Skessuhorn - 20.07.2016, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 201612
Fyrirtækið Loftorka í Borgarnesi
var stofnað árið 1962 og hefur alla
tíð verið áberandi í byggingageir-
anum, ekki síst á Vesturlandi. Loft-
orka er afgerandi stærsti framleið-
andi landsins í forsteyptum bygg-
ingaeiningum og eini steinröra-
framleiðandi á Íslandi. Hjá fyrir-
tækinu starfa rúmlega eitt hundr-
að manns þegar allt er talið. Þar af
er drjúgur hluti starfsfólks háskóla-
menntaður, verk- og tæknifræð-
ingar þar fjölmennastir. „Við erum
með stærstu vinnustöðum á Vestur-
landi á eftir stóriðjufyrirtækjunum
og stærstu opinberu stofnunun-
um,“ segir Bergþór Ólason fram-
kvæmdastjóri og upplýsir að fyrir
hrun hafi fjöldi starfsmanna verið
í um 300 þegar mest lét. Þá hafði
fyrirtækið einnig starfsemi á Akur-
eyri og Kjalarnesi. „En okkur finnst
þetta vera í góðu jafnvægi núna og
við verðum kannski 20-30% fjöl-
mennari en nú er þegar allt verður
komið á fulla ferð. Við erum ekki
að keppast við að fjölga starfsfólki
fram úr hófi og þenja fyrirtækið
út,“ segir Bergþór.
Gengur vel
„Sem betur fer er búið að ganga al-
veg prýðilega undanfarið. Verkefna-
staðan er allt önnur og betri en fyr-
ir ekki lengri tíma en einu og hálfu
ári síðan og mikið af verkefnum
framundan,“ segir Bergþór. Hann
segir að almennt sé hið sama uppi
á teningnum hjá öðrum fyrirtækj-
um í byggingaiðnaðinum. Það sé til
marks um að efnahagur landsins sé
að komast á réttan kjöl. Starfsmenn
Loftorku eru vel að merkja með
fyrstu mönnum sem fara að sjá vís-
bendingar þess efnis þegar svo ber
undir. „Þar sem við erum eini stein-
röraframleiðandi landsins þá erum
við mjög framarlega í hagsveiflunni,
hvað þá framleiðslu varðar. Farið er
að leggja nýjar götur, við framleið-
um rörin í lagnirnar og finnum að
nú er allt að fara á fullt í þeim efn-
um,“ segir hann. „Það sem mað-
ur óttast helst er hvað gerist þeg-
ar menn sjá að afkastageta bygg-
ingageirans í heild sinni kemur
ekki til með að hafa undan. Flestir
sem starfa í okkar umhverfi virðast
um það bil að verða fullsettir mið-
að við þá afkastagetu sem til staðar
er. Það skapar ákveðna pressu sem
getur verið ögrun að takast á við,“
bætir hann við.
Íbúðir fyrir
venjulegt fólk
Á iðnaðarsvæði Loftorku má sjá
þess merki að efnahagur landsins er
að rísa. Þar standa einingar í hús í
röðum sem bíða þess að fara í reis-
ingu. Einnig er fjöldi röra á lager.
„Rörin eru það eina sem við fram-
leiðum á lager. Það er drjúgur lag-
er af þeim núna en sem betur fer þá
fer úr stabbanum jafn óðum og það
er fyllt á hann,“ segir Bergþór.
Að sögn framkvæmdastjór-
ans hefur Loftorka undanfarin ár
reist mikið af byggingum tengdum
ferðaþjónustunni, þar sem mikill
uppgangur hefur verið, í bland við
íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði.
„Bygging íbúðarhúsnæðis er að
taka við sér núna. Verkefni tengd
íbúðarhúsnæði hafa á síðustu árum
helst verið á svokölluðum þétting-
arreitum á höfuðborgarsvæðinu,
þar sem fermetraverð er um og yfir
500 þúsund krónur,“ segir Bergþór.
„Loksins núna um þessar mundir
er farið að byggja aftur íbúðir fyr-
ir venjulegt fólk, sem er bæði nauð-
synlegt og tímabært,“ segir hann.
Slík verkefni verði áberandi í nán-
ustu framtíð. Einnig segir Bergþór
að hjá Loftorku fylgist menn náið
með gangi mála á stærsta iðnaðar-
svæði landsins. „Það verður spenn-
andi fyrir okkur ef Silicor kem-
ur á Grundartanga. Það felast tví-
mælalaust tækifæri í því og þá mik-
ið framundan hjá byggingaverk-
tökum heilt yfir,“ segir hann. „Síð-
an erum við náttúrulega alltaf að
snurfusa og reyna að fegra lóðina
hjá okkur og hafa fínt í kringum
okkur, það er eilífðarverkefni,“ seg-
ir hann, enda lóðin stór og mikil.
Iðnaðarsvæði Loftorku er nefnilega
töluvert stærra en það lætur yfir
sér, séð frá þjóðveginum. „Já, einn
vinur minn hafði það á orði þegar
hann kom hér í fyrsta sinn að þetta
væri eins og samkomuhúsið í kvik-
myndinni Með allt á hreinu. Lítið
að utan en rosalega stórt að innan,“
segir Bergþór og brosir.
Erfitt eftir hrunið
Eftir efnahagshrunið haustið 2008
voru erfiðir tímar hjá fyrirtækinu.
„Það er reyndar áður en ég byrj-
aði, ég kom hingað 2009,“ segir
Bergþór. „Loftorka er náttúrulega
nær eingöngu í nýbyggingum og
slíkt stöðvaðist nær algjörlega fyrst
eftir hrunið. Staðan var að mörgu
leyti einfaldari hjá þeim fyrirtækj-
um sem gátu sinnt viðhaldsverk-
efnum,“ bætir hann við. Rekstur-
inn fór því ansi djúpt niður og á
tímabili var útlit fyrir að fyrirtækið
myndi hverfa algjörlega. „Félagið
fór í þrot eftir hrun og um tíma var
alls ekkert víst að hér yrði einhver
rekstur áfram,“ segir Bergþór. „Ég
lagði fram tryggingu til að leigja
reksturinn á meðan skiptastjóri var
með fyrirtækið í söluferli. Ég mat
það svo að ef reksturinn stöðvaðist
þá væri alls ekki sjálfgefið, og í raun
ólíklegt, að hann færi af stað aftur
yfirhöfuð. Það var án efa ótryggasti
samningur sem ég hef gert, enda
gat ég bara setið uppi með mögu-
legt tjón, en búið fékk það sem
hugsanlega yrði í plús,“ segir Berg-
þór og hlær við.
Rekstri fyrirtækisins var þann-
ig bjargað fyrir horn. Skiptastjóri
seldi fyrirtækið til hóps sem sam-
anstóð af átta aðilum sem lögðu
fram fjármuni í að endurreista fé-
lagið og þá kom Bergþór til starfa
hjá félaginu, undir framkvæmda-
stjórn Óla Jóns Gunnarssonar, föð-
ur síns. Fyrir fjórum árum keyptu
svo feðgarnir hina meðfjárfestana
út úr eigendahópnum og hafa átt
það til helminga síðan. Bergþór tók
svo við framkvæmdastjórastöðunni
í upphafi árs 2015. „Í stuttu máli
var þetta mjög erfitt um tíma fyrst
eftir hrunið en er að braggast ágæt-
lega núna. Fyrirtækið er komið á
réttan kjöl,“ segir Bergþór.
Orðspor lausnarinnar
mikilvægt
Þess var áður getið að Loftorka
væri stærsti framleiðandi for-
steyptra eininga á Íslandi, en fyrir-
tækið var jafnframt brautryðjandi
á því sviði á sínum tíma. Bergþór
segir stöðugt fleiri hús reist úr for-
steyptum einingum. „Einingahús-
um hefur fjölgað verulega á síð-
ustu árum. Eftirspurn eftir okk-
ar einingalausnum er mikil og
sérstaklega eftir hrun, enda eru
standandi auglýsingar um allt í vel
byggðum og góðum húsum,“ segir
hann. Bergþór segir að alltaf hafi
verið lögð mikil áhersla á gæða-
mál og fagnar því að flestir aðr-
ir framleiðendur forsteyptra ein-
inga hafi einnig vandað til verka.
„Við erum ekkert endilega í sam-
keppni við aðra einingaframleið-
endur. Við erum fyrst og fremst í
samkeppni við aðrar byggingarað-
ferðir, svo sem staðsteypu, timbur-
hús og stálgrindarhús, svo dæmi
séu tekin.“ segir Bergþór. „Það eru
hagsmunir okkar að aðrir fram-
leiðendur standi sig líka sem best.
Þá fær þessi byggingaraðferð, að
byggja úr einingum, gott orðspor
og viðheldur því.”
kgk
Bergþór Ólason, framkvæmdastjóri Loftorku í Borgarnesi:
„Loksins farið að byggja aftur íbúðir fyrir venjulegt fólk“
Bergþór Ólason.
Unnið við eina af fjölmörgum forsteyptu einingum sem steyptar eru hjá Loftorku
í Borgarnesi.
Næst í mynd er verið að ganga frá gluggamótum og í baksýn má sjá starfsmenn
slípa steypuna til.
Nær allar flotbryggjur landsins sem framleiddar hafa verið á undanförnum árum
eru steyptar af Loftorku og prófaðar í þessari kví áður en þær eru afhentar.