Skessuhorn - 12.10.2016, Page 26
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 201626
Þrír ungir menn sem eiga rætur í
Fimleikafélagi Akraness, FIMA, eru
með öðru landsliðsfólki á Evrópu-
móti í hópfimleikum. Mótið er hald-
ið í Maribor í Slóveníu. Þetta eru þeir
Logi Örn Axel Ingvarsson, Helgi
Laxdal Aðalgeirsson og Guðmund-
ur Kári Þorgrímsson sem allir æfa nú
með Stjörnunni í Garðabæ. Þeir Logi
og Helgi stunda nám í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi en Þorgrímur
Kári er á leiklistarbraut í Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ. Undankeppni
Evrópumótsins verður í dag, mið-
vikudag, en úrslitakeppnin á föstu-
daginn. Landslið Íslands er skipað
tólf ungmennum, sex af hvoru kyni.
Tíu keppa en tvö eru til vara. Hóp-
fimleikar er dýr íþróttagrein og kost-
ar það hvern keppanda í landsliðinu
um 350 þúsund krónur að taka þátt á
Evrópumótinu.
Skessuhorn sló á þráðinn til eins
Vestlendingsins sem nú dvelur ytra,
Guðmundar Kára Þorgrímssonar.
Hann er frá Erpsstöðum í Dölum.
Guðmundur Kári kveðst spenntur að
taka þátt í mótinu, en vissulega hafi
fjármögnun ferðarinnar tekið sinn
toll. „Ég hef verið að selja sjampó,
unnið við vörutalningu í Bónus og
bara allt sem hefur boðist til að vinna
upp í ferðakostnaðinn. Mesta aðstoð
hef ég þó fengið frá sveitungum mín-
um en ég óskaði eftir stuðningi með
því að setja inn stöðufærslu á Facebo-
ok-síðu Dalamanna, sem heitir Sölu-
síða Dalabyggðar og Reykhólasveitar.
Fólk hefur verið duglegt að styrkja
mig. Líklega er ég með þessu búinn
að fjármagna um helming ferðakostn-
aðarins,“ sagði Guðmundur Kári
þegar blaðamaður heyrði í honum
síðastliðinn sunnudag. Hann kveðst
búast við að það sem uppá vantaði á
ferðakostnaðinn muni foreldrar hans
greiða.
En aðdragandi þess að Guðmund-
ur Kári er nú í landsliðinu í hópfim-
leikum hefur verið talsverður, enda
ekki sjálfgefið að sveitapiltur nái þess-
um árangri í hópfimleikum. „Það var
þannig að þegar ég var í sjöunda bekk
grunnskóla fékk ég að æfa í einn vetur
á Akranesi. Mamma keyrði mig einu
sinni í viku á æfingar hjá FIMA og
bróðir minn byrjaði í fótbolta á sama
tíma. Þegar ég svo var í áttunda bekk,
veturinn 2012-2013, flutti mamma
með mig, bróður minn og yngri syst-
ur á Akranes þar sem við bjuggum þá
um veturinn. Þá fékk ég að prófa að
búa í þéttbýlinu í einn vetur og æfa af
kappi. Eftir áttunda bekkinn fluttum
við svo aftur heim í sveitina og hætti
ég þá að æfa fimleika um tíma. Haust-
ið 2015 byrjaði ég svo í Verkmennta-
skólanum á Akureyri og fór að æfa
með Fimleikafélaginu á Akureyri. Þá
var mér boðið að mæta á landsliðs-
úrtökuæfingar og hef verið í liðinu
síðan. Ég skipti svo um skóla í haust,
byrjaði í Fjölbraut í Garðabæ og fór
að æfa fimleika með Stjörnunni,“ seg-
ir Guðmundur Kári.
Því má við þetta bæta að ef lesend-
ur vilja styrkja Guðmund Kára í verk-
efni hans, þá er söfnunarreiknings-
númer: 0318-13-110245 og kennital-
an 120199-2859. mm
Kór Lindakirkju ætlar að bjóða íbú-
um á Vesturlandi á tónleika í Tón-
bergi, sal Tónlistarskólans á Akra-
nesi, laugardaginn 15. október kl.
17:00. Stjórnandi er Óskar Einars-
son. Ókeypis er á tónleikana.
Kór Lindakirkju er kirkjukór sem
syngur aðallega gospeltónlist en hef-
ur einnig tekið þátt í hinum ýmsu
verkefnum með mörgum þekktustu
söngvurum landsins. Margir kann-
ast til dæmis við kórinn úr sýning-
unni Jesus Christ Superstar sem nú
hefur verið sýnd sjö sinnum í Eld-
borg fyrir fullu húsi. Kórinn gaf út
geisladisk með glænýrri gospeltón-
list á haustmánuðum 2014. Disk-
urinn ber nafnið Með fögnuði og
verður á tilboði eftir tónleikana á
2.000 kr. mm
Kór Lindakirkju býður til tónleika
Inga Björk Bjarnadóttir skipar ann-
að sæti á lista Samfylkingarinnar í
Norðvesturkjördæmi fyrir komandi
kosningar. Hún er alin upp í Borg-
arnesi en býr í Reykjavík eins og er,
þar sem hún stundar meistaranám í
listfræði við Háskóla Íslands. „Það
var frábært að alast upp í Borgar-
nesi. Maður kann kannski ekki að
meta heimabæinn sinn þegar mað-
ur er unglingur, en þegar maður
flytur burtu þá fer maður til dæm-
is að sakna Hafnarfjallsins,“ segir
Inga Björk og brosir. Hún segir að
pólitískur áhugi hennar hafi kvikn-
að þegar hún var 15 ára, eða þegar
efnahagshrunið varð á Íslandi. „Ég
fann út að ég átti heima í Samfylk-
ingunni, því flokkurinn byggir á ald-
argamalli hefð jafnaðarstefnunnar.“
Sjálf hefur hún oft þurft að berjast
fyrir rétti sínum, en hún hefur verið
í hjólastól frá þriggja ára aldri vegna
vöðvarýrnunarsjúkdóms. „ Ég hef
alltaf vitað hvað kerfið okkar er ófull-
komið og hvað sumir standa höllum
fæti í samfélaginu. Bara það að þurfa
að berjast fyrir hlutum eins og að fá
hjólastól fannst mér svo skrýtið.“
Aldur er afstæður
Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún
sex ára reynslu af því að starfa inn-
an flokksins. „Mér hafa verið veitt
mjög mörg tækifæri, þrátt fyrir að
ég sé bara 23 ára gömul, og einhvern
veginn verið lyft upp af flokknum.“
Til dæmis hefur hún verið í fram-
kvæmdastjórn flokksins síðustu tvö
ár, verið ráðgjafi fyrir þingmenn og
sveitastjórnafólk um málefni fatlaðs
fólks og unnið í Velferðarráðuneyt-
inu fyrir Öryrkjabandalag Íslands.
Hún fékk einnig hvatningarverðlaun
Öryrkjabandalagsins fyrir að berjast
fyrir bættu aðgengi í Borgarbyggð
árið 2012.
Sumir sjá þó aðeins aldurinn.
„Þegar ég var í prófkjörsbaráttunni
fékk ég margar leiðinda athuga-
semdir þar sem sett var út á aldur-
inn.“ Hún segir að aldur sé afstæð-
ur og allt fari þetta eftir því hvern-
ig maður spili úr lífsreynslu sinni og
hún hafi góðan sjóð af reynslu sem
hún geti gengið í.
Hin raunverulega byrði
samfélagsins
Inga Björk er mikil jafnaðarkona og
það skín í gegn í öllu hennar tali.
Henni er tíðrætt um ójöfnuð í sam-
félaginu, hvort sem það er á hlut
kvenna, barna, öryrkja, fatlaðra eða
fátækra. Þá nefnir hún einnig þann
ójöfnuð sem fólk á landsbyggðinni
býr við. Fjöldinn allur af ungu fólki
skili sér ekki aftur í heimabyggð eft-
ir nám, því skortur sé á tækifærum.
Inga Björk telur að þar væri hægt að
búa betur að ungu fólki með betra
netsambandi og sterkari innviðum.
„Manni finnst eitthvað svo galið að
það sé ekki netsamband á heilu og
hálfu svæðinum þegar fólk er að
reyna að vera með atvinnustarfsemi
og standa fyrir nýsköpun. Fjarskipt-
in skipta svo gríðarlega miklu máli.“
Inga Björk segir að barnabætur
þurfi einnig að hækka mikið til að
búa betur að barnafjölskyldum. „Ég
lít á barnabætur sem styrk til barna-
fjölskyldna, óháð tekjum.“ Barna-
bætur á Íslandi séu allt of lágar mið-
að við hin Norðurlöndin. Hún segir
það ótækt að margar fjölskyldur þurfi
að hafa áhyggjur af því hvernig það
eigi að borga fyrir læknisheimsókn
eða menntun. „Svo heyrum við af
Íslendingum sem eru með milljónir
í skattaskjólum. Það horfir enginn á
það að það er hópur á Íslandi sem
býr við allt önnur kjör en almenn-
ingur og þau eru hin raunverulega
byrði á samfélaginu. Fólk sem vill
ekki taka þátt í að byggja upp þetta
samfélag með okkur,“ segir hún og
bendir á að aðeins lítill hópur eigi
stóran hluta af öllum auðnum á Ís-
landi. „Ég vil að þeir sem þéna mest
greiði meira til samfélagsins, því
þetta er samvinnuverkefni.“
Mikið hefur verið rætt um stöðu
kvenna í pólitík. Nokkra þingkonur
hættu í pólitík á þessu ári og sögðu
erfitt að vera konur í pólitík. Inga
Björk segir að hún finni ekki mik-
ið fyrir þessu á eigin skinni, og er
ánægð með hina feminísku undir-
öldu sem sé í samfélaginu í dag. „Ég
finn að maður hefur mikinn stuðn-
ing,“ segir Inga Björk og bætir við
að henni finnist gott að starfa innan
Samfylkingarinnar þar sem flokkur-
inn byggi að miklu leyti á feminísk-
um gildum.
Vill byggja upp betra
heilbrigðiskerfi
Inga Björk segir að það sem sé brýn-
ast á komandi kjörtímabili sé að
endurreisa heilbrigðiskerfið og bæta
þjónustu á landsbyggðinni. Fólk eigi
að geta fengið góða heilbrigðisþjón-
ustu í heimabyggð. Hún fékk að sjá
með eigin augum hvernig komið er
fyrir heilbrigðiskerfinu núna í sum-
ar þegar hún lenti í slysi og þurfti að
leggjast inn á spítala. „Þetta er bara
löngu komið að þolmörkum, far-
ið að ógna lífi sjúklinga og starfsólk
er að brenna út,“ segir hún og bætir
við þetta sé ekki ástand sem hafi ver-
ið komið á yfir eina nótt. „Það hef-
ur verið kvarnast úr heilbrigðiskerf-
inu síðan 2003,“ segir hún. Nú sé
svo komið að almenningur þurfi að
greiða 20% af meðferðarkostnaði til
heilbrigðiskerfisins. „Þú átt ekki að
þurfa að hafa peningaáhyggjur þegar
þú ert í krabbameinsmeðferð. Þetta
er ekki samfélag sem ég get sætt mig
við að búa í,“ segir Inga Björk og
bendir á að þetta sé ekki ritað í stein.
„Það voru menn sem settu reglurnar
og menn geta hæglega breytt þeim.
Ég get ekki vitað af öllu óréttlæt-
inu í íslensku samfélagi og látið mig
það engu varða,“ segir Inga Björk að
endingu. klj
Endurreisn heilbrigðiskerfisins
er mikilvægasta verkefnið
Inga Björk Bjarnadóttir.
KOSNIN
GAR
2016
Hljómsveitin Fearless Warri-
ors of the Roseland heldur tón-
leika í Akranesvita fimmtudag-
inn 13. október næstkomandi kl.
21. „Samvinnuverkefnið Rosel-
and er hvoru tveggja vettvangur til
samskipta og ráðrúms, umhverfi
þar sem draumar dansa sem ljóð
og myndir. Fjórir grunnmeðlim-
ir sveitarinnar leggja til borðs sína
tónlistarlegu reynslu og menning-
arlegan bakgrunn sem þeir tvinna
saman í nýjar tónsmíðar. Þau leita
að sameiginlegum grunni sem er
einhvers staðar á milli hinnar nor-
rænu naumhyggju, austurlenskra
hljóma og suðrænnar ástríðu,“
segir í tilkynningu. Í sínu fyrsta
tónleikaferðalagi um Skandinavíu
og Eystrasaltsríki fær hljómsveitin
til liðs við sig listamenn frá hverj-
um stað sem þau heimsækja, til
þess að skapa með sér sjónræna
tónleika þar sem orð hreyfa og
hljóð lýsa í gegnum skugga. Á tón-
leikunum á fimmtudaginn koma
fram þau Juan Pino, Vootele Ru-
usmaa, Daníel Helgason og Anna-
Maria Huohvanainen. Aðgangur
er ókeypis.
-fréttatilkynning
Halda tónleika í Akranesvita
Þrír Vestlendingar á Evrópumóti í hópfimleikum
Þarna er Guðmundur Kári að
framkvæma dansmóment
sem kallað er hávinkill.
„Dansmóment er ákveðin
æfing sem við gerum á
gólfæfingum,“ segir hann.
Logi Örn Ingvarsson.Helgi Laxdal Aðalgeirsson.