Skessuhorn - 20.07.2016, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2016 25
árið 1801. Heitir það þá ekki Bakki
heldur Fagriflötur. Árið 1813 kem-
ur Bakkanafnið til sögunnar, og
heitir svo síðan. Fagraflatarnafn-
ið var réttnefni. Þarna var ákaflega
fagurt, sérstaklega áður en sjórinn
hafði brotið niður landið á Grenj-
unum og þarna voru flatir þar sem
íþróttakeppnir fóru fram og ýmsar
aðrar uppákomur. Bjarni var dugn-
aðarmaður og vel stæður og sótti sjó
af miklum krafti. Hann var sá eini
sem átti skip og bát á Skaganum um
aldamótin 1800. Hann drukknaði á
leið frá Reykjavík 21. apríl 1816 við
sjöunda mann, sem flestir voru for-
menn af Skaga en tveir komust lífs
af. Hér á Bakka bjó fyrsti heiðurs-
borgari Akraness, Einar Ingjalds-
son frá 1890 til dd. Hann var lengi
formaður, dugnaðarmaður, hygg-
inn og hreinskiptinn.
Í Deild bjó Ólafur Ólafsson véla-
maður frá 1902 til dd. Hann var um
mörg ár eini vélsmiðurinn á Akra-
nesi. Hann setti upp fyrsta véla-
verkstæðið og rak það í mörg ár og
kenndi nokkrum nemendum, m.a.
Þorgeiri Jósefssyni, en hann stofn-
aði ásamt bróður sínum fyrirtæk-
ið Þorgeir og Ellert árið 1928 og
Dráttarbraut Akraness 1938. Þau
fyrirtæki voru alla tíð staðsett á
Grenjunum fyrir neðan Bakka. Auk
þess að vera forstjóri þessara fyr-
irtækja, sat Þorgeir í hreppsnefnd
og bæjarstjórn Akraness og einnig
fjölda nefnda á vegum bæjarfélags-
ins. Þorgeir var kjörinn heiðurs-
borgari Akraness 1982. Einar Vest-
mann og synir hans voru einnig
um tíma með sína vélsmiðju, Loga,
þarna á svæðinu.
Athafnasvæði
Við Lambhúsasund var því upphafið
að fjölbreyttum atvinnurekstri, auk
verslunarinnar, sem áður sagði. Út-
gerð var stunduð héðan, fyrst á ára-
bátum og síðar á vélbátum. Bjarni
Ólafsson, Sigurður Hallbjörnsson
og eigendur Fiskivers auk fleiri út-
gerðarmanna höfðu sína aðstöðu
hér. Skipasmíðar voru stundaðar
um árabil við Sundið, auk þess sem
fyrstu vélsmiðjurnar tóku til starfa,
fyrst hjá Ólafi í Deild og síðar hjá
Þorgeiri og Ellert. Framleiðsla á
matvælum hefur lengi verið stund-
uð hér við Lambhúsasund, m.a.
niðursuða Ritchie á bolfiski og svo
mætti lengi telja. Báran, aðal sam-
komuhús Akurnesinga frá 1906 til
1951, var skammt undan. Í Hoff-
mannshúsi var hótel og veitinga-
rekstur um tíma og Bíóhöllin, sem
rekin hefur verið af krafti allt frá
árinu 1942. Hótel Akraness var um
árabil rekið við Bárugötuna og auk
þess matsölustaðir, aðallega ætlaðir
sjómönnum.
Stríð og friður
Á stríðsárunum voru hermenn
bandamanna með aðstöðu sína á
Grenjunum. Þar æfðu þeir vopna-
burð við litla hrifningu mæðra
á svæðinu, enda voru þarna í ná-
grenninu vinsælustu leiksvæði
krakkanna á Neðri-Skaganum.
Þetta voru fjörurnar við Lamb-
húsasund og Krókalón; Slipp-
urinn, Grenjarnar og Flösin að
ógleymdum túnunum, þar sem
boltaleikir voru iðkaðir af krafti.
Túnin fjögur; Grundartún, Böðv-
arstún, Deildartún og Bakkat-
ún voru ein af mörgum útungun-
arstöðvum Gullaldarliðsins í fót-
bolta. Þar æfðu þeir sig bræðurn-
ir fjórir frá Reynistað með Rikka
í broddi fylkingar. Donni (Hall-
dór Sigurbjörnsson) átti heima við
Deildartún, en hann heillaði unga
fólkið með leikni sinni með bolt-
ann. Dagbjartur, Pétur Georgs og
Venni í Nýlendu voru ekki langt
undan og fleiri mætti hér upp
telja. Kartöflugarðarnir voru einn-
ig nýttir til leikja eftir að búið var
að taka upp á haustin.
Á veturna var ýmislegt sér til
gamans gert. Til dæmis voru útbú-
in tómstundaherbergi í kjöllurum
stærri húsanna. Þar voru stofnað-
ir klúbbar um allt milli himins og
jarðar. Stelpurnar stunduðu helst
handavinnu og strákarnir smíðuðu
flugvélamódel og flugdreka og allt
upp í kajaka, sem síðan var siglt á
um Lambhúsasundið.
Vonandi er að unga fólkið í dag
taki nú til við að rifja upp alla þá
leiki sem þarna fóru fram: Það
mundi lífga upp á mannlífið á
Skaganum.
Upplýsingar og heimildir úr
ýmsum áttum, m.a. ritum Ólafs
B. Björnssonar. Myndir frá Ljós-
myndasafni Akraness.
Ásmundur Ólafsson tók saman.
Þessi mynd er tekin fyrir 50 árum. Á myndinni eru 10 krakkar í fjörunni fyrir neðan Bakkatún. Á Lambhúsasundinu synda 10 svanir börnunum til heiðurs. F.v. Sigurjón Runólfsson (f. 1961), Krókatúni 9, Guðjón
Valdimarsson (f. 1960), Krókatúni 16, stúlka (óþekkt), Margrét Sólveig Sigurðardóttir (f. 1959), Deildartúni 2, Ásgerður Hlinadóttir (f. 1957), Vesturgötu 21, Guðrún Jónsdóttir (f. 1955), Krókatúni 15, Rósa
Jónsdóttir (f. 1962) Krókatúni 15, Rósa Sigurðardóttir (f. 1955) Deildartúni 10, Margrét Pétursdóttir (f. 1957) Grundartúni 1 og Sigríður Lárusdóttir (f. 1960) Deildartúni 10. Húsin eru frá vinstri: Bíóhöllin, síðan
Vesturgata 25 (hús Magnúsar Gunnlaugssonar), Vesturgata 25B (Staðarbakki), Bárugata 23 (Sigurhæð) og Vesturgata 23 (Hofteigur); milli Hofteigs og Sigurhæðar sést aðeins í þakið á húsinu nr. 21 við Vestur-
götu (Indriðastaði). Þá kemur Vesturgata 19 (Skafta-hús), Vesturgata 17 (Sigurðar Hallbjörnssonar-hús) og Vesturgata 10 (Níelsarhús). Fyrir neðan Bíóhöllina við klettana er Ásbjarnarskúr, beitingaraðstaða
HB & Co. Þar var v.b. Bjarni Jóhannesson einnig með aðstöðu. Lengst til hægri á myndinni eru ýmis fiskverkunarhús, m.a. Fiskivershúsin og aðstaða Sigurðar Hallbjörnssonar. Þar voru m.a. húsin „Fróðá“ (nú í
Byggðasafninu í Görðum) og Hængshús, kennd við Hæng h.f. Fjaran þarna var kölluð „fjaran fyrir neðan Hængshús“. Fyrir neðan Vesturgötu 19 var lón kallað „Skaftalón“ (nú autt svæði). Mörg húsanna eru nú
horfin á braut: Vesturgata 25 og 25B. Hofteigur var fluttur og stendur nú við Krókatún. Indriðastaðir brunnu 26. mars 1979; einnig brann Halldórshús (næsta hús fyrir ofan Bíóhöllina) þann 12. jan. 1963. Þá er
Sigurhæð við Bárugötu á braut. Fyrir neðan Bíóhöllina eru Nýjubæjarklettar og norður af þeim Nýjabæjarsandur og Nýjabæjarvör. Þaðan ýttu skipin úr vör sem fórust í Hoffmannsveðrinu 1884. Þar sem krakkk-
arnir standa var Bakkasandur, en þaðan var lengi útræði. Gatan fyrir ofan er Bakkatúnið. Mynd: Ólafur Fr. Sigurðsson.
Erlendir hermenn og strákar af Skaganum á Bakkatúni á stríðsárunum. Hermenn-
irnir eru óþekktir, en strákarnir eru f.v. Einar Lövdahl (f. 1929) sonur Sigmund
Lövdahl sem starfrækti Lövdahlsbakarí á Akranesi 1937-1947. Einar átti heima
á Deildartúni 4 og varð síðar barnalæknir, strákurinn í miðið er óþekktur en til
hægri er Eggert B. Sigurðsson, Deildartúni 6 (1929-2006), síðar matsveinn. Húsið í
baksýn er Deildartún 7. Óþekktur ljósmyndari.
Skipasmiðir hjá Þorgeiri og Ellert gefa sér tíma til myndatöku um miðja síðustu öld. F.v. Sigurður Guðmundsson í
Deildartungu, Guðni Jóhannsson, Arnfinnur Björnsson á Miðfelli, Jón Mýrdal Sigurðsson, Tómas Jónsson í Sandvík, Jóhann
Stefánsson í Skipanesi, Jóhannes Jónsson í Sandvík, Magnús Magnússon á Söndum og Sigurður Magnússon á Söndum.
Óþekktur ljósmyndari.