Skessuhorn


Skessuhorn - 26.10.2016, Qupperneq 4

Skessuhorn - 26.10.2016, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 20164 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Af sómölskum uppalanda Á laugardaginn göngum við til kosninga. Niðurstaðan verður annað hvort sigur eða tap flokkanna, en í öllum tilfellum sigur lýðræðisins. Þessi réttur okkar að fá á fjögurra ára fresti að ráða fólk til að setja lögin í landinu og fara með framkvæmdavaldið er alls ekki sjálfgefinn, því er nú öðru nær. Í síðustu viku dvaldi ég í nokkra daga utan landsteinanna, í sjálfum Ameríku- hreppi. Fór í svona ríflega helgarferð sem þar af leiðandi var að stórum hluta varið í sæti á einni af þotum Icelandair, enda var ferðast í fjögur þús- und kílómetra hvora leið. Í þessari ferð fórum við einn daginn í borgarrölt og tókum leigubíl nið- ur í miðbæ Minneapolis borgar, en í henni búa nákvæmlega tíu sinnum fleiri en á öllu Íslandi. Leigubílstjórinn var okkur sérlega eftirminnileg- ur. Hann er af sómölskum ættum, hraktist frá heimalandi sínu snemma á tíunda áratugnum vegna blóðugs borgarastríðs sem þar geisaði og fjöl- skylda hans dreifðist af þeim sökum vítt og breitt um Evrópu og Ameríku. Hann var málgefinn mjög þessi maður og þegar hann sá að með okkur hjónum í för var fjórtán ára dóttir okkar ákvað hann upp á eigin spýtur að verja bílferðinni í langa og mikla eldskírnarræðu. Hann beindi orðum sínum til unglingsins í ferðinni. Alltaf skyldi hlusta á það sem foreldrarnir hefðu að segja því þeir vildu börnum sínum vel. Sérstaklega væru mæð- urnar það ankeri í lífi hvers barns sem sjaldan væri að fullu metið að verð- leikum. Ungt fólk í dag þyrfti á því að halda að heyra hvernig foreldrar þeirra hefðu haft það í æsku, foreldrar þeirra og koll af kolli. Börn þessa leigubílstjóra hafa alist upp í Ameríku. Sjálfur sagðist hann vera strangur uppalandi sem vildi börnum sínum ávalt það besta. Hann neitaði þeim hiklaust um óþarfa, eða í það minnsta þyrftu þau alltaf að gera sér fulla grein fyrir að óþarfa prjál kæmi ekki af sjálfu sér. Krakkar nú til dags væru margir hverjir að alast upp við að horfa í gaupnir sér á síma eða tölvur og væru að fara á mis við ýmis uppeldisleg atriði sem næstu kynslóðir á undan hefðu þurft að tileinka sér. Hann sagðist því hafa ákveðið að þegar börn hans næðu unglingsaldri færi hann með þau til Sómalíu í uppeldis- og kennsluferð. Þar dvaldi fjölskyldan í þrjá mánuði, fyrst og fremst til að börnin fengju að kynnast þeirri sáru fátækt og hörðu lífsbaráttu sem foreldrar þeirra og forfeður þurftu að há til þess einfaldlega að halda lífi í stríðshrjáðu landi. Maðurinn sagði að eftir þessa þriggja mánaða ferð hafi börn hans verið miklu móttækilegri fyrir tilsögn og ekki síst væru þau þakklátari en þau voru áður. Það var sérlega athyglisvert að hlusta á þessa óumbeðnu einræðu þessa sómalska leigubílstjóra á fallegum haustdegi í einu af miðríkjum Banda- ríkjanna. Þarna var hann að deila með okkur reynslu sinni. Hann hefði rétt eins getað þagað allan tímann eins og leigubílstjórar gera jú yfirleitt. Þá væri hann líka fyrir okkur með öllu gleymdur. En boðskapur hans í þessari bílferð sat í mér. Mér fannst þetta virki- lega flott hjá honum að deila með okkur reynslu sinni enda sagði hann skemmtilega frá. Mér var hugsað heim og til þess sem er að gerast í að- draganda kosninga til Alþingis. Eigum við sem kjósendur ekki einmitt að taka boðskap sómalska föðursins til okkar? Eigum við að gera þær kröfur til samfélagsins að það veiti okkur allt - án þess jafnvel við sjálf færum fórnir á móti? Hvort skattarnir okkar verða lækkaðir eða hækkaðir um nokkur prósentustig skiptir ekki höfuðmáli, svo lengi sem almenns rétt- lætis sé gætt og enginn líði skort. Við hljótum því að kjósa þá sem við treystum best til að byggja upp samfélag þar sem allir geta lifað í sátt og án fordóma í garð hvers annars. Ég ætla með atkvæði mínu á laugardag- inn að leggja mitt af mörkum og kjósa það framboð sem setur manngildi og réttlæti í forgang. Ekki síst þá sem hljóma eins og þeir beri virðingu fyrir eldra fólki og því sem það hefur gert fyrir okkur. Magnús Magnússon. Leiðari Í fyrstu viku október sendi Bjarni Kristinn Þorsteinsson, slökkvi- liðsstjóri Borgarbyggðar, erindi til Byggðarráðs Borgarbyggðar varð- andi ástand tækjabúnaðar slökkvi- liðsins í Laugargerði. Á milli Borg- arbyggðar og Eyja- og Miklaholts- hrepps ríkir þjónustusamningur sem snýr að því að Borgarbyggð þjónusti Eyja- og Miklaholtshrepp varðandi brunavarnir og þjónustu slökkvi- liðs ef eldur kemur upp í sveitarfé- laginu. Bjarni segir í erindinu að hann hafi í gegnum tíðina, í starfi sínu sem slökkviliðsstjóri, reynt að vekja athygli sveitarstjórnarmanna „á því ófremdarástandi sem er og hefur verið á tækjakosti slökkviliðsins í Laugargerði og bent á leiðir til úr- bóta í þeim efnum,“ eins og hann segir í erindinu. Bjarni segist hins vegar hafa talað fyrir daufum eyrum. „Eins og málum er háttað í dag er ekki um slökkvilið að ræða í Laug- argerði þar sem tækjakostur sá sem þar er á vegum Slökkviliðs Borgar- byggðar er ekki útkallshæfur,“ segir í erindinu. Segir tvær leiðir í boði Bjarni telur að hægt sé að fara tvær leiðir í þessu máli. Annars vegar sé hægt að koma upp góðum bíl sem gæti flutt sjö til átta þúsund lítra af vatni ásamt nauðsynlegum bún- aði. Hann segir þetta vera forsendu þess að Borgarbyggð geti staðið við sinn hluta þjónustusamningsins en sá bíll sem nú er í notkun er Chevr- olet C-20 jeppi sem er á milli 35 og 40 ára gamall. Segir Bjarni þann bíl vera lélegan og ekki treystandi til stórræða auk þess sem hann sé gjarn á að bila. Hann segir að bíllinn hafi aðeins takmarkað burð undir bún- að og ekki sé vatn til staðar í honum til fyrstu aðgerða, sem sé forsenda þess að koma í veg fyrir stóra elds- voða. Hinn möguleikann í stöðunni fyrir Borgarbyggð telur Bjarni vera að „sveitarstjórnarmenn taki upp- lýsta ákvörðun og þá í samráði við hreppsnefnd Eyja- og Miklaholts- hrepps um að leggja slökkvistöðina í Laugargerði niður og vera ekki með neinn búnað þar en þess í stað að þjónustan komi frá Borgarnesi um langan veg,“ segir Bjarni í erindinu og bætir því að lokum við að ekki sé í boði lengur að gera ekkert í mál- unum. bþb Slökkviliðsstjóri segir tækjakost í Laugargerði ekki útkallshæfan Slökkviliðsmenn í Borgarbyggð að störfum. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Fimmtudaginn 20. október komu ferðaþjónustuaðilar í Dölum sam- an á vinnufundi í Dalakoti í Búð- ardal. Sigríður Ó. Kristjánsdótt- ir verkefnisstjóri á Nýsköpunar- miðstöð Íslands og Bjarnheiður Jó- hannsdóttir ferðamálafulltrúi Dala- byggðar stýrðu fundi, þar sem rætt var um upplifun ferðamanna í Döl- um, vöruþróun í ferðaþjónustu og hagnýtari mál á borð við inn- viði og samræmingu í markaðs- setningu. Góð mæting var á fund- inn og margt gagnlegt kom fram í vinnu ferðaþjónustuaðila, sem nýt- ist við stefnumótun og í stuðningi við greinina í framhaldinu. sm Vinnufundur um ferðamál í Dölum Hæstiréttur Íslands þyngdi á fimmtudag dóm yfir manni sem dæmdur var í Héraðsdómi Vestur- lands í febrúar fyrir nauðgun. Er honum gert að sæta fangelsi í tvö og hálft ár, en héraðsdómur hafði áður dæmd hann til tveggja ára fangels- isvistar. Í kjölfar niðurstöðu héraðs- dóms skaut ríkissaksóknari málinu til Hæstaréttar 10. febrúar í sam- ræmi við yfirlýsingu hins ákærða um áfrýjun. Hæstiréttur féllst ekki á með ákærða að annmarkar væru á sönnunarmati héraðsdóms sem gætu valdið því að vísa bæri málinu til nýrrar meðferðar í héraði. Þvert á móti staðfesti Hæstiréttur í úr- skurði sínum það mat héraðsdóms að framburður brotaþola hafi verið trúverðulegur. Hann hafi verið skýr og stöðugur í öllum höfuðatriðum og í samræmi við önnur gögn máls- ins. Þá fær framburður hennar enn fremur vætti fimm vitna um ástand hennar eftir atburðinn, sem og í vottorði og framburði sálfræðinga um líðan hennar. Var maðurinn því sakfelldur af Hæstarétti fyrir nauðgun með því að hafa haft samræði og önnur kyn- ferðismök við þolanda sem gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga. Manninum var gert að sæta tveggja og hálfs árs fangelsisvist- ar auk þess að greiða brotaþola 1,5 milljónir í miskabætur með vöxtum. Honum var einnig gert að greiða útlagðan sakarkostnað fyrir héraðs- dómi og fyrir Hæstarétti, verjanda- laun og laun réttargæslumanns. kgk Hæstiréttur þyngdi dóm í nauðgunarmáli

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.