Skessuhorn - 13.04.2016, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2016 27
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang-
ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu-
dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að
tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta,
Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athugið að póstleggja
þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður
úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn
bókargjöf frá Skessuhorni.
Alls bárust 76 lausnir við krossgátunni í blaðinu í
síðustu viku. Lausnarorðið var: „Oft mætir prettur
pretti.“ Vinningshafi er: Sólrún B Guðbjartsdóttir,
Fellasneið 10, 350 Grundarfirði.
Óþarft
Væta
Píla
Nefnd
Værðar-
hljóð
Brellur
Bók
Klampi
Út-
jaska
Ötul
Full
Svar
Spræk-
ur
Skoða
Púkar
Öræfi
Voði
Vangi
Bara
Pen
Örn
2
Getur
Skaut
Á fæti
Óðagot
Oftaka
Bað
Órar
Mjór
Samtök
Félagi
Fiskur
12 Sam-
hljóðar
7 Tenging
Ofn
Gistir
Frekja
Þófinn
Seðill
9
Þaut
Úrill
Smálest
Tangi
Svall
Angan
Skjól
3 Riðar
Mislitt
Blaður
Öfug
röð
Göng
Gaphús
Álasa
Geisla-
baugur
Sífellt
Snagi
Axla-
band
1 Étandi
For
Fugl
Sprikla
4
Glettist
Greinar-
merki
Gufa
Titill
Depill
Kvað
Kantur
6 Ótti
Skinn
Beita
5
Muldra
Væl
Lína
Hlaup
Þrep
Röð
Rödd
Rögg-
semi
Áhald
Stafur
Tók
Óreiða
Keyrði
Fisk
Vökull
Fæða
Hæð
Sýni
8
1 2 3 4 5 6 7 8 9
FAB, félag aldraðra í Borgarfjarð-
ardölum var stofnað 24. mars 1991
og fagnar því 25 ára afmæli um
þessar mundir.
Þungamiðja starfsins er að standa
fyrir félagsstarfsemi eldri borgara
með opnu húsi í félagsheimilinu
Brún eftir hádegi á miðvikudögum
frá september til maí. Þar er í boði
ýmis dægrastytting svo sem spil,
boccia, spjall, upplestur og aðgang-
ur að kaffiborði við vægu verði.
Iðulega er svo bætt í með öðrum
atriðum eins og líkamsæfingum
undir leiðsögn, söng og hljóðfæra-
slætti eða fyrirlestrum til fróðleiks
og skemmtunar. Þá er öðru hverju
efnt til sérstakra viðburða eins og
sviðamessu, sérstaks jólafundar
með getraun og þorrablóts.
Á hverju sumri stendur ferða-
nefnd félagsins fyrir hópferð og hef-
ur víða verið farið. Í sumar var farin
3ja daga ferð um Vestfirði með eft-
irminnilegri leiðsögn Hauks Júlíus-
sonar, en hann er af Rauðasandi og
hafsjór fróðleiks um menn og mál-
efni sem alkunna er. Í sumar er fyr-
irhuguð ferð um Skagafjörð. Þá efn-
ir ferðanefnd iðulega til styttri ferða,
t.d. var farin haustlitaferð um Borg-
arfjörð í október síðastliðnum. Einn-
ig er gjarna efnt til menningarferða
í nálæg byggðarlög eins og Reykja-
víkurhrepp o.fl. Nú er t.d. boðið
upp á hópferð á tónleika Álftagerð-
isbræðra í Hörpunni 17. apríl.
Þá er árlega í boði jólahlaðborð
með gistingu á Hótel Örk í Hvera-
gerði og þátttaka í sæluviku eldri
borgara á sama stað á útmánuðum
ár hvert, en hvort tveggja hefur ver-
ið vinsælt hjá félagsmönnum.
Fljótlega eftir stofnun félagsins
var vakið máls á nauðsyn þess að
safna og skrá örnefni á svæðinu. Þó
hægt gengi framanaf er nú svo kom-
ið að það hillir undir lok þessa verk-
efnis, sem víða hefur vakið athygli
og aðdáun og enda hlotið ýmsar
viðurkenningar. Hafa örnefni flestra
jarðanna nú verið skráð í korta-
grunn Landmælinga Íslands, sem
aðgengilegur er á netinu. Þar hefur
verið bjargað mikilvægri þekkingu
sem núlifandi og komandi kynslóðir
munu njóta góðs af.
Rétt til félagsaðildar hafa þeir
sem eru orðnir 60 ára svo og mak-
ar þeirra. Þrátt fyrir nafn félagsins
er félagsaðild ekki einskorðuð við
Borgarfjarðardali enda eru nokkrir
félagsmenn búsettir annars staðar.
Af tilefni afmælisins viljum við
benda áhugasömum á að gerast fé-
lagar. Það má gera með því að
mæta í Brún eftir hádegi á miðviku-
dögum eða hafa samband við for-
mann félagsins, Svein Hallgríms-
son, Vatnshömrum, (vatnshamrar@
vesturland.is) eða ritara, Önnu Hall-
grímsdóttur, Hamri (hamar@vest-
urland.is).
Guðmundur Þorsteinsson.
FAB - félag aldraðra í
Borgarfjarðardölum 25 ára
Pennagrein
Emma Rakel Björnsdóttir hefur starf-
að í mörg ár hjá Fjöliðjunni á Akra-
nesi. Þar sinnir hún ýmsum verkefn-
um líkt og aðrir starfsmenn. Verk-
efnin geta verið að líma á vegastikur,
pakka Prins póló súkkulaði í kassa,
hjálpa til og margt fleira. Emma
Rakel ákvað að hefja útgáfu á frétta-
blaðinu Fjölfréttum fyrir um þrem-
ur árum. Fjölfréttir koma alla jafn-
an út einu sinni í mánuði í tveimur
eintökum og þar birtir Emma frétt-
ir af ýmsum málefnum sem henni
eru hugleikin. Meðal vinsælla efnis-
taka eru listi yfir afmælisdaga starfs-
fólks Fjöliðjunnar, hvað er framund-
an hjá íþróttafélaginu Þjóti, ÍA frétt-
ir, uppskriftir og margt fleira. Þá
birtir Emma einnig myndir frá ýms-
um viðburðum sem starfsfólk Fjöl-
iðjunnar hefur farið á. Aðspurð um
hvers vegna hún ákvað að gefa út
Fjölfréttir segir hún: „Mig langaði
bara að gera fréttablað.“ Skemmti-
legast þykir henni þegar aðrir eru
duglegir að koma með hugmyndir
að efni, enda er stundum erfitt að rit-
stýra blaði og koma með allar hug-
myndir sjálfur. Emma Rakel kom í
starfskynningu á Skessuhorn síðast-
liðinn föstudag. Hún hefur mikinn
áhuga á því að skrifa fréttir og óskaði
eftir að fá að heimsækja ritstjórnina á
Fyrirmyndardeginum.
Skagamaður í húð og hár
Emma Rakel hefur nóg að gera í sín-
um frítíma. Hún æfir bæði sund og
boccia með Þjóti og hefur gaman
af. En hvað finnst henni skemmti-
legast? „Það er svo margt,“ seg-
ir hún og hlær. „Það er erfitt að
segja. Kannski að vera í tölvunni,
fara á sund- og bocciaæfingar, fara
á mót bæði í boccia og í sundi. Og
að horfa á sjónvarp og slappa af eft-
ir æfingu eða vinnuna,“ heldur hún
áfram. Hún fylgist vel með fréttum
sjálf og skoðar mikið fréttamiðla á
vefnum, svo sem skessuhorn.is, mbl.
is og fleiri. Þá er hún dugleg að fylgj-
ast með á samfélagsmiðlinum Fa-
cebook og stofnaði nýverið hóp þar
sem hún kallar „Fréttablaðið henn-
ar Emmu.“ Þar setur hún inn svip-
aðar fréttir og myndir og birtar eru
í Fjölfréttum. Í hópnum eru tæplega
30 meðlimir sem fylgjast með frétta-
flutningi Emmu. „Ég hef gaman af
alls konar efni, íþróttum og þá sér-
staklega gengi ÍA og Þjóts í íþrótt-
um, enda er ég Skagamaður í húð og
hár,“ segir Emma.
Hún segir að stundum taki lang-
an tíma að búa til blað í Fjölfrétt-
um. „Stundum hef ég fáar hug-
myndir en svo fæ ég líka hugmynd-
ir frá hinum og þá gengur þetta bet-
ur. Alltaf á miðvikudögum förum ég
og Svana eftir hádegi í einn tíma að
finna fréttir.“ Emma prentar út blað-
ið í vinnunni og setur eintökin í tvær
möppur sem geymdar eru í Fjöl-
iðjunni fyrir alla til að lesa og fletta
blaðinu. „Síðan deili ég blaðinu
líka í hópnum Fréttablaðið hennar
Emmu,“ útskýrir hún. Emma seg-
ir samstarfsfólk hennar ánægt með
blaðið og flestir fletta því þegar það
kemur út.
grþ/erb
Emma Rakel er
ritstjóri Fjölfrétta
Emma Rakel kom í starfskynningu á Skessuhorn sl. föstudag. Hér er hún með
möppu þar sem hún geymir eldri eintök Fjölfrétta.
Síðastliðinn föstudag opnaði Arion
banki í Borgarnesi afgreiðslu í björtu
og fallegu rými eftir endurgerð þess
á annarri hæð í húsi sínu við Digra-
nesgötu í Borgarnesi. Á neðstu hæð
hússins er nú byrjað að innrétta fyrir
verslun sem opnuð verður um næstu
mánaðamót. Á efstu hæð hússins
verður síðar í vor opnaður veitinga-
staður með glæsilegu útsýni. Búið er
að gjörbreyta skipulagi bankans inn-
anhúss til að bankastarfsemin rúm-
ist öll á annarri hæð hússins. Meðal
annars hafa verið sett upp afgreiðsla
og litlar heimsóknarskrifstofur þar
sem starfsmenn geta tekið á móti
viðskiptavinum og haldið fundi með
þeim. Skrifstofur þessar hafa fengið
nöfn fallegra fjalla í héraði, svo sem
Baula, Ok, Eldborg og Skessuhorn.
Fjöldi fólks lagði leið sína í bankann
á föstudaginn enda boðið upp á kaffi
og meðlæti í tilefni dagsins.
mm
Arion banki í bjart
og hlýlegt húsnæði
Steinunn Guðmundsdóttir þjónustustjóri, Bernhard Þór Bernhardsson svæðis-
stjóri og Eiríkur J Ingólfsson verktaki sem sá um breytingar á húsinu.