Skessuhorn - 20.07.2016, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 201610
Á þriðjudaginn síðastliðinn voru
36 einstaklingar frá franska bæn-
um Paimpol staddir í Grundar-
firði. Paimpol er vinabær Grund-
arfjarðar og afhenti hópurinn
gjöf til íslensku vina sinna og fór
afhendingin fram í Sögumiðstöð-
inni. Gjöfin var upplýsingaskilti
til þess að setja við keltneska
minningarkrossinn í Grund-
arfirði sem Paimpol gaf árið
2006. Krossinn er til minningar
um franska sjómenn sem stund-
uðu veiðar við Íslandsstrendur.
Á staðnum sem krossinn stendur
byggði útgerðarmaðurinn Sylva-
in Allenou frá Paimpol þurrkhús
árið 1858.
Eftir afhendingu tók Björg
Ágústsdóttir til máls og hélt kynn-
ingu um sögu Frakka í Grund-
arfirði auk þess sem hún fjallaði
um samskipti vinabæjanna frá því
þeir hófu að hafa samskipti 2004.
Á vef Grundarfjarðarbæjar kem-
ur fram að mikil ánægja hafi ver-
ið með þessa skemmtilegu heim-
sókn og gestirnir haldið sína leið
glaðir í bragði.
bþb/ Ljósm. Grundarfjordur.is
Vinabær færir Grundarfirði gjöf
Skessuhorn greindi í ágúst í fyrra frá
fyrirhugaðri uppbyggingu í Ólafs-
al. Undirritað var samkomulag rík-
issjóðs við Minjavernd um viðtöku
eigna og lands í Ólafsdal í Gils-
firði. Minjavernd var falið að end-
urreisa byggingar og hafa umsjón
með menningarlandslagi á svæð-
inu. Minjavernd tók enn fremur að
sér að endurbyggja gamla skólahús-
ið og önnur hús sem enn standa í
Ólafsdal, auk þess að endurgera þau
hús sem þar stóðu áður og tengjast
skólastarfi þar. „Alls munu endur-
byggðar 8-9 byggingar sem voru í
Ólafsdal. Þar var fastmælum bund-
ið að sögu staðarins og menning-
arminjum verði áfram gerð góð og
aukin skil og mun Ólafsdalsfélagið
gegna þar lykilhlutverki. Jafnframt
verður frjálst aðgengi almennings
tryggt, enda var Ólafsdalsskólinn
þjóðskóli í þeim skilningi að þang-
að komu nemendur hvaðanæva að
af landinu og áhrif hans voru mik-
il á landsvísu. Þær hugsjónir og trú
á land og lýð sem endurspegluðust í
allri starfsemi Ólafsdalsskólans eiga
nú mikið erindi við íslensku þjóðina.
Er stefnt að því að endurreisn Ólafs-
dals verði lokið fyrir 140 ára afmæli
Ólafsdalsskólans árið 2020. Áætl-
aður kostnaður er um 400 milljónir
króna,“ segir í tilkynningu frá Ólafs-
dalsfélaginu.
Um þessar mundir vinnur Land-
vernd ehf. að deiliskipulagi fyrir
Minjavernd vegna þeirrar uppbygg-
ingar sem framundan er. Skrán-
ing fornleifa á fyrirhuguðu fram-
kvæmdasvæði er einnig hafin í um-
sjón Birnu Lárusdóttur, fornleifa-
fræðingi hjá Fornleifastofnun Ís-
lands. „Munu framkvæmdir fara í
fullan gang á næsta ári,“ segir í til-
kynningunni.
Enn fremur er væntanleg skýrsla
um ræktunarminjar í Ólafsdal, unn-
in af prófessor Bjarna Guðmunds-
syni og Ragnhildi Sigurðardóttur
umhverfisfræðingi. Þá er nú hald-
ið áfram með vinnu við fræðslustíg
og kortlagningu gönguleiða út frá
Ólafsdal o.fl. „Til að tryggja heils-
ársstarfsemi í Ólafsdal og nýta þær
fjárfestingar sem lagðar verða í stað-
inn er síðan mikilvægt að bæta veg-
inn inn Ólafsdalshlíðina samhliða
uppbyggingunni, um 6 km vega-
lengd,“ segir í tilkynningu.
Í Ólafsdalsfélaginu eru á fjórða
hundrað félagar. Þeir sem vilja
kynna sér félagið eða staðinn er
bent á heimasíðu félagsins, www.
olafsdalur.is. Þeim sem áhuga hafa á
að ganga í Ólafsdalsfélagið er bent á
að hafa samband við Rögnvald Guð-
mundsson formann, rognvaldur@
rrf.is eða í síma 693-2915.
kgk
Allt á fullt í Ólafsdal á næsta ári
Skólahúsið í Ólafsdal, byggt 1896. Frá undirritun samkomulagsins síðasta haust.
Í liðinni viku kom út tímaritið Nátt-
úrufræðingurinn sem Hið íslenska
náttúrufræðifélag gefur út. Í ritinu
birtust niðurstöður tilraunar um
áhrif sláttar og eitrunar á lúpínu-
breiður og gróðurfar sem Stykkis-
hólmsbær og Náttúrustofa Vestur-
lands hafa unnið að síðustu fimm
árin. Höfundar greinarinnar eru
Kristín Svavarsdóttir, Menja von
Schmalensee, Ásta L. Aradóttir,
Anne Bau og Róbert A. Stefánsson.
Ástæða þess að hafist var handa við
tilraunina er sú að árið 2007 leit-
uðu íbúar Stykkishólms til bæjar-
stjórnar vegna áhyggja af vaxandi
útbreiðslu lúpínunar innan bæjar-
markanna. Bæjarstjórnin sneri sér
í kjölfarið til Náttúrustofu Vestur-
lands sem gerði sumarið 2008 út-
tekt á á útbreiðslu lúpínu og ann-
arra ágengra tegunda eða mögu-
legra ágengra plantna í landi sveit-
arfélagsins. Í úttektinni kom í ljós
að lúpínu var að finna á 148 stöð-
um í sveitarfélaginu og þakti tíu
hektara eða um 1% af heildarflatar-
máli sveitarfélagsins. Náttúrustofan
lagði til að Stykkishólmsbær myndi
reyna að uppræta lúpínuna með
skipulögðum hætti. Stykkishólms-
bær fór í markvissar aðgerðir til að
stemma stigu við útbreiðslu plönt-
unnar en samhliða því var ákveðið
að kanna árangur tveggja mismun-
andi aðferða. Annars vegar með að
eyða lúpínu með slætti eða eitrun
en ásamt því var svæði þar sem lúp-
ínan var látin óáreitt til þess að sjá
muninn.
Sláttur skilar
betri árangri
Eins og áður segir stóð tilraunin í
fimm ár eða frá 2010 til 2015. Nið-
urstöður rannsóknarinnar sýndu að
bæði væri hægt að slá og eitra fyr-
ir lúpínunni með góðum árangri.
Niðurstaðan var samt sú að slátt-
urinn sé árangursríkari leið til þess
að eyða lúpínunni fremur en eitr-
unin. Í niðurstöðunum kemur fram
að einnig þarf að hafa í huga að
lúpínan breytir gróðurfari og í ein-
hverju tilfellum þurfi að fara í frek-
ar aðgerðir til þess að endurheimta
ákveðna gerð vistkerfis.
Í lok greinarinnar kemur fram
að Stykkishólmsbær hafi með að-
gerðum sínum sýnt mikilvægt for-
dæmi í aðgerðum gegn ágengum
plöntum.
bþb
Betri árangur af slætti á
lúpínu en að eitra fyrir henni
Alaskalúpína kom sennilega fyrst til
Íslands árið 1895 en var flutt inn til
landgræðslu um miðja síðustu öld. Nú
þykir mörgum mikilvægt að hemja
útbreiðslu plöntunnar. Myndin sýnir
lúpínuslátt í Stykkishólmi.
Ljósm. nsv.is
Í seinustu viku voru eingöngu kon-
ur á sjúkravaktinni í Búðardal og
hefur það aldrei gerst áður; kven-
læknir með tveimur kvensjúkra-
flutningamönnum. „Þegar ég byrj-
aði sem sjúkraflutningamaður í
september 2014 var ég fyrsti kven-
sjúkraflutningamaðurinn í sögu
Búðardals svo það er skemmti-
legt að tveimur árum síðar náðum
við að manna heila vakt með kon-
um. Ég er eina sem er fastráðin í
þessum hópi, þær Íris sjúkraflutn-
ingamaður og Hanna læknir eru að
leysa af í sumar,“ segir Ásdís Mel-
sted sjúkraflutningamaður í Búðar-
dal í samtali við Skessuhorn.
Ásdís segir að stemningin á vakt-
inni hafi verið öðruvísi en vanalega.
„Já, það var rætt um aðra hluti. Það
var bara „trúnó“ á leiðinni heim
og allar saman á klósettið í Borg-
arnesi. Þetta var svolítið annað en
að þurfa að hlusta á veiðisögurnar
hans Skjaldar allan liðlangan dag-
inn,“ segir Ásdís og hlær.
bþb
Kvennavakt á sjúkrabílnum
Þær Íris, Ásdís og Hanna mönnuðu fyrstu sjúkravaktina í Búðardal sem einungis var skipuð konum. Ljósm. Steina Matt.