Skessuhorn - 20.07.2016, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2016 21
Laugardaginn 6. ágúst næstkomandi
verður Ólafsdalshátíð haldin níunda
sinni í Ólafsdal í Gilsfirði. Er það í
annað skiptið sem hátíðin er hald-
in á laugardegi. „Tókst mjög vel til
með það í fyrra. Er það von Ólafs-
dalsfélagsins að með því fjölgi þeim
gestum á hátíðinni sem kjósa að verja
helginni í Dölum, Reykhólasveit eða
nágrenni,“ segir í tilkynningu frá
Ólafsdalsfélaginu.
Aðaldagskrá mun standa yfir frá kl.
13 til 17 og er dagskráin um það bil
að verða fullmótuð. Lína Langsokk-
ur mun mæta á svæðið og skemmta
börnum á öllum aldri, Drengjakór ís-
lenska lýðveldisins mun mæta með
nýtt prógramm og Guðrún Tryggva-
dóttir mun kynna sýninguna „Dala-
blóð“. Lífrænt vottað Ólafsdalsgræn-
meti verður til sölu, glæsilegt Ólafs-
dalshappdrætti og vandaður hand-
verks- og matarmarkaður auk þess
sem boðið verður upp á veitingar. Að
vanda verður aðgangur að hátíðinni
ókeypis og allir velkomnir. Dagskráin
verður nánar kynnt á www.olafsdalur.
is og www.facebook.com/Olafsdalur.
Ýmislegt við að vera
Í Ólafsdal er tekið á móti gestum
og gangandi alla daga milli kl. 12 og
17 og er kaffi, vöfflur og Erpsstaða-
ís í boði ásamt fleiru. Staðarhaldar-
ar þetta sumarið eru þeir sömu og í
fyrra, hjónin Elfa Stefánsdóttir og
Haraldur Baldursson. Hafa má sam-
band við þau um hvaðeina sem teng-
ist Ólafsdal í síma 821-9931 eða með
tölvupósti, elfa@htb.is.
Ýmislegt er á döfinni í Ólafsdal í
sumar utan komandi Ólafsdalshátíð-
ar. Eins og greint var frá í Skessu-
horni í síðustu viku verður mál-
verkasýning Guðrúnar Tryggvadótt-
ur, Dalablóð, opnuð 23. júlí kl. 14 í
Ólafsdal. Viðfangsefni sýningarinn-
ar eru formæður listakonunnar sem
fæddust og bjuggu í Dölum. Still-
ir hún formæðrum sínum upp með
sér og dóttur sinni í sex herbergjum
skólahússins í Ólafsdal.
Fjögur ár eru liðin frá því Ólafs-
dalsgrænmetið fékk lífræna vottun
frá vottunarstofunni Túni. „Í vor fór
vaskur hópur um 20 karla, kvenna
og barna í Ólafsdal og setti niður í
garðinn. Sprettur þar sem aldrei fyrr
vegna góðviðris undanfarinna vikna.
Nú er sumt af grænmetinu tilbúið
og annað verður það fljótlega. Þar er
meðal annars ræktað grænkál, blóm-
kál, hnúðkál, rauðkál, brokkólí, róf-
ur og hnúðkál,“ segir í tilkynningu.
Grænmetið verður sem fyrr segir til
sölu á hátíðinni. kgk
Steinunn Matthíasdóttir ljós-
myndari í Búðardal setti upp ljós-
myndasýningu í Búðardal um liðna
helgi. Sýningin er hluti af verkefni
fransks listamanns sem kallar sig
JR en hann hlaut Ted Prize verð-
launin fyrir verkefnið og gerði það
honum kleift að virkja það víða um
heim. Verkefnið ber nafnið Inside
Out Project og gengur það út á að
ljósmyndari velur sér málstað og
vekur athygli á honum með hjálp
portrett ljósmynda. „Inside Out
hefur flakkað víða um heim og
síðastliðið haust var teymið farið
að horfa til Íslands. Frönsk kvik-
myndagerðarkona og Íslandsvin-
ur fékk það hlutverk að leita að
einstaklingi á Íslandi til að vinna
verkefni innan Inside Out og hafði
samband við mig. Fyrir mér var
þetta ekki nokkur spurning að taka
þessari áskorun,“ segir Steinunn.
Vilja leggja áherslu á
virðingu og gleði
Umfjöllunarefni ljósmyndasýning-
arinnar er liður í samstarfi Stein-
unnar og Helgu Möller söng-
konu. „Ég var farin að undirbúa
verkefnið í vetur þegar leiðir okk-
ar Helgu Möller lágu saman í vor.
Tókum við ákvörðun um að fara
í samstarf með verkefnin okkar
tvö, lagið hennar Tegami-bréfið,
sem kemur frá Japan og fjallar um
eldri borgara, og ljósmyndaverk-
efnið mitt,“ segir Steinunn. Sam-
eiginlega hafa þær verið að vinna
sérstaklega með hugtakið virðing.
Þær vilja vekja athygli á lífsgæð-
um eldra fólks og mikilvægi þess
að finna gleðina, sama hvernig líf-
ið leikur okkur. „Við viljum vekja
fólk til umhugsunar um hvern-
ig við getum öll átt þátt í að veita
gleði. Í ljósmyndaþættinum var
strax ákveðið að reyna að fanga
glaðleg augnablik í andlitum eldri
borgara,“ segir Steinunn.
Gefandi verkefni
Ljósmyndirnar eru teknar á fjór-
um dvalarheimilum, Silfurtúni í
Búðardal, Barmahlíð á Reykjól-
um, Hrafnistu í Reykjavík og Lög-
mannshlíð á Akureyri. „Ég fékk
leyfi til að koma og mynda fyrir
verkefnið en einnig komu nokkrir
eldri borgarar í heimsókn á dvalar-
heimilin til að taka þátt. Ég lagði
mikla áherslu á að myndatökurn-
ar yrðu í opnu rými þannig að úr
yrði samverustund þar sem fólk
gat fylgst með og spjallað saman.
Mín tilfinning var sú að í öllum til-
fellum hafi þessi uppákoma verið
ánægjuleg, bæði fyrir eldri borg-
arana og mig sjálfa. Það var því
hamingjusamur ljósmyndari sem
kvaddi heimilin eftir góða stund
með skemmtilegu fólki. Kannski
svolítið þreyttur eftir góða ljós-
myndatörn, því ljósmyndun er jú
vinna, en virkilega endurnærð á
sálinni,“ segir Steinunn og brosir.
Upplifir mikla jákvæðni
fyrir sýningunni
Inside Out verkefnið var sett upp
í Búðardal en Steinunn er einn-
ig með hliðarverkefni á Akureyri.
„Ég er með útisýningu í kirkju-
tröppunum á Akureyrarkirkju þar
sem 14 myndir úr Inside Out serí-
unni verða til sýnis sem hluti af
listasumri sem stendur út ágúst.
Sú sýning ber titilinn „Gleðin sem
gjöf“ og var hún sérstaklega sett
upp sem hluti af samstarfi okkar
Helgu Möller og í tilefni af flutn-
ingi hennar á Tegami-bréfinu
19. júní í Akureyrarkirkju,“ segir
Steinunn „Yfirskrift Inside Out út-
færslunnar í Búðardal er „Respect
elderly“ en ég notast við erlendan
titil þar sem verkefninu er miðlað
um heiminn. Þær myndir hafa ver-
ið límdar beint á veggi eða glugga
hjá Rauða krossinum, Björgunar-
sveitinni Ósk og KM þjónustunni
og eru því vel sýnilegar allri Vest-
fjarðarumferðinni,“ segir Steinunn
og bætir því við að hún hafi upplif-
að mikla jákvæðni fyrir verkefninu.
„Eftir að ég var búin að mynda
alla eldri borgarana hef ég feng-
ið marga góða sjálfboðaliða inn í
verkefnið með mér, t.d. að smíða
festingar og setja upp sýningarn-
ar, og er ég afar þakklát fyrir það.
Ég vil einnig hvetja alla á sýning-
unum mínum, bæði í Búðardal og
á Akureyri, til að taka sjálfsmynd-
ir af sér með myndunum og deila
á samskiptamiðlum eins og Fa-
cebook og Instagram með ákveðn-
um hasthag merkingum. Á Akur-
eyri nota ég #respectelderly #ak-
ureyri #listasumar, í Búðardal nota
ég #respectelderly #insideoutproj-
ect #búðardalur. “ segir Steinunn
að endingu. arg
Ljósmyndasýning Steinunnar Matthíasdóttur í Búðardal
Ólafsdalshátíð verður haldin 6. ágúst
Svipmynd frá markaðnum á síðustu Ólafsdalshátíð.
Vaskir sjálfboðaliðar fóru í vor og settu niður í matjurtagarðinn í Ólafsdal.
Dagana 20.-24. júlí verður bæjarhá-
tíðin Á góðri stund haldin hátíðleg
18. árið í röð í Grundarfirði, en í ár
er sjötta árið þar sem Hátíðarfélag-
ið sér um hana. Aldís Ásgeirsdótt-
ir er framkvæmdastjóri hátíðarinn-
ar í ár og segir hún að undirbún-
ingur gangi vel. „Það gengur mjög
vel og allt að verða klárt,“ segir Al-
dís í samtali við Skessuhorn. Hátíð-
in hefur verið þekkt fyrir mikla lita-
dýrð. „Litirnir og skreytingarnar
skapa alltaf mikla stemningu á há-
tíðinni. Hverfunum er skipt upp í
fjögur svæði; gult, rautt, grænt og
blátt. Bæjarbúar taka virkan þátt í
að skapa stemninguna og skreyta
margir vel. Hápunktur hátíðarinn-
ar fyrir marga eru síðan skrúðgöng-
urnar á laugardeginum þar sem
hverfin marsera niður í bæ og mæt-
ast þar. Í bænum tekur við dagskrá
og síðan halda þeir sem vilja niður á
bryggju á stórt og skemmtilegt ball.
Dagskráin er fjölbreytt í ár og allir
ættu að finna eitthvað við sitt hæfi
og öllum er velkomið að koma,“
segir Aldís.
Aldís er aðeins 19 ára gömul og
því að öllum líkindum yngsti skipu-
leggjandi bæjarhátíðar á Íslandi.
„Fyrst þegar ég var spurð út í það
hvort ég vildi taka þetta að mér
var ég óviss en stökk síðan á tæki-
færið. Þetta er vissulega mikil vinna
en einnig er þetta dýrmæt reynsla.
Mér finnst gaman að vera hent út
í djúpu laugina og þurfa að fara út
fyrir þægindarammann. Það eru
öllum hollt,“ segir Aldís að end-
ingu.
bþb
Bæjarhátíðin Á góðri
stund fer fram um helgina
Frá skrúðgöngu rauða hverfisins á hátíðinni í fyrra.