Skessuhorn - 13.04.2016, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 201624
Söngkeppni framhaldsskólanna fór
fram í myndveri Sagafilm í Reykja-
vík um liðna helgi. Keppnin þótti
skemmtileg og góð og voru fulltrú-
ar þeirra skóla sem tóku þátt sér og
sínum til sóma. Nokkur nemenda-
félög höfðu þó dregið sig úr keppn-
inni vegna breytinga sem innleidd-
ar voru fyrir keppnina í ár. Helsta
breytingin á fyrirkomulagi keppn-
innar var sú að aðeins voru tólf at-
riði valin til að taka þátt í aðal-
keppninni. Aðeins einn skóli af
Vesturlandi átti fulltrúa í keppn-
inni í ár og var það Fjölbrautaskóli
Vesturlands. Sigurvegari í keppn-
inni varð hljómsveitin Náttsól úr
Menntaskólanum við Hamrahlíð
með flutningi á lagi Bjarkar Guð-
mundsdóttur, Hyperballad. Í öðru
sæti urðu þau Jóna Alla Axelsdóttir
og Ari Jónsson úr Fjölbrautaskóla
Vesturlands með lagið Not In That
Way eftir Sam Smith. Menntaskól-
inn að Laugarvatni hlaut flest at-
kvæði í símakosningu og varð í
þriðja sæti að mati dómnefndar.
Það voru þau Guðbjörg Viðja Ant-
onsdóttir, Aron Ýmir Antonsson,
Elva Rún Pétursdóttir, Guðjón
Andri Jóhannsson og Sigrún Birna
Pétursdóttir sem fluttu Queen slag-
arann Sombody to Love.
grþ
Urðu í öðru sæti í Söng-
keppni framhaldsskólanna
Jóna Alla Axelsdóttir og Ari Jónsson úr FVA urðu í öðru sæti keppninnar með
flutningi á laginu Not In That Way eftir Sam Smith. Ljósm. Sagafilm.
Nú er sumarið komið. Það var sam-
dóma álit þeirra Snæfellinga sem
fréttaritari Skessuhorns ræddi við á
förnum vegi í Ólafsvík á sunnudag-
inn. Fjöldi fólks notaði blíðviðr-
ið til gönguferða en það er jafn-
an vísbending um að sumarið sé
allavega í nánd þegar þvottaslöng-
ur eru komnar á þvottaplanið hjá
Orkunni. Var Hjördís Björnsdótt-
ir ein þeirra sem notaði tækifærið
og skolaði af bílnum sínum. Einnig
notuðu hundaeigendur tímann til
að viðra sig og hundana og að sjálf-
sögðu var komið við í sjoppunni og
keyptur ís. Formlega hefst svo sum-
arið samkvæmt almanakinu í næstu
viku, fimmtudaginn 21. apríl. af
Sammála um að sumarið sé komið
Nýverið heimsótti fimmtán manna
hópur ungmenna á vegum sam-
takanna Veraldarvinir (e. World-
wide Friends) Stykkishólm í þeim
tilgangi að kynnast ungmennum
á sama aldri. Veraldarvinir eru ís-
lensk félagasamtök með alþjóðleg-
um tengslum sem taka á móti ung-
mennum alls staðar að úr heimin-
um, ýmist til að starfa í sjálfboða-
liðavinnu eða að öðrum samfélags-
legum verkefnum. Hópurinn sem
dvaldi í Stykkishólmi eru ungling-
ar frá Belgíu á aldrinum 13 til 17
ára. „Við tökum á móti erlend-
um sjálfboðaliðum í alls kyns verk-
efni, aðallega tengd umhverfinu.
Við fáum hingað á bilinu 1.600
til 1.700 manns á ári, enda veitir
ekki af því að hugsa um umhverf-
ið,“ segir Þórarinn Ívarsson fram-
kvæmdastjóri Veraldarvina í sam-
tali við Skessuhorn. Hann segir
samtökin einnig taka á móti hóp-
um ungmenna sem komi til Íslands
til að kynnast landi og þjóð og seg-
ir hópinn sem nú kom hafa komið
í þeim erindagjörðum. „Þessi hóp-
ur var hér á vegum samtaka í Belgíu
sem kallast Mu-ze-um. Þeir hafa
komið nokkrum sinnum til Íslands
á síðustu árum. Í janúar komu þau
með stóran hóp af fólki á Snæfells-
nes og fannst svo frábært að vera
þarna fyrir vestan að þau ákváðu að
koma aftur með annan hóp núna í
lok mars,“ útskýrir hann.
Mynduðu tengsl við
önnur ungmenni
Báðir hóparnir sem dvöldu á Snæ-
fellsnesi á þessu ári komu hing-
að til að kynnast ungmennum á
sama aldri. Veraldarvinir hafa verið
í samstarfi við Evrópu unga fólks-
ins með ungmennaskipti, þar sem
íslensk ungmenni fá tækifæri til að
heimsækja önnur lönd innan Evr-
ópu og tekið er á móti erlendum
ungmennum í staðinn. „Þessi belg-
ísku samtök eru mikið í listum og
var þemað í fyrra verkefninu ein-
mitt tengt listum og hét „Elements
in time“ þar sem þau tókust á við
vatn, eld og önnur frumefni. Það
er nóg af þeim á Íslandi og það
passaði því mjög vel,“ segir Þórar-
inn. Hann segir fyrri heimsóknina
hafa verið styrkta af Evrópusam-
bandinu en ekki þá seinni. „Það var
ekki þétt dagskrá hjá þeim í þessa
átta daga sem þau dvöldu í Stykk-
ishólmi, heldur komu þau hingað
til að kynnast landi og þjóð. Þau
komu bara hingað til þess að njóta
og kynnast íslenskum ungmennum,
sem tókst og það var markmiðið
með þessu; að mynda tengsl.“ Hann
segir hópinn hafa gist á Harbo-
ur hostel og að dvölin hafi verið
einstaklega vel heppnuð. „Það var
gríðarlega vel tekið á móti þeim og
þeim fannst þetta alveg meirihátt-
ar. Þeim fannst alveg frábært að
vera þarna fyrir vestan enda voru
báðir hóparnir einstaklega heppn-
ir með veður. Þau fóru í skoðunar-
ferð kringum Nesið og fannst nátt-
úran alveg stórfengleg. Þessi sam-
tök hafa verið að senda hópa bæði
norður, austur og út um allt land en
fannst náttúran alveg standa upp úr
á nesinu. Þessir leiðbeinendur sem
voru með þeim voru að koma hing-
að í áttunda eða níunda sinn,“ seg-
ir hann og bætir því við að það hafi
ekki verið nein tilviljun að þau hafi
valið að koma svona fljótt aftur á
Snæfellsnesið.
Vilja senda sjálfboðaliða
á Vesturland
„Það sem verður síðan í framhald-
inu er að við ætlum að bjóða ung-
mennum úr Stykkishólmi og Ólafs-
vík að fara og heimsækja þessi sam-
tök í Belgíu og viðhalda þessum
tengslum sem eru komin á,“ segir
Þórarinn. Hann segir að farið verði
í þá heimsókn með haustinu og að
verkefnið verði styrkt af Evrópu-
sambandinu. „Þegar þau fara verð-
ur allur ferðakostnaður greiddur,
sem og uppihald. Það er allt greitt
af Evrópusambandinu. Við munum
auglýsa þetta verkefni betur þegar
nær dregur.“
Þórarinn segir jafnframt að fjöl-
mörg umhverfisverkefni séu fram-
undan hjá Veraldarvinum en þó sé
ekkert þeirra á Vesturlandi. „Við
hefðum gjarnan viljað fá fleiri
verkefni fyrir vestan. Við höfum
verið nokkrum sinnum með sjálf-
boðaliðaverkefni á Vesturlandi en
það er ekkert framundan. Við get-
um vel skipulagt fleiri verkefni og
myndum líka vilja senda sjálfboða-
liða á Vesturland á þessu ári.“
grþ
Ungir Veraldarvinir heimsóttu Stykkishólm
Belgíski hópurinn var einstaklega heppinn með veður í ferð sinni um Snæfellsnesið.
Belgíski hópurinn heimsótti meðal annars nemendur í 10. bekk í Grunnskólanum í
Stykkishólmi. Ljósm. Grunnskólinn í Stykkishólmi.