Skessuhorn - 20.07.2016, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 29. tbl. 19. árg. 20. júlí 2016 - kr. 750 í lausasölu
Við viljum hafa
pláss fyrir allt
Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun
bilið í bílakaupunum.
Kynntu þér kjörin og ólíkar leiðir á arionbanki.is
Fæst án lyfseðils
LYFIS
Ú
T
S
A
L
A
1Kalmansvöllum
Skagamaðurinn Garðar Gunnlaugsson skoraði sitt tíunda mark
í úrvalsdeild karla í sumar beint úr aukaspyrnu í leik ÍA og Vals
sem fram fór á Akranesvelli á sunnudag. Varð Garðar þar með
fyrsti leikmaðurinn í 18 ár til að skora tíu mörk í fyrri umferð efstu
deildar karla í knattspyrnu. Síðastur til að skora tíu mörk eða fleiri
í fyrri umferð var Steingrímur Jóhannesson, sem skoraði ellefu fyrir
ÍBV árið 1998 og varð markakóngur með 16 mörk. Þar á undan var
það Skagamaðurinn Matthías Hallgrímsson sem skoraði 10 mörk
fyrir ÍA í fyrri umferð efstu deildar árið 1978. Hann bætti aftur á
móti aðeins einu marki við á síðari hluta mótsins. Ástæðan er sú
að fram á sjónarsviðið steig ungur og efnilegur leikmaður, Pétur
Pétursson, sem blómstraði á síðari hluta tímabilsins. Tók hann við
kefli markaskorara Skagamanna það árið. Eftir sex mörk í fyrri
umferðinni skoraði Pétur hvorki fleiri né færri en 13 í þeirri seinni
og varð markakóngur með 19 mörk. Það met stendur enn. Deilir
Pétur því með Guðmundi Torfasyni sem skoraði 19 mörk fyrir Fram
árið 1986, Þórði Guðjónssyni sem gerði slíkt hið sama fyrir ÍA árið
1993 og Tryggva Guðmundssyni, ÍBV 1997. Enginn methafanna
fjögurra hafði skorað tíu mörk þegar mótið var hálfnað líkt og
Garðar hefur gert nú. Þess skal þó getið að methafarnir fjórir
kepptu í tíu liða deild og skoruðu mörkin 19 því í 18 leikjum. Nú eru
12 lið í efstu deild karla og hafa leikmenn því 22 leiki til að bæta
metið.
kgk/ Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.
Íslandsmót yngri flokka í hestaí-
þróttum fór fram í Borgarnesi frá
fimmtudegi og til sunnudags. Veðr-
ið á mótinu var prýðisgott og mót-
ið heppnaðist vel. Á sjötta hundrað
skráningar voru á mótið og glæsi-
legar sýningar. Meðfylgjandi er
mynd af þremur efstu í fimi ung-
menna, en helstu úrslit mótsins má
finna á bls. 22-23. Ljósm. iss.
Keppt í hestaíþróttum
Það þykir tíðindum sæta í golfinu
þegar kylfingur fer holu í höggi.
Skyldi engan undra, enda líkurnar
á holu í höggi metnar u.þ.b. 12.500
á móti einum hjá hinum almenna
kylfingi og 2.500 á móti einum hjá
atvinnukylfingum.
Því má kalla það ótrúlegt að það
sem af er júlímánuði hafi þrír kylf-
ingar farið holu í höggi á Garða-
velli á Akranesi. Ellert Ingvarsson
úr Golfklúbbnum Leyni varð fyrst-
ur þegar hann fékk ás á þriðju holu
2. júlí síðastliðinn. Þá fóru tveir
kylfingar holu í höggi á sömu braut
á Íslandsmóti eldri kylfinga um
liðna helgi. Það voru þeir Ásbjörn
Þ. Björgvinsson og Lárus Sigvalda-
son, báðir úr Golfklúbbi Mosfells-
bæjar. Þar að auki greindi Skaga-
maðurinn Vilhjálmur Birgisson frá
því fyrr í sumar að hann hefði leik-
ið holu í höggi á Garðavelli en tók
skýrt fram að hann hefði verið einn
á ferð og hefði því engan til vitnis
um afrekið. kgk
Þrjár holur í höggi í júlí
Ásbjörn Þ. Björg-
vinsson úr GM,
einn þriggja sem
hafa staðfest
farið holu í höggi
á þriðju holu
Garðavallar
á Akranesi í
júlímánuði.
Ljósm. GL.
Garðar á skotskónum