Skessuhorn - 20.07.2016, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2016 19
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
á Reykholtshátíð
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Laugardagur 23. júlí 2016
kl. 20:30, í Bókhlöðu
Snorrastofu
„Það mikið elskaða skáld
Hallgrímur Pétursson“
Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessor
við Stofnun Árna Magnússonar
Umræður
Allir velkomnir
Sagt verður frá fræðilegri
heildar útgáfu á verkum Hall gríms,
fjallað um trúarlegan og verald-
legan kveðskap hans, af stöðu
hans til áheyrenda eða lesenda
og viðhorf til hefðar og söguefnis.
kaffihús í Borgarnesi
Opið daglega kl. 13:00 -18:00
Það er opið extra lengi hjá okkur um verslunarmannahelgina
frá fimmtudeginum 28. júlí til sunnudagins 31. júlí
Þessa daga verður dagskráin svona:
√ Morgunverðarhlaðborð frá kl. 7:30-9:30
√ Léttir og gómsætir réttir í hádeginu frá kl. 11:00-13:00
√ Kökur og brauðmeti - Með kaffinu frá kl. 13:00
√ Gamli góði kaffitíminn e.h - Tilboðsdiskur fjórar sortir og uppáhellt kr. 850,-
√ Opið á útipallinum til kl. 18:00
√ Kaffihúsið opið til kl. 21:00 á kvöldin þessa daga. Kaffi, öl, kaldir drykkir, brauð og samlokur.
Verið velkomin
Café Brák
Café Brák • Brákarbraut 11 • Borgarnesi • Sími 860-6655
NÝTT
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Sveitamarkaðurinn Ljómalind í
Borgarnesi var fyrst opnaður fyr-
ir rúmum þremur árum. Síðan þá
hefur verslunin stækkað jafnt og
þétt og m.a. flutt einu sinni. Nú er
svo komið að markaðurinn er op-
inn alla daga vikunnar frá 10-18.
Skessuhorn var á ferðinni í Borg-
arnesi fyrir helgi og lék forvitni á
að vita um gang mála það sem af
er sumri. „Reksturinn gengur vel.
Verslun er alltaf að aukast og vöru-
úrvalið einnig,“ segir Sigurbjörg
Kristmundsdóttir verslunarstjóri.
„Sultum hefur fjölgað og svo erum
við alltaf að fá fleiri tegundir af mat-
vöru frá þeim framleiðendum sem
nú þegar framleiða matvöru fyrir
okkur. Það er alltaf meiri og meiri
eftirspurn eftir þeim vörum sem er
í boði,“ segir hún og bætir því við
að stöðugt fleira handverksfólk selji
hönnun sína í verslun Ljómalindar.
„En heilt yfir hefur verið stígandi
í sölunni í sumar. Hún hefur auk-
ist jafnt og þétt mánuð frá mánuði.
Bæði eru ferðamenn að kaupa mik-
ið og eins Íslendingar að sækja sér
kjöt á grillið,“ segir hún. „Matvara
hefur bara selst mjög vel yfirhöf-
uð og við erum alltaf að kalla eft-
ir meiru frá framleiðendum,“ bæt-
ir hún við.
Sigurbjörg á von á því að sal-
an verði áfram góð út sumarið og
fram eftir hausti. „Ég á von á því að
það gangi vel allt fram að jólum. En
síðan má alveg búast við tveimur til
þremur erfiðum mánuðum, þannig
gengur þetta bara,“ segir verslunar-
stjórinn. Hún er þó ekki í nokkrum
vafa um að Ljómalind hafi skap-
að sér fastan sess í hugum Vest-
lendinga og gesta svæðisins. Næsta
skref sé að skoða hvernig megi bæta
megi við reksturinn. „Undanfar-
in ár hafa sýnt að við erum komin
til að vera, ekki spurning. Við erum
alltaf að leita tækifæra og velta fyr-
ir okkur hvernig við getum stækk-
að og útvíkkað okkar rekstur. En
á sama tíma alltaf að halda í kjarn-
ann í okkar markaðssetningu sem
er þessi „lókal“ framleiðsla,“ segir
hún. kgk
Gengur vel í Ljómalind
Sigurbjörg Kristmundsdóttir verslunarstjóri.
Úr verslun Ljómalindar að Brúartorgi 4 í Borgarnesi.
Fimmtudaginn 14. júlí voru tvö
skemmtiferðaskip í Grundarfjarð-
arhöfn. Þetta voru skipin Le Aust-
ral og Star Legend, sem láu við an-
keri á ytri höfninni. Eins og venja
er þá fara farþegar ýmist með rút-
um í skoðunarferðir eða rölta um
bæinn. Það voru því nokkrar gal-
vaskar handverkskonur sem ákváðu
að setja upp markað fyrir ferða-
mennina í hjarta bæjarins þann-
ig að þeir sem vildu spóka sig um
í bænum gætu komið við hjá þeim
og gert góð kaup. Ágætis sala var á
markaðnum enda margt fallegt á
boðstólnum. tfk
Markaður og skemmtiferðaskip
í Grundarfirði
Elsa Árnadóttir er hér að kynna vörur sínar fyrir ferðamönnum.
Skipin Le Austral sem liggur við bryggju og Star Legend á ytri höfninni.