Skessuhorn - 13.04.2016, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2016 15
ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI
Eiríkur J. Ingólfsson ehf.
S
ke
ss
uh
or
n
20
13
Kári Rafnsson umsjónarmaður fast-
eigna við Grunnskóla Snæfellsbæj-
ar hefur mörg járn í eldinum. Auk
þess að sinna sínu starfi við skólann
er hann öllum stundum í bílskúr sín-
um við allskonar viðgerðir á raf-
tækjum. Þegar fréttaritari heimsótti
Kára á dögunum í bílskúrinn var vart
hægt að þverfóta fyrir tækjum og tól-
um sem Kári var með í viðgerð. Að-
spurður um þetta áhugamál sitt segir
Kári að hann hefði alltaf haft áhuga á
raftækjum, allt frá því hann var ung-
lingur. Svo hafi þetta bara undið upp
á sig. Kári er menntaður vélstjóri og
var á sjó í mörg ár og er því kunnugur
allskonar vélum og tækjum.
Kári segist mikið vera í að gera við
þvottavélar, þurrkara og önnur raf-
tæki, svo sem gömul útvörp, kaffi-
vélar og bara allt það sem fólk biður
hann um. Hann kveðst einungis einu
sinni hafa þurft að kaupa varahlut í
þvottavél. „Ég millifæri varahluti úr
öðrum vélum sé þess þörf og reyni
þannig að nýta allt eins vel og kostur
er. Fólk leitar mikið til mín með tæki
til viðgerðir auk þess sem ég fer heim
til viðskiptavina og geri við á staðn-
um sé það hægt. Ég fæ einnig oft gef-
ins vélar sem fólk ætlar að henda og
reyni að gera við tækin. Oft er það þó
ekki hægt sé um meiriháttar bilanir
að ræða, eins og til dæmis ef heilinn í
vélunum gefur sig. Þá borgar sig ekki
að gera við vélarnar en þá er í staðinn
hægt að nýta aðra hluti úr þeim eins
og mótora og fleira,“ segir Kári.
Auk þess að gera við rafmagns-
tæki og vélar segir Kári að hann að-
stoði ferðamenn sem lendi í því að
dæla vitlausu eldsneyti á bíla sína og
eigi hann í góðu sambandi við iðnað-
armenn í Snæfellsbæ sem benda oft á
hann til þeirra verka. af
Gerir við og endurnýtir gömul raftæki
Kári ásamt léttakerrunni góðu sem hann notar mikið.
Kári ásamt tveimur af fjórum barnabörnum sínum, þeim Friðgeiri Kára Aðal-
steinssyni og Birgittu Söru Björnsdóttur.
Mikið er af varahlutum í bílskúrnum hans Kára.
ORKA NÁTTÚRUNNAR
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is
Allar fyrirspurnir vegna útboðs skal senda á utbod@on.is
Útboð
ONV 2016-06 / 09.04.2016
Orka náttúrunnar ohf. óskar eftir tilboðum í útboðsverkið:
Andakílsárvirkjun –
Endurnýjun á stöðvarþaki:
Útboðsverkið felst í endurnýjun og viðgerðum þaka á stöðvarhúsi
Andakílsárvirkjunar, en þrjú þök eru á stöðvarhúsinu.
Helstu verk eru að endurnýja allt bárujárn, pappa og áfellur á þaki auk
endurnýjunar á þakrennum, rennuböndum, niðurfallsrörum sem eru ónýt
ásamt öðrum fylgihlutum.
Einnig á að endurbæta burðarvirki og loftun þaka.
Framkvæmdasvæðið er við Andakílsárvirkjun í Borgarfjarðarsveit.
Helstu verkþættir útboðsverksins eru (með fyrirvara um breytingar á
magntölum):
Rif og hreinsun þakklæðninga 640 m²
Endurnýjun þakjárns og þakpappa 640 m²
Endurnýjun áfella 130 m²
Endurnýjun þakrenna, rennubanda 110 m
Endurbætur á útloftunarrörum 70 stk
Snjógrindur 20 m
Verklok heildarverks skulu vera eigi síðar en 31.08.2016
Verkinu er nánar lýst í útboðsgögnum „ONVK-2016-06 Andakílsárvirkjun –
Endurnýjun á stöðvarþaki“
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með þriðjudeginum
12. apríl 2016 á vefsíðu OR https://www.or.is/fjarmal/utbod#page-7016
Tilboð verða opnuð hjá Orku Náttúrunnar ohf. Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík,
þriðjudaginn 26. apríl 2016 kl. 10:30.