Skessuhorn - 20.07.2016, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2016 17
UNGLINGALANDSMÓT UMFÍ
Í BORGARNESI 28 - 31. JÚLÍ
Sunnudaginn 31. júlí verða 50 ár lið-
in frá því Grundarfjarðarkirkja var
vígð. Í tilefni þess verður haldið upp
á daginn með sýningu í Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga. Blaðamaður kíkti
í kirkjuna og spjallaði við Ragnheiði
Þórarinsdóttur formann afmælis-
nefndar, Guðrúnu Margréti Hjalta-
dóttur formann Setbergsprestakalls
og Aðalstein Þorvaldsson sóknar-
prest.
Kirkja byggð af
samfélaginu
Grundarfjarðarkirkja var vígð 31.
júlí 1966 við hátíðlega athöfn en
hún hafði verið um sex ár í smíð-
um. Kirkjan var byggð í tveimur
áföngum og komu margir að smíð-
inni, bæði fólk innan Setbergspresta-
kalls og utan þess. Kvenfélagið spil-
aði stórt hlutverk og sá til að mynda
um að afla hluta þess fjár sem þurfti
í verkið. Þá var séra Magnús Guð-
mundsson, þáverandi sóknarprestur,
fremstur meðal jafningja og hvatti
íbúa og aðra til að leggja hönd á
plóg. „Það unnu margar hendur að
smíðinni og sem dæmi komu hing-
að erlendir sjálfboðaliðar á vegum al-
kirkjuráðs og aðstoðuðu,“ segir Að-
alsteinn og bætir því við að heilu
áhafnirnar, jafnvel frá öðrum byggð-
arlögum, hafi komið og aðstoðað við
smíðavinnuna.
„Það var í raun aðeins framtaks-
semi íbúa sem varð til þess að kirkjan
var byggð og flestir innanstokksmun-
ir voru gjafir eða keyptir fyrir fé sem
safnaðist með fjáröflunum. Kven-
félagið hefur til að mynda oft hald-
ið fjáraflanir fyrir kirkjuna, af mikilli
hógværð,“ segir Aðalsteinn. „Kirkj-
an hefur líka alltaf þjónað mikilvægu
hlutverki í þessu samfélagi, ekki ein-
ungis trúarlegs eðlis. Hér hefur verið
ýmis starfsemi í gegnum árin; kóræf-
ingar, æskulýðsstarf, mömmumorgn-
ar og margt fleira. Við reynum að
nýta húsnæðið sem best og hér er
mikið líf,“ segir Aðalsteinn. Kirkjan
er opin öllum og ef dæma má gesta-
bókina er hún vinsæl meðal ferða-
manna en þar skrifar fólk gjarnan um
þá ró sem það finnur í kirkjunni.
Stofnuðu afmælisnefnd
„Aðalsteinn lagði til fyrir þremur
árum að við myndum gera eitthvað
í tilefni afmælisins og var því ákveðið
að stofna afmælisnefnd og sú nefnd
tók til starfa 2014. Í kjölfarið var
stofnað Listvinafélag kirkjunnar og
er það félag komið til að vera,“ segir
Ragnheiður. „Við vorum strax sam-
mála um að hafa ekki einn sérstakan
afmælisdag með mikilli dagskrá. Við
vildum heldur hafa fleiri minni við-
burði með reglulegu millibili yfir allt
afmælisárið. Fyrsti viðburðurinn var í
febrúar en þá gerðu öll börnin í leik-
skólanum sólarmyndir sem svo voru
settar upp til sýnis í kirkjunni. Dag-
inn sem sýningin var opnuð var einn-
ig boðið upp á sólarmessu og sólar-
súpu og sýningin sjálf var uppi í 2-3
vikur,“ bætir Ragnheiður við.
Sýndu skírnarkjóla
Á Pálmasunnudegi var önnur sýn-
ing opnuð í kirkjunni en þá voru
skírnarkjólar sýndir. „Það gátu all-
ir Grundfirðingar komið með skírn-
arkjólana sína á sýninguna og sum-
um þeirra fylgdi jafnvel saga eða listi
yfir þau börn sem höfðu verið skírð
í kjólnum. Þetta heppnaðist svo vel
að við gátum ekki sýnt alla kjólana
sem fólk kom með. Börnin sem voru
hér í æskulýðsstarfi höfðu einstak-
lega gaman að því að benda öllum á
þann kjól sem þau voru skírð í,“ seg-
ir Aðalsteinn og brosir. Á þriðju sýn-
ingunni voru verk eftir nemendur úr
grunnskólanum til sýnis. „Þá höfðu
nemendur unnið með gluggalista-
verk úr gleri þar sem unnið var með
verndarvætti,“ segir Guðrún.
Á sýningunni „Listamaður kirkj-
unnar“ sem haldin verður í Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga laugardag-
inn 23. júlí og sunnudagana 24. og
31. júlí verður vakin athygli á þeim
listamönnum sem hafa unnið lista-
verk fyrir kirkjuna. Þá verða verk-
in annað hvort til sýnis á staðnum
eða varpað upp með skjávarpa. Við
þetta bætast listaverk barnanna frá
því í vetur. „Einnig viljum við vekja
athygli á verkum eftir séra Jón Þor-
steinsson, fyrrum sóknarprest, en
hann vann einnig verk fyrir kirkj-
una auk annarra verka sem verða
á sýningunni. Við ætlum aðeins að
hafa sýninguna opna þessa þrjá daga
en hér verða auk þess haldnir tón-
leikar reglulega út afmælisárið,“ seg-
ir Ragnheiður að lokum.
arg
Grundarfjarðarkirkja fimmtíu ára
Grundarfjarðarkirkja.
Gluggi á framstafni kirkjunnar, málaður af Eiríki Smith listamanni.
Verk sem leikskólabörnin unnu fyrir sýningu í Grundarfjarðarkirkju síðasta vetur.
Ljósm. Aðalsteinn Þorvaldsson.
Guðrún Margrét Hjaltadóttir, Aðalsteinn Þorvaldsson og Guðrún Þórarinsdóttir í
Grundarfjarðarkirkju.