Skessuhorn - 13.04.2016, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 201622
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
ÖLL ALMENN GARÐVINNA
• Fjarlægjum tré og kurlum
• Útvegum sand, mold og möl
• Leggjum dren- og frárennslislagnir
STYKKISHÓLMI
Sjúkraliðar - hjúkrunarnemar- almennir starfsmenn
Okkur bráðvantar sjúkraliða, hjúkrunarnema og almenna starfsmenn
til sumarafleysinga til að koma í veg fyrir lokun sjúkradeildar HVE í
Stykkishólmi í sumar.
Um er að ræða vaktavinnu með vinnuskyldu aðra hvora helgi
á tímabilinu 1. júní til 23. ágúst. Starfshlutfall og tímalengd er
samkomulagsatriði.
Hæfniskröfur
Góð íslenskukunnátta•
Jákvæðni og góð samskipthæfni•
Snyrtimennska og stundvísi•
Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2016
Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Hrafnhildi
Jónsdóttur hjúkrunardeildarstjóra sem gefur allar nánari
upplýsingar í síma 432 1220 frá kl.14-16 virka daga.
Umsóknareyðublöð er að finna á www.hve.is, senda þarf
umsóknir á netfangið hrafnhildur.jonsdottir@hve.is.
HVE er reyklaus vinnustaður.
Nánari upplýsingar um Heilbrigðisstofnun Vesturlands
má finna á www.hve.is.
Sumarafleysingar á sjúkra-
deild HVE í Stykkishólmi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Staða héraðs-
dýralæknis laus
VESTURLAND: Mat-
vælastofnun hefur auglýst
lausa til umsóknar stöðu
héraðsdýralæknis Vestur-
umdæmis. Breytingar urðu
á umdæmisskipan héraðs-
dýralækna 1. nóvember
2011 þegar umdæmum í
landinu var fækkað úr ell-
efu og hálfri stöðu í sex.
Héraðsdýralæknir í Vestur-
umdæmi frá þeim tíma hef-
ur verið Flora-Josephine
Hagen Liste. Í tilkynningu
frá Matvælastofnun seg-
ir að aðsetur héraðsdýra-
læknis innan umdæmisins
sé samkomulagsatriði milli
aðila. Um fullt starf er að
ræða og þarf umsækjandi
að geta hafið störf fljót-
lega. „Héraðsdýralæknir
ber ábyrgð á og hefur eft-
irlit með heilbrigði og vel-
ferð dýra, frumframleiðslu
matvæla, slátrun og vinnslu
dýraafurða auk sóttvarna
gegn smitsjúkdómum og
viðbrögðum við þeim í um-
dæminu. Hann ber ábyrgð
á framkvæmd opinbers eft-
irlits, skipulagi vaktþjón-
ustu dýralækna og er ábyrg-
ur fyrir rekstri umdæmis-
skrifstofunnar.“ Umsækj-
endur um stöðuna skulu
vera dýralæknar. „Reynsla
af opinberu eftirliti, stjórn-
sýslu og stjórnun er æski-
leg. Gerð er krafa um færni
til tjáningar í ræðu og riti
á íslensku og ensku ásamt
góðri almennri tölvukunn-
áttu. Öguð vinnubrögð,
góðir skipulagshæfileikar
og geta til að starfa sjálf-
stætt eru áskilin. Góð fram-
koma og lipurð í samskipt-
um er mikilvæg.“ Umsókn-
arfrestur er til og með 2.
maí næstkomandi.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
2. - 8. apríl
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 14 bátar.
Heildarlöndun: 90.424 kg.
Mestur afli: Ebbi AK:
23.794 kg í fjórum lönd-
unum.
Arnarstapi 4 bátar.
Heildarlöndun: 37.742 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
19.573 kg í tveimur lönd-
unum.
Grundarfjörður 4 bátar.
Heildarlöndun: 162.398 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
65.979 kg í einum róðri.
Ólafsvík 11 bátar.
Heildarlöndun: 261.350 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
138.011 kg í sex löndun-
um.
Rif 7 bátar.
Heildarlöndun: 371.386 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
132.430 kg í tveimur lönd-
unum.
Stykkishólmur 2 bátar.
Heildarlöndun: 7.928 kg.
Mestur afli: Fjóla SH:
4.642 kg í sex löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Tjaldur SH - RIF:
76.929 kg. 7. apríl.
2. Örvar SH - RIF:
73.264 kg. 6. apríl.
3. Hringur SH - GRU:
65.979 kg. 6. apríl.
4. Rifsnes SH - RIF:
59.483 kg. 4. apríl.
5. Tjaldur SH - RIF:
55.501 kg. 2. apríl.
Lagt hefur verið fram frumvarp
til laga á Alþingi um að umhverf-
is- og auðlindaráðherra geti með
reglugerð heimilað veiðar á álft frá
20. ágúst til 31. mars, að fengnum
tillögum Umhverfisstofnunar og
Náttúrufræðistofnunar. Slíkt yrði í
samræmi við heimildir ráðherra til
að leyfa veiðar á grágæs og heið-
argæs á sama tímabili og greint er
hér að ofan. Aðalflutningsmaður
tillögunnar er Silja Dögg Gunn-
arsdóttir en meðflutningsmenn
eru Haraldur Einarsson, Jóhanna
María Sigmundsdóttir og Vigdís
Hauksdóttir.
Í greinagerð með frumvarpinu
segir meðal annars að skemmd-
ir á túnum og ökrum af völdum
álftar hafi valdið tjóni fyrir 70 til
90 milljónir króna á árunum 2014
og 2015. Margir bændur á Suður-
og Vesturlandi eru langþreyttir á
ágangi fugla á túnum og ökrum.
Álftir og gæsir hafi eyðilagt heilu
kornakrana þegar þær safnast sam-
an á haustin og fita sig fyrir flugið
til vetrarstöðvanna.
Álft hefur verið alfriðuð á Ís-
landi í meira en heila öld, eða frá
árinu 1913. Stofninn hefur stækk-
að mikið hérlendis á síðustu 30
árum. Frá 1986 til 1995 var stofn-
stærð nokkuð stöðug, taldi 16 þús-
und fugla árið 1995 en hefur síðan
fjölgað um 2,5% á ári að meðaltali
samkvæmt talningum. Árið 2010
taldi stofninn 29 þúsund fugla.
Álftir eru friðaður víðast hvar
þar sem þær halda til í heiminum.
Sú tegund álftar sem heldur til á Ís-
landi og víða í Evrópu er tilgreind
í fyrsta viðauka svokallaðrar fugla-
tilskipunar Evrópusambandsins,
sem lítur að verndun og velferð
villtra fuglategunda. Viðaukinn
nær til tæplega 200 tegunda sem
taldar eru í sérstakri hættu. Veiði
þeirra er með öllu óheimil innan
aðildarríkja auk þess sem tryggja
þarf velferð tegundanna með sér-
stökum friðlöndum. Af þeim sök-
um hafa ýmsir bent á að fyrrgreint
frumvarp muni ekki hljóta náð fyr-
ir augum þingmanna.
kgk/Ljósm. úr safni. tfk.
Svanasöngur á þingi