Skessuhorn


Skessuhorn - 26.10.2016, Side 10

Skessuhorn - 26.10.2016, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 201610 Næturlokanir í göngunum HVALFJ: Hvalfjarðar- göng eru lokuð í þrjár næt- ur í þessari viku vegna ár- legra haustverka við þrif og viðhald. Lokað er að- fararnætur þriðjudagsins 25., miðvikudagsins 26. og fimmtudagsins 27. október, frá miðnætti til klukkan sex að morgni. -mm Fiskafli í september 113 þús. tonn MIÐIN: Afli íslenska fiski- skipaflotans í september- mánuði síðastliðnum nam tæpum 113 þúsund tonn- um. Er það 22% meiri afli en í sama mánuði í fyrra. Botnfiskafli rúm 35.700 tonn og dróst saman um 2%, þar af nam þorskafl- inn 22 þús. tonnum sem er 3% minni afli en í septem- ber 2015. Uppsjávaraflinn var hins vegar 38% meiri en í september í fyrra, eða 74 þús. tonn. Skýringin á stórauknum afla á upp- sjávarfiski má rekja til 61% meiri makrílafla, en hann nam rúmum 53 þús. tonn- um í september, og síld- arafla sem nam tæpum 20 þús. tonnum. Sé litið yfir 12 mánaða tímabil, frá október 2015 til september 2016, hefur heildarafli ís- lenska flotans dregist sam- an um 226 þúsund tonn samanborið við tólf mán- aða tímabil árið á undan. Samdrátturinn skýrist ekki síst af minni loðnuafla. Afli septembermánaðar metinn á föstu verðlagi var 20,3% minni en afli í september 2015. -kgk Aukafjárveiting til hrepps- skrifstofu REYKHÓLAHR: Á síð- asta fundi sveitarstjórn- ar Reykhólahrepps var af- greitt erindi sveitarstjóra um starfsmannamál á skrif- stofu hreppsins. Ráðinn hefur verið skrifstofustjóri tímabundið vegna fæð- ingarorlofs og einnig hef- ur verið ráðinn ritari tíma- bundið vegna veikinda. Sveitarstjóri óskaði því frekari fjárheimilda til að mæta auknum launakostn- aði á skrifstofu. Samþykkti sveitarstjórn aukna fjárveit- ingu að verðmæti 1,1 millj- ónir króna til skrifstofu hreppsins sem skal fjár- magnast af eigin fé. -kgk Léttitæki verða keypt á Barmahlíð REYKHÓLAHR: Sveitar- stjórn Reykhólahrepps sam- þykkti á síðasta fundi sínum að veita dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum aukafjárveit- ingu sem nemur 1,5 milljón króna. Peningarnir eru ætl- aðir til kaupa á léttitækjum. -kgk Lækkun há- markshraða í Borgarnesi BORGARBYGGÐ: Byggð- arráð Borgarbyggðar sam- þykkti í síðustu viku beiðni Vegagerðarinnar um lækkun hámarkshraða á þjóðvegi eitt gegnt Atlantsolíu í Borgar- nesi. Byggðarráð samþykkti beiðnina með þeirri ábend- ingu að rétt sé að láta lækk- un hámarkshraða ná út fyr- ir vegamótin við golfvöllinn á Hamri eða að þéttbýlis- mörkum. -bþb Aflatölur fyrir Vesturland 15. - 21. október Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 3 bátar. Heildarlöndun: 10. 241 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 7.719 kg í tveimur löndunum. Arnarstapi 1 bátur. Heildarlöndun: 10.230 kg. Mestur afli: Kvika SH: 10.230 kg í þremur löndun- um. Grundarfjörður 6 bátar. Heildarlöndun: 133.017 kg. Mestur afli: Helgi SH: 45.008 kg í einni löndun. Ólafsvík 8 bátar. Heildarlöndun: 55.996 kg. Mestur afli: Gunnar Bjarna- son SH: 12.676 kg í tveimur löndunum. Rif 11 bátar. Heildarlöndun: 233.365 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 95.185 kg í einni löndun. Stykkishólmur 3 bátar. Heildarlöndun: 46.197 kg. Mestur afli: Hannes Andr- ésson: 24.883 kg í þremur löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Tjaldur SH - RIF: 95.185 kg. 15. október. 2. Rifsnes SH - RIF: 66.443 kg. 19. október. 3. Helgi SH - GRU: 45.008 kg. 17. október. 4. Hringur SH - GRU: 43.316 kg. 19. október. 5. Farsæll SH - GRU: 39.112 kg. 18. október. grþ Félagarnir Alexander Ólafsson, Gunnbjörn Jóhannsson, Kristjón Sigurðsson og Ólafur Sveinsson færðu Auðarskóla í Dölum nýverið þrívíddarprentara og skanna að gjöf til minningar um Jóhannes Bene- diktsson frá Saurum í Laxárdal. Með gjöfinni vilja þeir gefa ungu fólki í Dölum tækifæri til að kynn- ast nýrri tækni með þeim tilgangi að örva nýsköpunarhugsun og að efla frumkvæði nemenda. Gefendur vilja einnig hvetja til þess að öðrum íbúum í Dölum verði gefinn kost- ur á að kynna sér tæknina og eiga möguleika á aðgangi að tækjunum í samráði við ráðamenn skólans. Það voru þakklátir fulltrúar nemenda sem tóku á móti veglegri gjöfinni ásamt stjórnendum og áhugi við- staddra leyndi sér ekki þegar fyrsti gripurinn, armband, var prentað út í hinu nýja kennslutæki. sm Færðu Auðarskóla þrívíddar- prentara og skanna að gjöf Alexander Ólafsson, Ólafur Sveinsson, Gunnbjörn Jóhannsson og Kristjón Sigurðsson. Nemendafélag Auðarskóla; Árdís, Sigrún, Dagur, Jóhann, Sigríður og Sigurdís. Fagráð í hrossarækt hefur valið þau bú sem tilnefnd eru til árlegr- ar heiðursviðurkenningar Bænda- samtaka Íslands sem ræktunarbú árs- ins. Valið stóð á milli 71 bús sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu og í ljósi afar magnaðs árang- urs hjá mörgum búum var ákveð- ið að tilnefna 16 bú í ár. Einnig var ákveðið að breyta reiknireglu þeirri sem notuð er við valið. Búum hef- ur verið raðað upp eftir meðalaldri sýndra hrossa, meðaleinkunn þeirra og fjölda. Nú var ákveðið að leiðrétta einkunnir eftir aldri líkt og gert er við kynbótamatsútreikninga og taka á þann hátt tillit til mismunandi ald- urs. Þetta gerir allar einkunnir sam- anburðarhæfar áður en búunum er svo raðað upp eftir leiðréttum ein- kunnum og fjölda sýndra hrossa. Til- nefnd bú munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2016 sem haldin verður í Samskipahöllinni í Spretti laugardaginn 5. nóvember næstkomandi. Ræktunarbú ársins verður svo verðlaunað á Uppskeru- hátíð hestamanna sem haldin verður í Gullhömrum þá um kvöldið. Tvö bú á Vesturlandi eru í hópi þeirra sextán sem tilnefnd voru. Það eru Berg í Grundarfirði, þau Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson. Hins vegar er það Skipaskagi bú þeirra Jóns Árnasonar og Sigurveigar Stefánsdóttur. Önnur bú eru í stafrófsröð: Árbæjarhjáleiga II, Efsta-Sel, Garðshorn á Þelamörk, Hamarsey, Hof á Höfðaströnd, Hvolsvöllur, Ketilsstaðir/Syðri- Gegnishólar, Kirkjubær, Kjarnholt I, Koltursey, Prestsbær, Rauðalækur, Torfunes og Þúfur. mm Sextán hrossaræktarbú tilnefnd sem ræktunarbú ársins Hér er Skaginn frá Skipaskaga á LM á Hólum. Knapi er Daníel Jónsson. Skaginn hlaut 8,73 í aðaleinkunn sem dugði í fjórða sætið í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta. Frá Bergi við Grundarfjörð var árangur ársins í kynbótadómum býsna góður. Sýnd voru átta kynbótahross þar sem meðaleinkunn var 8,24 og meðalaldur 6,1 ár. Hér sýnir Jakob S Sigurðsson Sægrím fjögurra vetra. Í gærmorgun varð alvarlegt slys á Mosfellsheiði þegar hópferðabíll með 41 ferðamanni og tveimur Íslending- um valt út af veginum og hafnaði á hliðinni. Hálka og krap var á vegin- um og auk þess töluvert hvasst. Sam- kvæmt fréttum í gærdag voru a.m.k. fimm alvarlega slasaðir og fjór- ir að auki voru fluttir minna slasað- ir á Landspítalann. Mikill viðbúnað- ur var vegna slyssins. Veginum var lokað og samhæfingarstöð Almanna- varna virkjuð og björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar kallaðir út. Þá var fjöldahjálparstöð Rauða kross- ins í Mosfellsbæ opnuð og áfalla- teymi virkjað. Blóðbankinn setti sig í gær í samband við fólk í O-flokki og bað um að vanir blóðgjafar kæmu hið snarasta og gæfu blóð. mm Alvarlegt rútuslys á Mosfellsheiði Mynd af vettvangi er skjáskot úr sjónvarpsfrétt á ruv.is.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.