Skessuhorn - 13.04.2016, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2016 25
Vortónleikar Skagfirska Kammerkórsins verða í Reyholtskirkju föstudaginn 15. apríl klukkan
20:30.
Einnig mun kórinn syngja í Grundafjarðarkirkju, laugardaginn 16. apríl klukkan 14:00 og í
Stykkishólmskirkju 16. apríl klukkan 17:00.
Á efnisskránni er allt frá þjóðlögum ýmissa landa til kvikmyndatónlistar.
Stjórnandi er Helga Rós Indriðadóttir
Aðgangseyrir 2500 kr. Allir hjartanlega velkomnir
http://kammerkor.netserv.is
Skagfirski Kammerkórinn
Sumarstörf við sundlaugar
Borgarbyggðar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Starfsfólk óskast við sundlaugarnar:
í Borgarnesi, frá 30. maí til 31. ágúst
á Kleppjárnsreykjum, frá 1. júní til 15. ágúst
á Varmalandi, frá 1. júní til 15. ágúst
Helstu verkefni:
Í sundlauginni í Borgarnesi er um almenna vaktavinnu að
ræða sem skiptist í morgun-, kvöld- og dagvaktir
Á Kleppjárnsreykjum er 60% starf í boði, unnið í fimm daga
og frí í tvo daga
Á Varmalandi er um 100% starf að ræða, unnið í fimm daga
og frí í tvo daga
Í starfinu felst öryggisgæsla við sundlaug, afgreiðslustörf, aðstoð
við viðskiptavini og þrif
Hæfniskröfur:
Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
Standast hæfnispróf sundstaða
Með góða þjónustulund
Umsóknafrestur er til 18. apríl 2016
Nánari upplýsingar veitir Ingunn Jóhannesdóttir í síma 433-7140
eða á netfanginu ingunn28@borgarbyggd.is
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á
netfangið ingunn28@borgarbyggd.is
Með umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi
fyrir hæfni í starfið
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Enn kynnum við rósahafa vikunn-
ar til leiks í Skessuhorni. Eins og
kunnugt er gengst Blómasetrið -
Kaffi kyrrð í Borgarnesi fyrir vali
á einstaklingi sem þykir verðskulda
að fá rós og þakklæti frá samfé-
laginu. Tekið er á móti tilnefning-
um í Blómasetrinu. Af tæknileg-
um ástæðum féll í síðustu viku út
nafn rósahafans í vikunni sem þá
leið. Það var Unnsteinn Þorsteins-
son sjúkraflutningamaður. Í þess-
ari viku er það Ingibjörg Inga Guð-
mundsdóttir skólastjóri í Brekku-
hvammi sem fékk rós. mm
Rósahafar síðustu tveggja vikna
Unnsteinn Þorsteinsson fékk rós í næstsíðustu viku í
Vetrar- Kærleiknum. Rósina fékk hann fyrir, eins og segir í
tilnefningunni: „Hann er góður maður sem vill allt fyrir alla
gera. Gerir aldrei mannamun og allir eru jafnir í hans huga.
Sinnir vel starfi sínum sem sjúkraflutningamaður. Með hjarta
úr gulli.“
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri fékk rós þessarar
viku í Vetrar-Kærleiknum. Rósina fékk hún fyrir, eins og segir
í tilnefningunni: „Hún er jákvæð, glaðlynd, brosmild, dugleg,
fylgin sér, góðhjörtuð og þykir afar vænt um samfélagið sitt
í allri sinni mynd.“
„Nú er þó komið vor,“ varð ljós-
myndara Skessuhorns hugsað þeg-
ar hann mætti þessu gamla ökutæki
á gönguferð sinni í blíðunni í Borg-
arnesi á sunnudaginn. Þarna var á
ferð Þórarinn Jónsson frá Hamri
í Þverárhlíð, á Ferguson árgerð
1949, en Þórarinn er mikill áhuga-
og hagleiks maður um lagfæringar
og varðveislu gamalla véla og öku-
tækja.
þg
Þórarinn fagnar
vorkomunni