Skessuhorn - 12.10.2016, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2016 13
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM Í
UPPBYGGINGARSJÓÐ VESTURLANDS
Veittir verða styrkir til
atvinnuþróunar og nýsköpunar
Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, www.ssv.is
er að finna upplýsingar um umsóknarferli, reglur og viðmið varðandi
styrkveitingar undir hnappi vinstra megin á síðunni sem lítur svona út:
Frestur til að skila umsóknum er til 26. október 2016
Uppbyggingarsjóður
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggð-
ar í síðustu viku var rætt um hljóð-
mælingar vegna fyrirætlunar um
uppbyggingu skotæfinga- og akst-
ursíþróttasvæðis í landi Hamars.
„Byggðarráð samþykkti að fela um-
hverfis- og skipulagssviði að skoða
fleiri möguleg svæði í eigu sveitar-
félagsins undir annars vegar skot-
æfingasvæði og hins vegar mot-
orcrosssvæði og kynna niðurstöður
þeirrar skoðunar á fundi í október,“
segir í fundargerð.
Björn Bjarki Þorsteinsson (D)
lagði fram eftirfarandi bókun:
„Undirritaður telur að með skýr-
um leikreglum eins og kynntar hafa
verið af viðkomandi félagasamtök-
um í kringum mótorcrosssvæði sem
og skotæfingasvæði væri hægt að
skapa frekari sátt um þá staðsetn-
ingu sem umhverfis- og skipulags-
nefnd lagði til á sínum tíma. Ljóst
er að nokkur andstaða er í samfé-
laginu við þær staðsetningar sem
um ræðir. Í þeirri viðleitni að leita
leiða til frekari sáttar og þeirri trú
að markviss vinna fari í gang til að
finna möguleg önnur ásættanleg
svæði samþykkir undirritaður að
vísa þessum tveimur viðfangsefnum
aftur til umhverfis- og skipulags-
sviðs til umfjöllunar og úrvinnslu í
samstarfi við annarsvegar Skotfélag
Vesturlands og hinsvegar Mótor-
krossfélagið.“ mm
Skoða fleiri svæði
fyrir skotæfingar
og motorcross
Samsett mynd. Ljósm. Skessuhorn/ÞIT.
Óskum Gunnlaugsstaðabændum
til hamingju með nýja fjósið
G. Skaptason - Sími 481 1020 - Netfang: gskapta@internet.is