Skessuhorn - 26.10.2016, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 201624
Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) var
haldinn um liðna helgi. Dagskrá hátíðarinnar var með nokk-
uð hefðbundnu sniði, en hún hefur markað sér sess sem fjöl-
sótt og menningarleg héraðshátíð. Á hádegi á föstudaginn
hófst lambhrúta- og gimbrasýning norðan girðingar á Svarf-
hóli í Laxárdal. Sviðaveisla með hagyrðingum og dansleikur
var í íþróttahúsinu á Laugum í Sælingsdal um kvöldið þar sem
Gísli Einarsson fjölmiðlamaður var veislustjóri. Hagyrðingar
voru Sigurjón Jónsson á Selfossi, Helgi Björnsson á Snartar-
stöðum, Ósk Þorkelsdóttir á Húsavík og Stefán Vilhjálmsson
á Akureyri.
Dagskrá laugardagsins hófst klukkan 10 með lambhrúta-
og gimbrasýningu sunnan girðingar. Var hún haldin á Vatni
í Haukadal en lambhrútasýningarnar eru tvær vegna sauðfjár-
veikivarna. Keppt var í flokkum hyrndra, kollóttra og mislitra/
ferhyrndra hrúta. Skráðir voru 90 hrútar til keppni og átta
gimbrar. Dómarar voru Sigurður Þór Guðmundsson og María
Svanþrúður Jónsdóttir. Sýningarstjóri var Svanborg Þuríður
Einarsdóttir. Valið á fallegustu gimbrinni var í höndum gesta
sýninganna og byggðist á sjónrænu mati. Birgir Baldursson frá
Bæ fékk verðlaun fyrir besta lambhrútinn sem krýndur var hér-
aðsmeistari 2016. Hafliði Sævarsson vann rúningskeppnina og
í ljósmyndasamkeppninni Smalanum varð hlutskörpust mynd-
in Smalahundur, en hana tók Erna Elvarsdóttir frá Brekku í
Norðurárdal, af hundi sínum Marra á Vesturdalsbrún í leitum
í haust. Íslandsmeistaramótið í rúningi, kynningar og ullar-
vinnsla fór fram í Nesoddahöllinni í Búðardal. Grillveisla var
svo í Dalabúð um kvöldið og haustfagnaði lauk með stórdans-
leik á miðnætti þar sem hljómsveitin Buff skemmti gestum.
Helstu úrslit úr sauðfjársýningum:
Besta ærin
1. Brú nr. 11-168 á Klifmýri á Skarðsströnd. Einkunn 118,0.
2. Ær nr. 11-211 á Stóra-Vatnshorni í Haukadal. Einkunn
116,0.
3. Ær nr. 11-208 frá Geirmundastöðum á Skarðsströnd. Ein-
kunn 114,8.
4. Fríðleit nr. 11-134 frá Klifmýri á Skarðsströnd. Einkunn
114,7.
5. Sokkaprúð 11-314 á Skerðingsstöðum í Hvammssveit. Ein-
kunn 114,5.
Hyrndir lambhrútar
1. Lambhrútur nr. 91 á Hallsstöðum á Fellsströnd.
2. Lambhrútur nr. 117 á Rauðbarðaholti í Hvammssveit.
3. Lambhrútur nr. 113 í Hlíð í Hörðudal.
4. Ári nr. 2004 á Breiðabólstað á Fellsströnd.
5. Lambhrútur nr. 73 á Rauðbarðaholti í Hvammssveit.
Kollóttir lambhrútar
1. Lambhrútur nr. 13 á Bæ í Miðdölum.
2. Lambhrútur nr. 979 á Sauðafelli í Miðdölum.
3. Lambhrútur nr. 178 á Dunki í Hörðudal.
4. Lambhrútur nr. 99 á Hallsstöðum á Fellsströnd.
5. Lambhrútur nr. 177 á Dunki í Hörðudal
Mislitir og ferhyrndir lambhrútar
1. Lambhrútur nr. 46 á Lyngbrekku á Fellsströnd.
2. Bó nr. 503 í Vífilsdal í Hörðudal.
3. Lambhrútur nr. 515 á Leiðólfsstöðum í Laxárdal.
4. Pensill nr. 37 á Hrappsstöðum í Laxárdal.
5. Lambhrútur nr. 21 á Skörðum í Miðdölum.
Í fegurðarsamkeppni gimbra varð hlutskörpust Maríanna
nr. 1537 á Spágilsstöðum í Laxárdal. Eigandi hennar er Gróa
Margrét Viðarsdóttir.
sm/mm
Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dölum
Sviðaveislan á Laugum. Gísli Einarsson veislustjóri ásamt hagyrðingunum fjórum. Hafliði Sævarsson vann rúningskeppnina.
Finna mátti ýmsan varning í sölubásunum í reiðskemmunni. Ánægðir með sviðin, reykt, söltuð og hefðbundin svið. Verðlaunamyndina í ljósmyndakeppninni tók Erna Elvarsdóttir af
hundinum Marra í göngum á Vesturdalsbrún í haust.
Sauðfjárbóndi í einkennisklæðum sauðfjárbænda, lopanum góða. Ullin unnin á gamla mátann í reiðskemmunni.
Karlakór Kirkjukórs Akraness á sviðaveislu. Birgir Baldursson frá Bæ hreppti titilinn héraðsmeistari 2016 en
hann átti besta lambhrútinn.