Skessuhorn - 20.07.2016, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Löggiltur pípulagningameistari
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Bifreiðaþjónusta Harðar ehf.
Smur og dekkjaþjónusta
Sala á dekkjum og olíuvörum
Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi
437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
ÖLL ALMENN GARÐVINNA
• Fjarlægjum tré og kurlum
• Útvegum sand, mold og möl
• Sláum garða
Síðastliðinn laugardag fór fram
fjórða umferð í Íslandsmeistara-
mótinu í motocross á Akrabraut
við Akrafjall. „Keppnin gekk eins
vel og hugsast gat. Veðrið var frá-
bært, logn og steikjandi hiti, braut-
in og aðstæðurnar til fyrirmynd-
ar og keppnin gekk slysalaust fyr-
ir sig. Það var mikil ánægja með-
al keppenda með mótið,“ segir Jó-
hann Pétur Hilmarsson formað-
ur Vélhjólaíþróttafélags Akraness í
samtali við Skessuhorn. „Þetta var
í fyrsta sinn sem keppt var í braut-
inni eftir að við snerum henni við,
þ.e.a.s. eftir að ákveðið var að keyra
öfugan hring en áður var gert. Fyrir
keppnina var keyrt tuttugu og fjór-
um vörubílsförmum af sandi í einn
kafla brautarinnar. Það var fyrir-
tækið Þróttur sem styrkti okkur
með sandi og erum við mjög þakk-
lát fyrir það. Við erum bara mjög
lukkuleg með þetta allt saman,“
segir Jóhann Pétur.
Bestum árangri Vestlendinga á
mótinu náði Skagamaðurinn Þor-
björn Heiðar Heiðarsson sem sigr-
aði í B-flokknum. Í sama flokki
lentu Jóhann Pétur Hilmarsson og
Sveinbjörn Reyr Hjaltason í fjórða
og fimmta sæti.
Önnur úrslit voru eftirfarandi:
85 flokkur.
Víðir Tristan Víðisson
Eiður Orri Pálmarsson
Axel Orri Arnarsson
85 flokkur yngri
Máni Freyr Pétursson
Fannar Freyr Jónasson
Sara Lind Jakobsdóttir
Kvennaflokkur
Gyða Dögg Heiðarsdóttir
Karen Arnardóttir
Aníta Hauksdóttir
MX kvenna (Unglingaflokkur)
Elísa Eir Gunnarsdóttir
Sara Lorange Magnúsdóttir
Salka Sól Hannibalsdóttir
MX kvenna 40+
Theodóra Björk Heimisdóttir
Björk Erlingsdóttir
MX2
Ingvi Björn Birgisson
Einar Sigurðsson
Oliver Örn Sverrisson
MX karla (Unglingaflokkur)
Elmar Darri Vilhelmsson
Viggó Smári Pétursson
Oliver Glick
40+/50+ flokkur
Ragnar Ingi Stefánsson
Heiðar Örn Sverrisson
Jón Kristján Jacobsen
B- flokkur
Þorbjörn Heiðar Heiðarsson
Gísli Þór Ólafsson
Steingrímur Kári Kristjánsson
C- flokkur
Þorgeir Ómarsson
Ástrós Líf Rúnarsson
MX Open
Ingvi Björn Birgisson
Guðbjartur Magnússon
Hlynur Örn Hrafnkelsson
bþb
Keppt var á Íslandsmeistaramóti í
motocross á Akrabraut
Þorbjörn Heiðar varð í fyrsta sæti í B flokki, Gísli Þór í öðru og Steingrímur Kári í þriðja.
Jóhannes Karl Guðjónsson hefur
tekið við þjálfarastarfi HK í fyrstu
deild karla í knattspyrnu. Hann
hefur starfað sem spilandi aðstoð-
arþjálfari það sem af er sumri en nú
tekur hann við starfi aðalþjálfara af
öðrum Skagamanni, Reyni Leós-
syni, sem hefur stýrt liðinu. Reynir
sagði upp störfum en hann tók við
af Þorvaldi Örlygssyni síðasta vet-
ur.
HK gerði tveggja ára þjálfara-
samning við Jóhannes Karl en þetta
munu vera hans fyrstu skref sem
aðalþjálfari. Hann býr þó yfir mik-
illi reynslu sem knattspyrnumað-
ur en hann lék í ein fjórtán ár sem
atvinnumaður m.a. með Burnley,
Aston Villa og Wolves í efstu deild
Englands. Þá spilaði hann einnig
34 landsleiki.
bþb
Jóhannes Karl tekur við HK
Reynsluboltinn Darrel Flake hef-
ur skrifað undir eins árs samning við
Skallagrímsmenn og mun hann því
leika með liðinu í Dominos deild-
inni næsta vetur. Flake, sem er 36
ára miðherji, er Borgnesingum að
góðu kunnur. Hann lék fyrst með
liðinu á árunum 2006-2008 og aftur
2010-2012. Frá 2014 hefur hann leik-
ið með öflugu liði Tindastólsmanna
sem m.a. léku til úrslita í Dominos
deildinni 2015. Síðasta tímabil var
Flake með 9,2 stig og 4,5 fráköst að
meðaltali í leik. „Við væntum mik-
ils af reynslu og leiðtogahæfni Flake
í ungu og efnilegu liði Skallagríms,“
segir Haraldur Már Stefánsson hjá
Körfuknattleiksdeild Skallagríms.
mm
Darrell Flake snýr
aftur í Borgarnes
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500