Skessuhorn - 13.04.2016, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2016 19
Ungmennafélagið Íslendingur auglýsir eftir starfsmanni í Hreppslaug.
Helstu verkefni eru öryggisgæsla í sundlaug, klefavarsla, ræstingar, eftirlit og
afgreiðsla. Reiknað er með að viðkomandi hefji störf í byrjun júní og vinni
fram í miðjan ágúst.
Opnunartími verður þriðjudaga til föstudaga frá 18-22 og laugardaga til
sunnudaga frá 13-22 (með fyrirvara um smávægilegar breytingar).
Nánari upplýsingar um starfið veitir formaður Umf. Íslendings,
Lena Reiher, í síma 849 2839.
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl næstkomandi og umsóknir
skal senda á netfangið umfislendingur@gmail.com.
Stjórn Umf. Íslendings
Sumarstarf í Hreppslaug
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Laus störf hjá Akraneskaupstað
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
Brekkubæjarskóli
Starf umsjónarkennara á yngsta stigi. •
Starf umsjónarkennara á miðstigi. •
Starf myndmenntakennara.•
Grundaskóli
Starf aðstoðaskólastjóra.•
Afleysingarstöður kennara og •
umsjónarkennara á öllum aldursstigum.
Leikskólinn Akrasel
Starf aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóra.•
Leikskólinn Teigasel
Starf leikskólakennara.•
Leikskólinn Vallarsel
Störf leikskólakennara.•
Nánari upplýsingar um ofangreind störf og önnur
laus störf er að finna á www.akranes.is.
Gleðileikarnir 2016 hófust í Borgar-
nesi í gær, þriðjudag og lýkur í dag.
Um er að ræða tveggja daga dagskrá
þar sem uppbrot er frá hefðbundnu
skólastarfi nemenda á efsta stigi
Grunnskólans í Borgarnesi. Taka
nemendur þátt í skemmtilegum og
þroskandi þrautaleik. Skipulagning
er í höndum foreldrafélags skólans í
samstarfi við skólayfirvöld. Að sögn
Ástu Kristínar Guðmundsdóttur,
verkefnisstjóra Gleðileikanna, leit-
uðu forsvarsmenn þeirra til aðila úr
samfélaginu, líkt og gert hefur verið
undanfarin ár, og koma fjölmargir að
verkefninu. „Við höfum kallað eftir
samstarfi úr samfélaginu til styrktar
með ýmsum hætti svo sem með fjár-
framlagi, vörum eða vinnuafli. Bara
við Gleðileikana sjálfa starfa um 40
sjálfboðaliðar, sem koma að verk-
efninu þessa tvo daga, fyrir utan all-
an undirbúning,“ segir Ásta Kristín
í samtali við Skessuhorn. Hún seg-
ir aðila úr samfélaginu einnig koma
inn í Gleðileikanefndina, þó hún sé
aðallega skipuð foreldrum nemenda
við skólann. „Við fáum svo til liðs við
okkur fyrirtæki, stofnanir og einstak-
linga úr samfélaginu, sem hafa áhuga
og vilja leggja málefninu lið.“
Samvinna,
sjálfstæði og gleði
Í ár eru starfsstöðvarnar Björgun-
arsveitin Brák, Michelle Bird lista-
kona, UMSB, Félagsmiðstöðin
Óðal, Landnámssetrið, Stéttarfélag
Vesturlands og þeir Sigursteinn
Sigurðsson og Geir Konráð Theó-
dórsson hjá Hugheimum.“Ásta
Kristín segir að krökkunum hafi
verið skipt í átta hópa þvert á ár-
ganga. „Svo leysa þau átta mismun-
andi þrautir sem felast í samvinnu,
sjálfstæði og gleði og fá gefin stig
fyrir þá þætti. Allir sem klára verk-
efnið fá eitt stig en hinir þættirnir
vega meira.“ Markmið leikanna er
að efla unglingana bæði sem ein-
staklinga og í hóp, sem og að styrkja
sjálfsmynd þeirra og samhug. Hóp-
arnir glíma við margvíslegar þraut-
ir þar sem reynir á samvinnu þeirra
og sjálfstæði. Meðal þeirra verkefna
sem krakkarnir leysa í ár er að leggja
til sína vinnu í gerð stórs málverks,
þar sem þau fá ákveðið þema. „Sum-
ir þurfa þannig að mála með vinstri
hendinni, aðrir með bundið fyrir
augun og þess háttar. Svo er hugsun-
in sú að verkið verði hengt upp og að
fólk fái að njóta þess eftir á,“ seg-
ir Ásta Kristín. „Svo er ein hönnun-
ar- og tæknistöð, þar sem leystar eru
ákveðnar þrautir eins og byggingar-
skipulag. Björgunarsveitin er með
þraut, við erum með leiklistarspuna
og uppbyggjandi samvinnuþraut,
svo eitthvað sé nefnt,“ bætir hún við.
Gleðileikunum lýkur í dag í Hjálm-
akletti með pizzuveislu fyrir þátttak-
endur. grþ
Gleðileikarnir hófust í gær
Gleðileikarnir hófust í gær í blíðskaparveðri.
Flottur hópur á Gleðileikunum í Borgarnesi.
Myndaður broskall á grasinu.Samvinnan er fyrir öllu. Ljósm. Brynja Baldursdóttir.