Skessuhorn - 13.04.2016, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2016 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skallagrímur tryggði sér á föstudags-
kvöldið í fyrsta skipti í sögunni sæti
í Dominos deild kvenna með sigri á
KR í Reykjavík. Sigra þurfti tvo leiki
til að tryggja sæti í deildinni. Gest-
irnir úr Borgarnesi komu ákveðnari
til leiks á föstudaginn og náðu fjótt
átta stiga forystu. KR var ekki á þeim
buxunum að gefa Skallagrími auð-
veldan leik og héldu muninum í 3-6
stigum út fjórðunginn en staðan að
honum loknum var 16-22 Skalla-
grími í vil. Í öðrum leikhluta tóku
Skallagrímskonur völdin sóknarlega
og léku við hvern sinn fingur. Stað-
an þegar haldið var til hálfleiks 29-41
fyrir Skallagrími. Gestirnir héldu
áfram að leiða en KR voru alltaf í
skugganum á þeim og var munurinn
um 10 stig allan þriðja leikhlutann.
Þegar fjórði fjórðungur hófst var
staðan 41-56 fyrir gestina og þurfti
nokkuð til að KR gæti snúið leiknum
við. Þær fóru þó allnærri því í síðasta
fjórðungi þegar gestirnir áttu dapr-
an leik um tíma. Þegar munurinn var
kominn niður í eitt stig tóku gestirn-
ir þó á sig rögg og kláruðu leikinn.
Lokastaðan 56-67 fyrir Skallagrím
og seturéttur í Dominos deildinni
staðreynd.
Hjá Skallagrími var Erikka Banks
stigahæst með 17 stig, 23 fráköst
og var frábær í leiknum. Einnig
var Kristrún Sigurjónsdóttir mikil-
væg en auk þess að setja 17 stig vóg
reynsla hennar og yfirvegun þungt
í lok leiksins þegar nærri lá að KR-
ingar næðu að vinna niður forskotið.
Það gerðist þó ekki.
Baráttan og viljinn var bersýnilega
sterkari hjá Skallagrími sem vann
flest nágvígi í leiknum á föstudag-
inn. Voru Borgnesingar einbeittari
heilt yfir og var spilamennska þeirra
frábær í leiknum ekki síst sóknarlega
þar sem liðið var frumlegt í að finna
lausnir og var boltahreyfingin með
ágætum. Metnaður Skallagríms fyrir
kvennakörfunni er mikill í ár og var
markmiðið ekkert annað en að kom-
ast upp á meðal þeirra bestu. Það
hefur nú tekist.
Vel var tekið á móti Skallagríms-
konum við komuna í Borgarnes á
föstudagskvöldið. Hópur fólks mætti
við Olís og flugeldum var skotið á
loft. mm
Kvennalið Skallagríms komið
í úrvalsdeild í körfunni
Síðastliðinn fimmtudag tók ÍA á móti
Fjölni í fjórða leik liðanna í úrslita-
keppni 1. deildar karla. Fyrir leik-
inn leiddi Fjölnir með tveimur sigr-
um gegn einum. Þeir gátu því tryggt
sér sigur í viðureigninni og það gerðu
þeir, eftir spennuþrungnar lokamín-
útur. Leikurinn fór hægt af stað og
liðin skiptust á að skora. En um miðj-
an upphafsleikhlutann tók Fjöln-
ir góðan sprett á meðan Skagamenn
hittu illa. Heimamenn skoruðu að-
eins ellefu stig í fyrsta leikhluta en
Fjölnir sjö stigum betur. Leikmenn
ÍA voru þó hvergi af baki dottnir. Þeir
bættu leik sinn umtalsvert en áfram
leiddu gestirnir. Með mikilli baráttu
og þrautseigju náðu Skagamenn að
jafna fyrir leikhléið, 38-38.
Síðari hálfleikur var jafn og spenn-
andi framan af og leikurinn í járn-
um þar til Fjölnir náði góðum kafla
og átta stiga forskoti í lok þriðja leik-
hluta. Skagamenn börðust áfram í
upphafi lokafjórðungsins, minnk-
uðu muninn í tvö stig og stemningin
orðin rafmögnuð í íþróttahúsinu við
Vesturgötu. Áhorfendur voru marg-
ir hverjir risnir úr sætum og fylgd-
ust spenntir með. Skagamenn reyndu
hvað þeir gátu að jafna leika en alltaf
vantaði herslumuninn. Fjölnir hafði
að lokum fimm stiga sigur, 77-72.
Sean Tate var atkvæðamestur
Skagamanna með 28 stig og sex frá-
köst. Næstur honum kom Jón Orri
Kristjánsson með ellefu af bæði stig-
um og fráköstum en aðrir höfðu
minna.
Skagamenn hafa lokið þátttöku
sinni í Íslandsmótinu í körfuknattleik
þennan veturinn og ljóst að liðið mun
leika áfram í 1. deild að ári.
kgk
Skagamenn hafa lokið
keppni í Íslandsmótinu
Jón Orri Kristjánsson og félagar hans
í ÍA höfðu ekki erindi sem erfiði í
viðureigninni gegn Fjölni. Skagamenn
leika því aftur í 1. deild að ári.
Ljósm. jho.
Eftir að hafa lent 2-0 und-
ir í undanúrslitaviðureign-
inni gegn Val sigraði kar-
lalið Skallagríms næstu tvo
leiki og jafnaði. Því þurfti
að grípa til oddaleiks til að
knýja fram úrslit í rimmunni.
Var hann leikinn í Valsheim-
ilinu á sunnudagskvöld-
ið. Þar gerðu Skallagríms-
menn sér lítið fyrir og unnu
og tryggðu þeir sér þar með
sæti í úrslitaviðureigninni
gegn Fjölni. Borgnesing-
ar sýndu því alveg ótrúleg-
an karakter og engu líkara en
orðið hafi viðhorfsbreyting
eftir að hafa lent 2-0 undir í
viðureigninni.
Bæði lið mættu ákveðin til
leiks á sunnudaginn, beittu
hápressu og leikurinn var
hraður og jafn. Um miðjan
annan leikhluta náðu Skalla-
grímsmenn góðum kafla
og höfðu níu stiga forystu
í hálfleik, 48-39. Valsmenn
náðu örlítið að koma til baka
í upphafi síðari hálfleiks en
nokkurs óöryggis gætti í sóknarleik
beggja liða. Valur minnkaði mun-
inn í fimm stig áður en Skallagríms-
menn tóku við sér að nýju og náðu
tólf stiga forskoti fyrir lokafjórð-
unginn. Valsmenn reyndu hvað þeir
gátu að komast inn í leikinn
að nýju í upphafi fjórða leik-
hluta en höfðu ekki erindi
sem erfiði. Þeir hittu illa og
virtist farið að draga örlítið af
þeim. Þeir náðu þó að minnka
muninn í þrjú stig á lokamín-
útunni en það var um seinan.
Skallagrímsmenn voru yfir-
vegaðir á lokasekúndunm og
sigldu sigrinum heim, 82-85.
J.R. Cadot fór mikinn í
leiknum og daðraði við þrenn-
una. Hann skoraði 27 stig, tók
23 fráköst og gaf sjö stoðsend-
ingar. Næstur honum kom
Sigtryggur Arnar Björns-
son með 23 stig. Hafþór Ingi
Gunnarsson og Hamid Dicko
gerðu níu stig hvor.
Sigur Skallagríms tryggði
þeim sæti í úrslitaviðureign-
inni gegn Fjölni. Þar er leik-
ið um laust sæti í úrvals-
deild og þarf þrjá sigra til að
vinna. Fyrsti leikur þeirrar
viðureignar fer fram á morg-
un, fimmtudaginn 14. apríl
í Grafarvogi, áður en lið-
in mætast öðru sinni í Borgarnesi á
sunnudaginn.
kgk
J.R. Cadot var afar drjúgur í undanúrslitaviðureigninni
gegn Val. Ljósm. Skallagrímur/Ómar Örn.
Skallagrímsmenn komnir í úrslitaviðureignina
Snæfell tryggði sér á þriðjudags-
kvöldið í liðinni viku sæti í úrslita-
viðureigninni um Íslandsmeistara-
titilinn í körfuknattleik eftir 78-71
sigur á Val í tvíframlengdum leik.
Valskonur byrjuðu leikinn mjög vel
og gerðu heimaliðinu erfitt fyrir
með sterkri vörn og góðu boltaflæði
í sókninni. Snæfellskonur tóku við
sér um miðjan upphafsfjórðunginn,
voru yfirvegaðri í sínum aðgerðum
á báðum endum vallarins og náðu
forystunni undir lok leikhlutans.
Við upphaf annars fjórðungs var
sem Snæfell ætlaði að kafsigla gest-
ina en Valskonur voru ekki tilbúnar
að láta slíkt yfir sig ganga. Þær
svöruðu með þriggja stiga körfum
og héldu leiknum spennandi áfram.
Snæfellskonur luku fyrri hálfleikn-
um með góðum kafla og leiddu
með átta stigum í hléinu, 39-31.
Varnarleikur var í fyrirrúmi í leik
beggja liða framan af þriðja leik-
hluta. Þegar hann var hálfnaður
höfðu liðin aðeins skorað sex stig til
samans. Undir lok leikhlutans tók
við skotsýning frá þriggja stiga lín-
unni þar sem Valur náði að minnka
muninn í þrjú stig fyrir lokafjórð-
unginn. Snæfell jók muninn með
fyrstu körfu fjórðungsins og skellti
svo í lás í vörninni næstu mínúturn-
ar. Um miðjan leikhlutann minnk-
uðu Valskonur muninn og upp-
hófust æsispennandi lokamínútur
þar sem liðin fylgdust að hvert fót-
mál. Þegar þrjár sekúndur voru eft-
ir jafnaði Valur leikinn með þriggja
stiga körfu og ljóst að leika þyrfti
til þrautar.
Þreytumerki voru á báðum lið-
um í framlengingunni og áttu þau
erfitt með að sækja af fullum krafti.
Stigin hlóðust því ekki beint upp og
lítið var skorað í framlengingunni.
Þegar henni lauk var staðan enn
jöfn, 69-69 og enn þurfti að bæta
við leikinn. Mikil spenna var í síðari
hluta framlengingarinnar og áhorf-
endur í Stykkishólmi risnir úr sæt-
um. Snæfell skoraði þriggja stiga
körfu á síðustu mínútu leiksins og
veittu Val þar með náðarhöggið.
Snæfell bætti nokkrum stigum við
á lokasekúndunum og vann að lok-
um sjö stiga sigur, 78-71 í ótrúleg-
um leik í Stykkishólmi.
Bryndís Guðmundsdóttir skor-
aði 22 stig og tók 14 fráköst í leikn-
um og Haiden Palmer daðraði við
þrennuna. Hún skoraði 20 stig, tók
13 fráköst og gaf átta stoðsending-
ar. Alda Leif Jónsdóttir var með
15 stig og níu fráköst og Berglind
Gunnarsdóttir ellefu stig, átta frá-
köst og fimm stoðsendingar.
Snæfellskonur eru með komnar í
úrslit þriðja árið í röð þar sem þær
eiga Íslandsmeistaratitil að verja.
Það verða Haukar sem keppa við
Snæfell og fer fyrsti leikurinn fram
laugardaginn 16. apríl í Valsheim-
ilinu. Fyrsti heimaleikurinn verður
mánudaginn 18. apríl.
kgk
Snæfellskonur í úrslit þriðja árið í röð
Berglind Gunnarsdóttir skilaði sínu þegar Snæfellskonur tryggðu sér sæti í úr-
slitaviðureigninni um Íslandsmeistaratitilinn eftir tvíframlengdan leik gegn Val.
Ljósm. sá.