Skessuhorn - 20.07.2016, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2016 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Emir Dokara
rifbeinsbrotinn
SNÆF: Emir Dokara varnarmaður Víkings Ó.
er óleikfær þessa stundina sökum rifbeins-
brots. Óvíst er um hvenær hann snýr aftur á
völlinn eins og staðan er núna. Leikmanna-
hópur Víkings er þunnur þessa stundina en
auk Emirs er Farid Zato einnig meiddur og
þeir Gísli Eyjólfsson og Þórhallur Kári Knúts-
son hafa báðir verið kallaðir til baka úr láni
af liðum sínum. Ejub sagði í samtali við fot-
bolti.net að hann ætlaði sér að reyna ná í
þrjá til fjóra leikmenn í félagsskiptagluggan-
um. -bþb
Kári tapaði
tveimur leikjum
AKRANES: Kári spilaði tvo leiki í þriðju deild
karla í knattspyrnu í liðinni viku við liðin í efstu
tveimur sætunum. Fyrri leikurinn var á heima-
velli gegn Víði frá Garði og lauk leiknum með
2-1 sigri Víðismanna en mark Kára skoraði
Bakir Anwar Nassar. Síðari leikurinn fór fram á
Sauðárkróksvelli gegn liði Tindastóls. Sá leikur
endaði 1-0 fyrir Tindastól. Lið Kára er nú komið
niður í sjöunda sæti deildarinnar en næsti leik-
ur liðsins er á laugardaginn næstkomandi, 23.
júlí, á Helgafellsvelli í Vestmannaeyjum gegn
liði KFS. -bþb
Skallagrímur
sigraði Örninn
BORGARNES: Skallagrímur er á miklu skriði í
C-riðli fjórðu deildar karla í knattspyrnu. Þeir
unnu sinn þriðja leik í röð þegar liðið mætti
Erninum á Skallagrímsvelli á föstudaginn í lið-
inni viku. Sigurinn var nokkuð auðveldur fyr-
ir Skallagrím en leikurinn fór 5-2. Viktor Ingi
Jakobsson skoraði þrennu í leiknum en hin
tvö mörkin skoruðu þeir Sölvi G. Gylfason og
Enok Ingþórsson. Skallagrímur er nú í þriðja
sæti riðilsins og næsti leikur þeirra er útileik-
ur gegn KB mánudaginn 25. júlí. -bþb
Víkingur sigraði og
tapaði í vikunni
SNÆF: Víkingur Ó. lék tvo leiki í A-riðli
fyrstu deildar kvenna í knattspyrnu í lið-
inni viku. Miðvikudaginn 13. júlí tók lið-
ið á móti Fram og sunnudaginn 17. júlí fór
liðið í Breiðholtið og lék gegn ÍR. Í leiknum
gegn Fram dró til tíðinda á 25. mínútu þeg-
ar heimakonur fengu vítaspyrnu. Samira Su-
leman fór á punktinn sendi boltann í netið
framhjá markverði Fram. Var það hennar átt-
unda mark í jafn mörgum leikjum í deildinni
í sumar. Fehima Líf Purisevic innsiglaði síð-
an 2-0 sigur Víkings á lokamínútu leiksins.
Ekki fór eins vel þegar liðið mætti toppliði ÍR;
lokatölur í þeim leik urðu 2-0 fyrir Breiðhylt-
ingum. Víkingur situr enn í þriðja sæti eftir
leikina tvo með 18 stig, fjórum stigum frá ÍR
sem tróna á toppnum. Næsti leikur Víkings er
í kvöld klukkan 20:00 gegn liði Hvíta Riddar-
ans og leikið verður í Mosfellsbæ. -bþb
Kári fær liðstyrk
AKRANES: Nú er félagaskiptaglugginn hér-
lendis opinn. Kári hefur fengið tvo leikmenn
til liðs við sig til þess að styrkja liðið fyrir síðari
hluta tímabilsins í þriðju deildinni. Leikmenn-
irnir eru þeir Atli Albertsson og Ragnar Már
Lárusson. Báðir geta þeir spilað frammi og úti
á vængjunum. Atli er Skagamaður sem hefur
síðustu tvær leiktíðir spilað með Aftureldingu í
2. deildinni. Atli spilaði síðast með Kára tíma-
bilið 2014 og skoraði þá ellefu mörk í níu leikj-
um í fjórðu deildinni. Ragnar Már er einnig
Skagamaður en hefur verið hjá Fylki í sumar.
Hann kom heim úr atvinnumennsku frá Brig-
hton í Englandi í vor. -bþb
Síðastliðið sunnudagskvöld fór
fram leikur Skagamanna og Vals á
Akranesvelli í elleftu umferð Pepsi
deildar karla. Skagamenn hafa verið
á miklu skriði í deildinni og héldu
sigurgöngu sinni áfram með 2-1
sigri á Valsmönnum og unnu þar
með sinn fjórða leik í röð. Skaga-
menn lyftu sér upp fyrir Valsmenn
með sigrinum og eru nú í sjötta
sæti með sextán stig en Valsmenn í
því sjöunda með fjórtán stig.
Það vakti mikla athygli þegar
Skagamenn spiluðu gegn Stjörn-
unni í lok júní að Ármann Smári
hafði aflitað hárið en þar með stóð
hann við loforð sitt um að aflita á
sér hárið ef Skaginn ynni KR í um-
ferðinni á undan. Áður höfðu Hall-
ur Flosason og Árni Snær Ólafsson
aflitað hár sitt. Það kætti marga
stuðningsmenn Skagans í gær þeg-
ar liðin gengu inn á völlinn að þeir
Arnór Snær Guðmundsson og
Darren Lough höfðu bæst í hóp
þeirra aflituðu og öll varnarlínan
því orðin aflituð.
Leikurinn var eign Valsmanna
fyrsta hálftímann og sóttu þeir
þungt að marki Skagamanna á
meðan heimamenn sköpuðu sér
ekki færi. Mark frá Valsmönnum lá
í loftinu. Það voru þó Skagamenn
sem skoruðu fyrsta markið. Þeir
fengu innkast á 33. mínútu sem
Jón Vilhelm tók; hann kastaði bolt-
anum langt inn í teig beint á höf-
uðið á Ármanni Smára Björnssyni
sem stangaði boltann í netið. Stað-
an 1-0 fyrir Skagamenn og markið
eins og blaut tuska framan í Vals-
menn sem höfðu stjórnað leikn-
um.
Fimm mínútum síðar braut varn-
armaður Vals á Garðari Gunn-
laugssyni rétt fyrir utan vítateig
Valsmanna. Aukaspyrnan var á
stórhættulegum stað. Garðar hef-
ur ekki tekið margar aukaspyrnur
fyrir Skagamenn í gegnum tíðina
en hann tók þessa og skoraði með
laglegu skoti yfir varnarvegg Vals-
manna. Garðar virðist geta skorað
að vild þessa dagana en markið var
tíunda mark hans í ellefu leikjum.
Þegar flautað var til hálfleiks var
staðan 2-0 fyrir Skagamenn sem
voru betri aðili leiksins síðasta kort-
er hálfleiksins. Síðari hálfleikurinn
var eins og bróðurpartur fyrri hálf-
leiks; Valsmenn voru meira með
boltann og stjórnuðu leiknum. Á
64. mínútu fékk Andri Adolphsson
boltann við vítateig Skagamanna
vinstra megin, fór inn á völlinn á
hægri löppina og skaut boltanum;
boltinn fór í boga yfir alla þá sem
voru inn í vítateignum áður en hann
endaði í stönginni og inn í netinu.
Gríðarlega fallegt mark hjá Andra
gegn sínum gömlu félögum.
Nær komust Valsmenn ekki
og lokatölur því 2-1 fyrir Skaga-
menn. Skagamenn eru heitasta liðið
í deildinni þessa stundina og mæta
þeir ÍBV á heimavelli næstkomandi
sunnudag, 24. júlí.
bþb/ Ljósm. gbh.
Sigurganga Skagamanna heldur áfram
Hér syngur boltinn í netinu eftir aukaspyrnu Garðars Gunnlaugssonar.
Ármann Smári brosmildur eftir markið og Valsmenn fremur vonsviknir.
Víkingar tóku á móti Stjörnunni í
Pepsi deild karla í knattspyrnu í gær.
Stjarnan hafði sigur með þremur
mörkum gegn tveimur. Var það fyrsta
tap Víkinga á Ólafsvíkurvelli síðan í
ágúst 2014. Leikurinn fór fremur
rólega af stað en færðist heldur bet-
ur fjör í hann þegar korter var liðið
frá upphafsflautinu. Þá áttu gestirnir
skot að marki sem Christian Liberato
varði glæsilega í horn. Eftir horn-
spyrnuna kom einmitt fyrsta mark
leiksins. Boltinn sveif inn í teiginn þar
sem Baldur Sigurðsson fékk óáreittur
að hefja sig á loft og stangaði hann
boltann í netið. 1-0 fyrir Stjörnuna.
En heimamenn voru ekki lengi að
svara. Aðeins tveimur mínútum síðar
fengu Víkingar aukaspyrnu rétt utan
teigs eftir að boltinn fór í hönd varn-
armanns. Hrvoje Tokic tók spyrnuna
og smellti boltanum upp í samskeyt-
in. Glæsilegt mark. Skömmu síðar
vildu heimamenn fá vítaspyrnu þegar
þeim fannst Tokic vera togaður nið-
ur en dómari leiksins var á öðru máli.
Næst fengu gestirnir dauðafæri þegar
þeir komust inn fyrir vörnina en bolt-
inn fór yfir markið.
Á 29. mínútu komust Stjörnu-
menn yfir á nýjan leik og aftur eft-
ir hornspyrnu. Boltinn sveif alla
leið á fjærstöng þar sem Grétar Sig-
finnur Sigurðarson kom og stýrði
honum í netið af stuttu færi. Fleiri
mörk voru ekki skoruð í fyrri hálf-
leik. Stuttu fyrir leikhlé var Hrvoje
Tokic hins vegar vikið af velli. Hann
féll í jörðina eftir skallaeinvígi við
Baldur Sigurðsson. Eitthvað fór það
í skapið á honum því þar sem hann
lá í jörðinni sparkaði hann í Baldur
með báða fætur á undan sér og fékk
umsvifalaust að líta rauða spjaldið.
Síðari hálfleikur fór heldur ró-
lega af stað og fátt markvert gerð-
ist þar til á 65. mínútu. Þá jafnaði
Þorsteinn Már Ragnarsson fyrir
Víking. Hann fékk boltann skammt
utan vítateigs, komst af miklu harð-
fylgi einn í gegnum vörnina og klár-
aði færið vel. En staðan var ekki jöfn
lengi. Stjörnumenn skoruðu síðasta
mark leiksins strax í næstu sókn.
Stjörnumenn komust upp að enda-
mörkum innan vítateigs, boltinn
var sendur út í teiginn þar sem Arn-
ar Már Björgvinsson kom á ferðinni
og skoraði. Reyndist það vera loka-
mark leiksins og Stjarnan því fyrsta
liðið til að leggja Víking á heima-
velli í tvö ár.
Víkingur er eftir leikinn í 5.
sæti deildarinnar með 18 stig eft-
ir 11 leiki. Næst mæta þeir Breiða-
bliki, sunnudaginn 24. júlí, einnig á
heimavelli.
kgk/ Ljósm. af.
Fyrsta tap Víkings á heimavelli í tvö ár
Christian Liberato kýlir boltann frá marki sýnu í leiknum.
Alfreð Már Hjaltalín var valinn maður leiksins af stuðningsmönnum Víkings. Þeir
Svavar og Max færðu Alfreð viðurkenninguna.