Skessuhorn - 20.07.2016, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 20162
„Við erum tveir sem stöndum að
þessu en með mér er Márus Líndal
Hjartarson og einnig vinnur Finn-
ur Þórðarson að þessu verkefni með
okkur. Okkur fannst vanta verslun
sem væri að sinna iðnaðarmönnum
á svæðinu og byði upp á vottaða og
góða vöru sem hægt væri að treysta.
Aðalbirgjar okkar eru þrír, Reykjafell,
Tengi og Slippfélagið en það eru allt
rótgróin félög sem bjóða upp á vand-
aða og þekkta vöru. Í samtölum okk-
ar við iðnaðarmenn, þegar við vorum
að kanna markaðinn, heyrðum við að
þeir tóku mjög vel í hugmyndir okk-
ar. Við ákváðum því að fara í það að
stofna verslunina og ætlum við að
leggja áherslu á að þjónusta Skaga-
menn, Borgfirðinga og aðra Vest-
lendinga,“ segir Karvel.
Verslunin mun bera nafnið Bresa-
búð. „Nafnið er vísun í írskan menn-
ingararf okkar Skagamanna en einnig
fannst okkur orðið „búð“ hafa sterka
og rótgróna tilvísun í verslun og
minna á gamla tíma. Við hér á Akra-
nesi þekkjum t.d. verslanir eins og
Axelsbúð og Einarsbúð. Við stefnum
að því að opna Bresabúð í ágúst en
getum ekki alveg staðfest hvenær ná-
kvæmlega það verður. Við vonumst
bara eftir góðum viðtökum þegar við
förum af stað og hlökkum til að þjón-
usta Skagamenn og aðra Vestlend-
inga,“ segir Karvel að endingu.
bþb
Mikið verður um að vera á Vesturlandi um
helgina. Í Reykholti fer fram Reykholtshá-
tíð í tuttugasta sinn en auk þess eru tutt-
ugu ár frá vígslu kirkjunnar. Í Reykhólasveit
verða Reykhóladagar haldnir og í Grund-
arfirði fer fram bæjarhátíðin Á góðri stund.
Þetta er brot af fjölbreyttri menningu um
næstu helgi.
Á morgun verður norðlæg átt, 3-10 m/s,
hvassast norðvestan til. Skýjað og víða dá-
lítil væta. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast suðvestan-
lands. Á föstudag og laugardag verður hæg
austlæg eða breytileg átt, skýjað og dálítil
væta. Hiti 10 til 18 stig. Á sunnudag; austlæg
eða breytileg átt 3-8 m/sek. Skýjað og stöku
skúrir, hiti breytist lítið. Á mánudag má bú-
ast við suðaustlægri eða breytilegri átt,
áfram lítils háttar væta og milt í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns
„Hvernig burstarðu tennurnar?“ Kom í ljós
að flestir Vestlendingar tannbursta sig ekki
markvisst því 26% svöruðu „Algjör ringul-
reið“, 24% virtust vera með þetta aðeins
meira á hreinu og kusu „Frá vinstri til hægri.“
13% kusu „Frá hægri til vinstri, 13% „Byrja
alltaf á miðjunni“, 10% „Allir jaxlar fyrst, 9%
„Bursta aldrei“ og loks 5% „Ofan á og svo
til hliðar.“
Í næstu viku er spurt:
Hefur þú séð lifandi ísbjörn?
Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum fór
fram í Borgarnesi í liðinni viku. Máni Hilm-
arsson varð Íslandsmeistari í ungmenna-
flokki í fimmgangi á hestinum Presti frá
Borgarnesi með heildareinkunnina 6,83.
Félagarnir Máni og Prestur eru því Vestlend-
ingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Útgáfur á
næstunni
SKESSUHORN: Skessu-
horn kemur venju samkvæmt út
næsta miðvikudag, 27. júlí. Eft-
ir það fer starfsfólk í viku frí og
kemur Skessuhorn næst út mið-
vikudaginn 10. ágúst. Starfsfólk
kemur að nýju til vinnu mið-
vikudaginn 3. ágúst.
-mm
Rúta lenti á
fólksbíl
BORGARFJ: Alls urðu 12 um-
ferðaróhöpp í umdæmi Lög-
reglunnar á Vesturlandi í lið-
inni viku, flest minniháttar og
án meiðsla, að sögn Theódórs
Þórðarsonar varðstjóra. Rúta
lenti aftan á fólksbíl við afleggj-
aran að bænum Munaðarnesi
á mánudaginn. Fimm ára barn
sem var farþegi í fólksbílnum
fótbrotnaði og var flutt á sjúkra-
hús. Allir í fólksbílnum voru í
öryggisbeltum og barnabílstól-
um en um harðan árekstur var
að ræða. Engin meiðsla urðu á
fólki í rútunni sem var full af er-
lendum ferðamönnum. Tildrög
óhappsins voru þau að ökumað-
ur fólksbílsins hægði ferðina og
ætlaði að beygja til vinstri við
afleggjarann en ökumaður rút-
unnar taldi að hann ætlaði að
hleypa sér framúr.
-mm
Töldu sig mega
veiða í öllum ám
og vötnum
DALIR: Veiðimenn voru í
óleyfi í Haukadalsá í Dölum í
vikunni. „Þarna höfðu erlendir
ferðamenn fengið rangar upp-
lýsingar og misskilningur átt sér
stað milli söluaðila veiðikorts
og ferðamannanna. Þeim hafði
verið sagt að þeir mættu veiða í
öllum ám og vötnum á Íslandi.
Misskilningurinn var snar-
lega leiðréttur og veiðivörður í
Haukadalsá sagðist ekki ætla að
gera neitt frekar í málinu og því
þar með lokið á vettvangi,“ seg-
ir í dagbók lögreglunnar á Vest-
urlandi.
-mm
Ólöglegur á
ýmsa vegu
VESTURLAND: Ökumað-
ur sem aldrei hefur öðlast rétt-
indi til að aka bíl, talinn vera
undir áhrifum áfengis og veru-
lega undir áhrifum margs konar
lyfja, stal í vikunni bíl á bílasölu
í Reykjavík og ók upp í Borgar-
fjörð. Þar reyndi hann að stela
olíu á sveitabæ. Að sögn lög-
reglu var maðurinn mældur á
miklum hraða við eftirför og var
loks handtekinn í Grundarfirði.
Var maðurinn færður í fanga-
klefa og síðan til yfirheyrslu
þegar af honum var runnið.
-mm
Föstudaginn 15. júlí var ár liðið
frá opnun Hótel Húsafells. Rekst-
urinn hefur gengið vel þennan
tíma og oft verið fullbókað á hót-
elinu. Á afmælisdaginn voru vask-
ir iðnaðarmenn að leggja loka-
hönd á 12 herbergja stækkun við
hótelið. „Þeir hafa unnið enn eitt
kraftaverkið og lokið góðu verki,“
segir Bergþór Kristleifsson fram-
kvæmdastjóri í samtali við Skessu-
horn. „Vinna við stækkunina hófst
eftir páska og hefur gengið hratt
og vel fyrir sig. Veðrið lék við
okkur á byggingartímanum, en
til gamans má geta þess að þann
tíma sem fyrri áfanginn var í smíð-
um, komu 27 sinnum slæm veður
sem sum hver töfðu vinnuna. Ég
vil færa þeim mínar bestur þakkir
og segi einfaldlega takk til þessara
rösku iðnaðarmanna sem hér hafa
lokið verki: Eiríkur, Kiddi og allir
ykkar menn, Arnar rafvirki, Dóri
pípari, Finnbogi málari, Sindri
garðyrkjumeistari, Meistaramúr,
Unnsteinn hleðslumaður, Steini
og Palli Guðmunds og allir hinir.
Takk fyrir fullskapað Hótel Húsa-
fell,“ segir Bergþór.
mm/ Ljósm. þk.
Lokið við stækkun Hótel Húsafells
Drónamynd tekin yfir hótelið og nærliggjandi svæði. Lengst til hægri á myndinni er
nýja viðbygging hótelsins en þar var tekið á móti fyrstu gestunum í gær, þriðjudag.
Vaskur hópur iðnaðarmanna sem var staddur á svæðinu á árs afmælisdegi hót-
elsins þegar unnið var við lokafrágang á viðbyggingunni.
Þar sem áður voru seld húsgögn í
versluninni Bjarg að Kalmansvöllum
1a er nú unnið við að setja upp hillur
og búnað í húsnæðið svo ný verslun
geti opnað. „Við erum að fara opna
verslun sem er hugsuð fyrir almenn-
ing en þó að miklu leyti fyrir iðnað-
armenn. Við munum selja raflagna-
efni, pípulagnaefni, hreinlætistæki,
málningu og málningavörur,“ seg-
ir Karvel Karvelsson annar eigenda
verslunarinnar.
Ný verslun verður opnuð á Akranesi í ágúst
Þeir Finnur Þórðarson, Márus Líndal Hjartarson og Karvel Karvelsson standa að versluninni Bresabúð sem opnuð verður í
ágúst.
Það má með sanni segja að veðr-
ið hafi leikið við landsmenn upp
á síðkastið, þá ekki síst í uppsveit-
um Borgarfjarðar. Bændur hafa þar
á bæjum verið duglegir við að nýta
blíðviðrið í heyannir fyrir veturinn.
Þá eru stórvirku rúllu- og pökkun-
arvélarnar dregnar fram og látn-
ar leika listir sínar við túnin á met-
hraða. En við og við má sjá leift-
ur frá liðinni öld, bændur sem gera
hlutina á öðrum takti. Á meðfylgj-
andi mynd, sem tekin var á fimmtu-
daginn, má sjá Árna Guðmundsson
framkvæmdastjóra Beigalda Hold-
ing brúka New Holland heybagga-
vél á þessum forláta Ford 3000 trak-
tor. afe
Baggað í Borgarfirði
Árni Guðmundsson í fullum skrúða.