðinn miðvikudag var kaffi og
veisluterta í boði fyrir gesti í Kaup-
félagi Borgfirðinga í Borgarnesi.
Ákveðið var á næstsíðasta aðalfundi
KB að heiðra á hverju ári einstak-
ling eða verkefni sem stuðlað hafi að
félagslegum framförum á einhverju
sviði. Að þessu sinni var ákveðið að
veita viðurkenningu Kelakaffi fyrir
„félagslega uppbyggingu, frumkvæði
og samfélagslegt framtak,“ eins og
segir í tilnefningunni. Kelakaffi er
samkoma fyrsta miðvikudag í hverj-
um mánuði í húsnæði kaupfélagsins.
Byrjað var að hittast þennan dag á
kaffispjallfundum að frumkvæði Þor-
kels heitins Fjeldsted í Ferjukoti. Sá
siður hélst í mörg ár og oft var glatt
á hjalla, félagsmenn komu með með-
læti og áttu góða stund saman. Það
var Guðrún Sigurjónsdóttir stjórn-
armaður KB sem kom með viður-
kenningarskjal og Guðrún Fjeldsted
gaf mynd af Kela í minningu hans, en
kakan var pöntuð frá Geirabakaríi.
mm/ Ljósm. Óskar Þór Óskarsson.
Kelakaffi fékk viðurkenningu
fyrir samfélagslegt framtak
Kakan tekin til handargagns. Frá vinstri Kristín Ingólfsdóttir, Kristbjörn Jónsson
og Guðrún Fjeldsted.
Viðurenningarskjal og mynd af Kela í Ferjukoti.
Borgarverk með yfirlögn í öllum landshlutum
Óskar Sigvaldason framkvæmdastjóri. Fyrir síðustu helgi fékk Borgarverk nýjan malardreifara af Parker-Weisler gerð sem
Hafliði Gunnarssonar starfsmaður fyrirtækisins stendur hér við. Eitt slíkt tæki missti
Borgarverk í bruna í fyrrasumar og því var brýnt að fá þetta í hús fyrir sumartörnina.
Borgarverk annast þessa dagana endurnýjun lagna í Kveldúlfsgötu í Borgarnesi.
Fjöldi starfsmanna vann við verkið í síðustu viku.
Lagnir í Kveldúlfsgötu eru endurnýjaðar inn í hús. Hér er lögnum komið inn í eitt
húsanna.
Laugardaginn 9. apríl fékk björg-
unarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ
afhentan nýjan bíl og var haldin
móttökuveisla með styrktaraðilum
og bæjarbúum í björgunarstöðinni
Von í Rifi. Bíllinn er af gerðinni
VW Caravelle og tekur níu manns
í sæti. Þetta er fjórhjóladrifinn bíll,
upphækkaður og með kraftmikilli
díselvél. Hann er vel búinn tækj-
um til björgunarstarfa og sá Radí-
óRaf um þær breytingar, svo sem
Tetra og VHF talstöðvar, tvö GPS
tæki og spjaldtölva ásamt öðrum
búnaði.
Að sögn Halldórs Sigurjóns-
sonar formanns Lífsbjargar mun
bíllinn nýtast vel við störf sveit-
arinnar, en fyrir á hún samskonar
bifreið árgerð 2001 og er því um
kærkomna endurnýjun að ræða.
Vill Halldór koma á framfæri góð-
um þökkum til þeirra styrktaraðila
sem lögðu hönd á plóg og eru þeir
eftirfarandi: Hraðfrystihús Hellis-
sands, Útnes ehf, Kristinn J. Frið-
þjófsson ehf, Skarðsvík ehf, Út-
gerðafélagið Dvergur, Útgerðar-
félagið Haukur, Litlalón ehf, Brim
hf. og KG fiskverkun. af
Björgunarsveitin Lífsbjörg
fær nýjan bíl afhentan
Hluti styrktaraðila ásamt björgunarsveitarmönnum þegar bíllinn var sýndur á laugardaginn.
Bíllinn er vel útbúinn tækjum til björgunarstarfa.