Skessuhorn - 12.10.2016, Síða 32
Ekki gera málamiðlanir
þegar kemur að öryggi
Goodyear nagladekk
hemla best í snjó
samkvæmt FÍB*
Vetrardekkjakönnun 2015-2016
Nokkrir metrar í hemlunarvegalengd geta skipt öllu máli
Þú færð Goodyear vetrardekkin á öllum betri hjólbarðaverkstæðum
ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI
Eiríkur J. Ingólfsson ehf.
S
ke
ss
uh
or
n
20
13
Íslandsmeistaramótið í klassískum
kraftlyftingum fór fram um liðn
helgi. Kraftlyftingafélag Akraness
átti þar þrjá verðlaunahafa. Ein-
ar Örn Guðnason keppti í -105 kg
flokki og vann til gullverðlauna.
Hann lyfti 275 kg í hnébeygju, 184
kg í bekkpressu og 270 kg í rétt-
stöðu. Gera það 729 kg samanlagt
sem um leið er Íslandsmet. Hné-
beygju- og bekkpressulyftur Ein-
ars eru einnig Íslandsmet í klass-
ískum lyftingum.
Í -74 kg flokki keppti hinn 17
ára gamli Svavar Örn Sigurðs-
son. Hann beygði 177,5 kg í hné-
beygju, lyfti 130 kg í bekkpressu
og 207,5 kg í réttstöðu. Samanlagt
515 kg og skilaði það Svavari gull-
verðlaunum. Með bekkpressu- og
réttstöðulyftum sínum setti Svavar
Íslandsmet í drengjaflokki.
Þá keppti Kári Rafn Karlsson í
+120 kg flokki og hafnaði í öðru
sæti. Hann lyfti 232,5 kg í hné-
beygju, 125 kg í bekkpressu og 250
kg í réttstöðu. Samanlagt 607,5 kg.
kgk
Skagamenn
eignuðust tvo
Íslandsmeistara
Einar Örn Guðnason vann til gullverð-
launa og setti Íslandsmet í klassískum
kraftlyftingum í -105 kg flokki.
Um síðustu helgi var Nesballið
haldið en það er árleg skemmtun
eldri borgara á Snæfellsnesi. Skipst
er á að halda ballið í Stykkishólmi,
Grundarfirði og Snæfellsbæ. Var
hún haldin félagsheimilinu Klifi
í Ólafsvík. Þegar skemmtunin er
haldin í Snæfellsbæ sjá félagasam-
tök í bæjarfélaginu um hana og
eru það Lionsklúbbur Ólafsvíkur,
Lionsklúbburinn Rán og Lions-
klúbburinn Þerna ásamt Kvenfé-
lagi Hellissands. Boðið var upp á
marineraðan þorsk og rækjur í for-
rétt, íslenskt lambakjöt í aðalrétt
og fromage í eftirrétt. Að venju var
vel mætt og var 101 miði seldur.
Dóra Unnars sá um veislustjórn
og uppistand á meðan á borðhaldi
stóð. Að borðhaldi loknu kölluðu
þeir félagar Emanúel Ragnarsson,
fráfarandi formaður Félags eldri-
borgara í Snæfellsbæ og Jón Guð-
mundsson, varaformaður félags-
ins, til sín á svið fulltrúa þeirra fé-
laga sem að skemmtuninni stóðu
og færðu þeim fána félagsins sem
þakklætisvott. Einnig færðu þeir
félögum eldri borgara í Grund-
arfirði og Stykkishólmi fána við
þetta sama tækifæri. Það var svo
hljómsveitin Bít sem spilaði fyr-
ir dansi.
þa
Nesballið var
haldið í Klifi
þetta árið
www.skessuhorn.isFréttaveita Vesturlands