Skessuhorn - 13.04.2016, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2016 21
Ársæll Rafn Erlingsson er nemandi
á lokaári á leiklistarbraut við Kvik-
myndaskóla Íslands. Um er að ræða
tveggja ára nám og útskrifast Ársæll
sem leikari nú í vor. Hann vinnur
nú að lokaverkefni sínu við skólann,
stuttmynd sem hann hyggst taka upp
á Akranesi í þessari viku; 14. til 17.
apríl. „Við höfum gert stuttmyndir á
hverri önn frá því að við byrjuðum
í skólanum, sett upp leikrit og gert
flestallt sem kemur að því að búa til
kvikmyndir en alltaf með áherslu á
leiklistina,“ segir Ársæll. Nú er kom-
ið að því að gera lokamyndina, stutt-
mynd sem ber vinnuheitið „Aldrei
gleyma,“ sem er í leikstjórn eigin-
konu Ársæls, Lovísu Láru Halldórs-
dóttur. Stuttmyndin fjallar um mann
sem er að halda áfram með líf sitt
eftir að hafa valdið banaslysi. „Þetta
er svona dramatísk hrollvekja. Það
er smá hryllingur í þessu líka. Aðal-
persónan í myndinni er að reyna að
læra að fyrirgefa sjálfum sér fyrir for-
tíðina en það er alltaf spurning hvort
fortíðin hafi fyrirgefið honum.“
Góð viðbrögð
á Skaganum
Að sögn Ársæls er stuttmyndin ekki
dæmigert hópverkefni við skólann,
þó að hópur fólks komi að gerð
myndarinnar. „Ég er yfirframleið-
andi verksins og fæ til mín fólk sem
tekur upp og hjálpar mér við fram-
leiðslu og vinnslu myndarinnar eft-
ir upptökur. Konan mín leikstýrir
myndinni, hún útskrifaðist af leik-
stjórnar- og handritabraut skólans
fyrir tveimur árum og hefur verið
starfandi í þessum geira frá útskrift,“
segir Ársæll.
Alls koma um tuttugu sjálfboðalið-
ar að gerð myndarinnar, ásamt fjölda
aukaleikara. Ársæll Rafn óskaði eftir
aðstoð fyrirtækja á Akranesi og var
vel tekið. Hann segist hafa farið af
stað með það að leiðarljósi að kynna
verkefnið og sjá hvernig stemning-
in væri. „Það kom svo í ljós að flestir
voru tilbúnir að leggja fram hjálpar-
hönd sem gátu það. Bakaríið á Suð-
urgötu ætlar að gefa okkur bakar-
ísmat til að narta í á tökustað. Ga-
litomenn eru jákvæðir til að hjálpa
ef þeir hafa tíma og Einarsbúð ætl-
ar að leyfa okkur að koma að versla
og fá afslátt af reikningnum. Svo
ætla stelpurnar á Mozart að styrkja
mig með því að klippa mig og gera
mig sætan fyrir tökur. Það mun-
ar svo miklu þegar maður fær svona
styrki. Það er mikilvægt að fólk fái
gott að borða þegar það er að koma
og hjálpa manni í sjálfboðavinnu, þá
vill maður sem mest fyrir alla gera,“
útskýrir Ársæll. Hann segist einnig
vera að leita að tökustað fyrir atriði
sem á að gerast á skemmtistað og að
Bjarni á Vitakaffi hafi reynst jákvæð-
ur í þeim efnum. Ársæll Rafn vill
nota tækifærið og skila þakklæti til
Skagamanna og Akraneskaupstað-
ar fyrir þau jákvæðu viðbrögð sem
hann hefur fengið á Akranesi. „Við
fengum styrk frá Akraneskaupstað
til að gera myndina á Akranesi. Þetta
kostar allt peninga og það munar
um hverja krónu. Við erum ótrúlega
ánægð með þessar jákvæðu viðtökur
á Akranesi,“ segir hann.
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 552 4407 • jarnsteypan.is
Klassískasti útibekkur landsins - Nú er rétti tíminn til að panta.
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudagurinn 19. apríl 2016
kl. 20:30
í Bókhlöðu Snorrastofu
List- og verkgreinar í grunnskóla:
Nauðsyn eða afgangsstærð?
Kristín Á. Ólafsdóttir kennari við Menntavísindasvið Háskóla Íslands flytur
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
Í fyrirlestrinum verður byggt
á rannsókninni Starfshættir
í grunnskólum við upphaf
21. aldar sem gerð var á 20
íslenskum grunnskólum í
fjórum sveitarfélögum. List-
og verk greinar voru skoðaðar
sérstaklega svo og viðhorf
til þeirra meðal nemenda,
starfsfólks og foreldra.
Hryllingsmyndahátíð og
kvikmynd
Ársæll er brottfluttur Skagamaður en
segist hafa mikinn áhuga á að flytja
heim innan tíðar. „Ég er búinn að
búa í bænum af og til frá 18 ára aldri
en hef komið heim inn á milli, þeg-
ar Reykjavíkurdraumurinn klikkar.
En það er miklu þægilegra andrúms-
loft á Akranesi og við Lovísa stefnum
á að kaupa okkur íbúð þar bráðlega.“
Hann segir ýmislegt vera framundan
hjá þeim hjónum í tengslum við kvik-
myndirnar. „Við erum að stefna að
því að taka upp mynd í fullri lengd í
sumar. Hún er búin að skrifa hand-
ritið en það verkefni er ekkert kom-
ið í gang þannig að hægt sé að fara út
í það. Svo ætlum við að halda hryll-
ingsmyndahátíð á Akranesi í haust,“
segir hann. Það verkefni fékk menn-
ingarstyrk frá Uppbyggingasjóði
Vesturlands upp á 400 þúsund krón-
ur. Ársæll segir verkefnið fara í fulla
vinnslu eftir að skólanum lýkur í vor.
„Við erum búin að hugsa dálítið lengi
um þetta og höfum verið að skoða
Skagann með þetta í huga. Akranes er
líklega fullkominn staður fyrir svona
hátíð.“ grþ
Tekur upp stuttmynd á Akranesi
Ársæll Rafn útskrifast sem leikari frá Kvikmyndaskóla Íslands í vor.
Leiklistarneminn bregður sér í hin ýmsu hlutverk.
Ársæll Rafn og Lovísa Lára tóku nýverið við menningarstyrk frá Uppbyggingar-
sjóði Vesturlands. Hér eru þau kát við afhendinguna. Frá vinstri: Ársæll, Lovísa
Lára, Rakel Óskarsdóttir og Elísabet Haraldsdóttir.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Skrifstofur Sýslumannsins á Vesturlandi
verða lokaðar mánudaginn 18. apríl 2016
Kæru viðskiptavinir,vegna starfsdags starfsmanna
Sýslumannsins á Vesturlandi verða allar skrifstofur
embættisins lokaðar mánudaginn 18. apríl 2016.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Ólafur Kristófer Ólafsson