Skessuhorn - 12.10.2016, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 201616
Þessa dagana standa yfir tökur á
tveggja þátta sjónvarpsseríu sem
nefnist Líf eftir dauðann. Verð-
ur hún sýnd á RUV um páskana.
Akranes og nágrenni er umgjörð-
in í flestum atriðum í þáttunum og
var meðal annars myndað á Vestri
Rein í síðustu viku. Áætlað er að
tökur standi yfir í alls sjö daga á
Akranesi. Margir kunnir leikar-
ar koma við sögu í þáttunum. Á
fimmtudaginn þegar ljósmynd-
ari Skessuhorns átti leið hjá Akra-
neskirkju stóð yfir upptaka á at-
riði þar sem líkkista var borin með
hraði inn í kirkjuna. Meðal leikara
þar mátti sjá Sigurð Sigurjónsson,
Jóhann Sigurðarson, Þröst Leó
Gunnarsson og Þorsteinn Bach-
mann. Leikstjóri þáttanna er Vera
Wonder Sölvadóttir.
mm
Meistaraflokkar Grundarfjarðar í
blaki og körfubolta stóðu fyrir fjár-
öflun á dögunum með því að halda
kótilettukvöld í sal Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Góð mæting var sem
endranær en gestir nutu þess að
borða hinar þjóðlegu kótilettur í
raspi ásamt því að fylgjast með Ís-
landi vinna nauman sigur á Finn-
um í æsispennandi landsleik í fót-
bolta karla. Gestirnir voru allflest-
ir í sjöunda himni er þeir yfirgáfu
skemmtunina en hvort að það var
útaf kótilettunum eða sigri Íslands
skal ósagt látið.
tfk
Kótilettukvöld
meistaraflokkana
Rósa Guðmundsdóttir sá um veislustjórn en hafði þó tíma til að fá sér aðeins af
kræsingunum á diskinn.
Líf eftir dauðann tekið upp á Akranesi
Líkkista var í einu atriðinu borin með hraði inn í Akraneskirkju.
Rýnt í afraksturinn eftir töku til að gá hvort allt hefði gengið sem skyldi. Næst á
mynd er Vera Wonder Sölvadóttir leikstjóri. Til hægri er Þorsteinn Bachmann.
Harðsnúið lið töku- og annarra tækni-
manna er að störfum.
Fimmtudaginn 6. október var haldið upp á 35 afmæli Grunda-
skóla á Akranesi með ýmsum hætti. Farið var í skrúðgöngu
um morguninn frá skólanum og í íþróttahúsið að Jaðarsbökk-
um þar sem fram fór samsöngur hjá öllum bekkjardeildum
skólans. Þá var starfsfólki boðið í afmæliskaffi en í Safnaskál-
anum í Görðum var opnuð leikmunasýning úr söngleikjum
skólans. Það er textílkennari Grundaskóla og listamaðurinn
Friðrika Eygló Gunnarsdóttir sem hefur saumað og hannað
alla leikbúninga sem notaðir hafa verið á sýningunum.
Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri ritaði grein í síðasta
Skessuhorn þar sem hann rakti meðal annars sögu skólans,
áherslur og sérstöðu. Þar segir hann að Grundaskóli hafi alla
tíð lagt áherslu á opið skólastarf og að skólahúsið hafi verið
hannað með það í huga að auðvelt væri að opna kennslurými
og brjóta upp hefðbundið skólastarf. Nemendur Grunda-
skóla eru í dag 630 og er því skólinn með þeim fjölmennari
á landinu. Nemendafjöldi hefur farið vaxandi að undanförnu
og hefur verið fjölgað færanlegum kennslustofum á skóla-
lóð til að hægt sé að rúma alla nemendur. Fyrsti skólastjóri
Grundaskóla var Guðbjartur Hannesson, þá tók Hrönn Rík-
harðsdóttir við og loks frá síðasta hausti Sigurður Arnar Sig-
urðsson.
Meðfylgjandi myndir frá afmælisdeginum tala sínu máli.
mm
Fögnuðu 35 ára afmæli Grundaskóla