Skessuhorn - 13.04.2016, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 201630
„Hvað er uppáhalds gosið þitt?“
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi. Blaðamaður og
ljósmyndari var Emma Rakel
Björnsdóttir starfsnemi)
Gilmar Þór Benediktsson:
„Kók.“
Gunnar Bragi Jónasson:
„Ég verð eiginlega að segja
Coca Cola.“
Þröstur Ólafsson:
„Það er gosið á Fimmvörðu-
hálsi.“
Aldís Inga Stefánsdóttir:
„Kók.“
Helga Dögg Lárusdóttir:
„Egils appelsín.“
Eins og greint var frá í síðasta tölu-
blaði verður á næstu vikum rætt við
forsvarsmenn golfklúbba á Vest-
urlandi og staðan tekin á völlum í
landsfjórðungnum. Í liðinni viku
hitti blaðamaður Skessuhorns að
máli Jóhannes Ármannsson, fram-
kvæmdastjóra Golfklúbbs Borgar-
ness og vallarstjóra á Hamarsvelli.
Rætt var bæði um völl og klúbb. Jó-
hannes segir Hamarsvöll koma vel
undan vetri. „Völlurinn lítur rosa-
lega vel út miðað það sem við höf-
um kynnst á svipuðum tíma und-
anfarin ár, sérstaklega ef miðað er
við til dæmis vorið 2014,“ segir Jó-
hannes. „Það er búið að bera fyrstu
áburðargjöfina á flatirnar. Nú bíð-
um við bara eftir að hlýni í veðri og
gróðurinn taki aðeins við sér,“ segir
hann og bætir því við að enn sé ör-
lítið frost í Hamarsvelli. „Þó að hlýtt
sé yfir daginn þá frystir enn á nótt-
unni þannig að það er ennþá smá
frost í vellinum. En apríl er nú bara
nýbyrjaður.“
Staðsetning Hamarsvallar er að
vissu leyti einstök, en hann er eini
golfvöllur landsins sem er með hót-
el á svæðinu. „Þessi staður, Ham-
arslandið, hefur mikið aðdráttarafl.
Hingað koma yfir 30 þúsund gest-
ir á hverju ári á hótelið eða í golf og
sumir gera hvort tveggja. Við höfum
mikið samstarf við hótelið, sem hef-
ur gengið mjög vel,“ segir Jóhann-
es.
Eins og Skessuhorn hefur greint
frá er þessi misserin verið að stækka
hótelið og Jóhannes segir að sam-
hliða þeirri stækkun hafi verið ráðist
í breytingar á Hamarsvelli. Ná þær
til 8. holu vallarins en teigar braut-
arinnar verða færður lengra til aust-
urs, fjær hótelinu. „Í fyrsta lagi verða
gerð ný teigasett. Teigarnir verða
stórir og vel uppbyggðir, þannig að
kylfingar koma til með að sjá flötina
frá teig, ólíkt því sem er í dag,“ segir
hann. „Í haust munum við svo ráð-
ast í að breyta umhverfi flatarinnar.
Færa þarf mikið af háum öspum og
þannig munu kylfingar sjá enn bet-
ur frá teig,“ bætir hann við. Einn-
ig munu gestir hótelsins geta fylgst
með kylfingum spila út um glugga
hótelsins. „Við fengum Edwin Ro-
ald golfvallararkitekt til að vinna
þetta verkefni með okkur og hann
hefur verið okkur innan handar í
hugmyndavinnunni.“
Skuldlaus klúbbur
Jóhannes greinir ánægður frá því
að rekstur klúbbsins sé kominn á
réttan kjöl, eftir að samkomulag
náðist við Arion banka um skuld-
ir klúbbsins. „Klúbburinn er nú
skuldlaus og rekstrarumhverfið
gjörbreytt,“ segir hann. „Rekstur-
inn kemur engu að síður til með
að verða nokkuð strembinn. Í
fyrra var framkvæmdasamningur
klúbbsins við Borgarbyggð vegna
stækkunar vallarins fullnustaður.
Var það hluti af samkomulaginu
við bankann sem gerði okkur kleift
að greiða niður skuldir klúbbsins,“
bætir hann við.
Einnig fræðir Jóhannes blaða-
mann um að þessa dagana séu for-
svarsmenn klúbbsins í viðræðum
við Borgarbyggð um rekstrarstyrk.
„Við höfum aldrei fengið bein-
an rekstrarstyrk eins og algengt er
með önnur íþróttafélög og tíðk-
ast hjá þeim klúbbum sem við ber-
um okkur saman við. Þeir fá all-
ir styrki frá sínum sveitarfélögum.
Okkur finnst við ekki alveg sitja við
sama borð hvað þetta varðar,“ seg-
ir Jóhannes. „En það er vonandi að
stjórnendur sveitarfélagsins sjái sér
fært að koma að starfi okkar með
þessum hætti,“ bætir hann við.
Óreyndum kylfingum
boðin kennsla
Golfklúbbur Borgarness státar auk
Hamarsvallar af veglegri 300 fer-
metra inniaðstaða í Brákarey með
púttvelli og golfhermi. „Sú að-
staða er mikið notuð. Þar æfa börn
og unglingar allan ársins hring og
eldri borgarar hafa verið duglegir
að hittast og spila þar í vetur,“ seg-
ir Jóhannes. „Við höfum haldið alls
konar innanfélagsmót í golfherm-
inum og eins höfum við stundum
hist þar klúbbfélagar og bara horft
saman á enska boltann eða golf og
tekið því rólega í góðum félags-
skap,“ bætir hann við.
Félagar í Golfklúbbi Borgar-
ness eru um 150 talsins auk barna-
og unglinga. Hefur félagafjöldinn
haldist nokkuð stöðugur undan-
farin ár að sögn Jóhannesar. „En
alltaf er að fjölga í hópi yngri iðk-
enda, sem er lykillinn að nýliðun
í klúbbnum. Golfkennarinn okk-
ar, Kristinn Bjarnason PGA kenn-
ari, sér um barna- og unglinga-
starfið. Hefur það gefið góða raun
og ég vona að það komi til með að
eflast enn frekar,“ segir Jóhann-
es. „Einnig er öllum nýjum félags-
mönnum, sem eru kannski að stíga
sín fyrstu skref í golfinu, boðið upp
á kennslu hjá Kristni í undirstöðu-
atriðum golfíþróttarinnar.“
Á vordögum ætla forsvarsmenn
klúbbsins með aðstoð dyggra
félagsmanna að ráðast í smá átak
til að freista þess að fjölga félags-
mönnum úr heimasveitarfélaginu
Borgarbyggð. „Við ætlum að bjóða
fólki að koma til okkar, skoða völl-
inn og aðstöðuna saman og kynna
þeim okkar félagsstarf,“ segir Jó-
hannes.
Golf á Unglinga-
landsmóti
Framundan á komandi sumri er
að sögn Jóhannesar nokkuð hefð-
bundið félagsstarf með opn-
um mótum og innanfélagsmót-
um, auk þess sem margir efnileg-
ir kylfingar munu leika á Ham-
arsvelli um verslunarmannahelg-
ina. „Það verður keppt í golfi á
Unglingalandsmótinu. Keppni
stendur yfir tvo daga í sex flokk-
um. Við stefnum að því að keppt
verði í golfi að morgni fimmtudags
og föstudags, svo keppnin stangist
sem minnst á við keppni í öðrum
greinum,“ segir Jóhannes.
kgk
Ráðist hefur verið í breytingar á Hamarsvelli
Jóhannes Ármannsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness og vallarstjóri
á Hamarsvelli.
Breytingar standa yfir á teigum 8. holu Hamarsvallar. Teigarnir hafa verið færðir
lengra til austurs og verða bæði stórir og uppbyggðir.
Ljósm. Golfklúbbur Borgarness.
Laugardaginn 2. apríl síðastlið-
inn fór fram Íslandsmeistaramót-
ið í bekkpressu. Kraftlyftinga-
félag Akraness sendi þrjá keppend-
ur til þátttöku á mótinu. Lára Bo-
gey Finnbogadóttir keppti í +84
kg flokki og lyfti 120 kg, 125 kg
og mest 130 kg. Allar voru lyfturn-
ar gildar og skiluðu þær Láru öðru
sæti í mótinu.
Steinunn Guðmundsdótt-
ir keppti í -74 kg flokki. Náði hún
einni gildri lyftu, 85 kg og hlaut
hún gullverðlaun fyrir vikið. Ár-
angur Steinunnar og Láru skilaði
Kraftlyftingafélagi Akraness enn
fremur sigri í stigakeppni kvenna.
Einar Örn Guðnason keppti í
-105 kg flokki og náði einni gildri
lyftu. Upp fóru 235 kg og hlaut
hann gullverðlaun fyrir þann ár-
angur.
Klassísk bekkpressa
Á sunnudeginum var haldið Ís-
landsmeistaramótið í klassískri
bekkpressu, en þar er lyft án
stuðningsbeltis eða annars búnað-
ar. Kraftlyftingafélag Akraness átti
tvo keppendur á því móti. Áður-
nefndur Einar Örn Guðnason
keppti í -105 kg flokki. Lyfti hann
fyrst 175kg og næst 184kg og setti
þar með nýtt Íslandsmet. Metinu
hélt hann þó ekki lengi því kepp-
andi frá Gróttu bætti það skömmu
síðar. Einar reyndi því næst við
192,5 kg en fékk lyftuna ekki gilda
og varð að sætta sig við annað sæt-
ið.
Svavar Örn Sigurðsson keppti í
-74 kg flokki og lyfti 115 kg nokk-
uð auðveldlega en reyndist það
eina gilda lyftan hans. Hann komst
ekki á verðlaunapall en engu að
síður góður árangur hjá Svavari
sem er aðeins 16 ára gamall og var
að keppa á sínu fyrsta kraftlyft-
ingamóti. Ljóst er að þar fer efni-
legur ungur íþróttamaður.
kgk/sg
Kraftlyftingafólk af Akranesi
gerði það gott í bekkpressu
Keppendur Kraftlyftingafélags Akraness öttu kappi í bekkpressu og klassískri
bekkpressu fyrstu helgi mánaðarins. F.v. Lára Bogey Finnbogadóttir, Steinunn
Guðmundsdóttir, Svavar Örn Sigurðsson og Einar Örn Guðnason.
KFÍA hefur sam-
ið um að hinn tví-
tugi sóknarmað-
ur Martin Hum-
mervoll komi til
láns frá Viking
Stavanger og spili
með meistara-
flokki félagsins
í sumar. Mart-
in lék með Kefla-
vík seinni hluta
sumarsins í fyrra
í Pepsídeildinni
og lék þá níu leiki
og skoraði þrjú
mörk. Gunnlaugur Jónsson þjálf-
ari er afar ánægður með liðsstyrkinn.
„Martin er góður sóknarmaður og
verður góð viðbót við hópinn okkar.
Hann þekkir íslenskar aðstæður, sem
er kostur, og við höfum fengið góð
meðmæli með honum,“ segir Gunn-
laugur jafnframt.
Meistaraflokkur karla hjá ÍA var í æf-
ingaferð í Farum í Danmörku í síð-
ustu viku. Martin hitti hópinn á
miðvikudaginn og var meðfylgjandi
mynd tekin af honum eftir æfingu
liðsins á aðalvelli úrvalsdeildarliðsins
Nordsjælland. mm
Martin Hummervoll
að láni til ÍA
Norðmaðurinn
Martin Hummer-
voll er genginn til
liðs við ÍA.
Ljósm. hi.