Skessuhorn - 13.04.2016, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 201618
Norðurljósavertíðinni fer nú senn
að ljúka en Vestlendingar hafa
margir hverjir orðið varir við
aukna ásókn erlendra ferðamanna
í leit að norðurljósum í landshlut-
anum. Íbúi á Akranesi sem var
á ferðinni úr Reykjavík aðfarar-
nótt 29. mars síðastliðinn mætti
37 stórum hópferðabílum frá Ár-
túnsbrekkunni og í Hvalfjarðar-
göng. Rúturnar voru allar fullar
af erlendum ferðamönnum sem
voru að koma úr norðurljósaferð í
Borgarfjörð. Lauslega áætlað voru
þar á ferð á þriðja þúsund manns á
tæplega klukkutíma.
Meðfylgjandi mynd tók frétta-
ritari Skessuhorns í Búðardal við
Laxá í Dölum, þar hann átti mót
með íslenskum leiðsögumanni sem
var á ferð um landið ásamt amer-
ískum ferðamanni í einkaleiðsögn.
Þess má að lokum geta að norð-
urljósaspá fyrir kvöldið og annað
kvöld er mjög hagstæð (miðviku-
dag og fimmtudag).
mm/sm / Ljósm. Steina Matt.
Mikil sókn ferðamanna
í að sjá norðurljósin
Um þessar mund-
ir eru leikglaðir fé-
lagar í Nemenda-
félagi Fjölbrauta-
skóla Vesturlands tíð-
ir gestir í Bíóhöllinni
á Akranesi. Þar verð-
ur leikritið Fullkom-
ið brúðkaup frum-
sýnt næsta föstudag,
15. apríl. Skessu-
horn ræddi við þær
Sunnevu Lind Ólafs-
dóttur og Brynju
Rún Björnsdóttur úr
leiklistarklúbbi nem-
endafélagsins, sem á
veg og vanda að sýn-
ingunni.
„Þetta er farsi,
mjög fyndinn og hef-
ur allt sem góður
farsi þarf að hafa. Það verður mikill
misskilningur, algert klúður og ein-
hvern veginn fer ekkert eins og það
á að fara,“ segja þær og eru fullar eft-
irvæntingar. „Sýningin var ótrúlega
vinsæl þegar hún var sett upp á Ak-
ureyri á sínum tíma. Við höfum tvisv-
ar fengið gesti í salinn á æfingar og
viðbrögðin voru vonum framar, það
var mikið hlegið. Þannig að við erum
mjög spenntar að byrja að sýna“ segja
þær.
Sjö leikarar stíga á svið í Fullkomnu
brúðkaupi en alls koma um 20 manns
að sýningunni með einum eða öðrum
hætti. Kveður þar við annan tón en
undanfarin ár. „Síðustu ár hafa ver-
ið settar upp mjög stórar sýningar
og þar af hafa verið söngleikir núna
tvö ár í röð. Okkur langaði að breyta
aðeins til og ákváðum að fara þessa
leið,“ segja þær. Hallgrímur Ólafs-
son var fenginn til að leikstýra, en
hann hefur leikstýrt sýningum nem-
endafélagsins undanfarin ár. „Við
erum mjög ánægðar með samstarfið
við Halla. Hann hefur leikstýrt síð-
ustu þremur sýningum og við vitum
að það er gott að
vinna með hon-
um,“ segja þær.
Að sögn þeirra
Sunnevu og
Brynju er allt að
smella saman fyr-
ir stóra daginn.
Verið er að leggja
lokahönd á allan
undirbúning og
verkið að taka á sig
endanlega mynd.
„Æfingarnar hafa
gengið mjög vel
og við höfum séð
miklar framfarir
hjá leikurunum frá
því við byrjuðum,“
segir Sunneva.
Miðasala fer
fram í verslun
Omnis á Akra-
nesi en einnig í
Bíóhöllinni, þar sem miðasala hefst
tveimur klukkustundum fyrir hverja
sýningu. Sunneva og Brynja hvetja að
sjálfsögðu alla til að næla sér í miða.
„Ef þú hefur gaman af því að hlæja þá
er þetta sýning fyrir þig,“ segja þær
að lokum.
kgk/ Ljósm. Sveinn Þór Þorvaldsson.
Fullkomið brúðkaup frumsýnt í
Bíóhöllinni á föstudaginn
Gallerý Snotra f lytur í nýtt
glæsilegt húsnæði að Kirkjubraut 5
Laugardaginn 23.apríl n.k.
OPNUM:
Einnig nýja og spennandi undirfatadeild
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Garðaþjónustan Sigur-Garðar
Tökum að okkur alla almenna skrúðgarðavinnu
Sindri Arnfjörð garðyrkjumaður - Laufskálum 311 Borgarbyggð
Netfang: sindri@vesturland.is - Vinnusími: 892-7663
Hellulagnir - Hleðsla - Þökulagnir - Jarðvegsskipti
Trjáklippingar - Gróðursetningar - Garðsláttur - Plöntusala
Þjónusta í yfir 25 ár
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is