Skessuhorn - 26.10.2016, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 27
Menningarhátíðin Vökudag-
ar hefst á Akranesi á morgun,
fimmtudag. Um er að ræða árleg-
an viðburð en hátíðin hefur ver-
ið haldin undanfarin ár í bænum
og orðin að föstum lið í menning-
arlífi Akurnesinga. Að sögn Ellu
Maríu Gunnarsdóttur, forstöðu-
manns menningar- og safnamála
á Akranesi, verður þó þjófstart í
kvöld þegar svokallaður Upptakt-
ur að Vökudögum verður haldinn
á Bókasafni Akraness. „Þar munu
Hjördís Tinna Pálmadóttir, Jóna
Alla Axelsdóttir og Ari Jónsson,
söngnemendur úr Tónlistarskól-
anum á Akranesi, halda djasstón-
leika við undirleik þriggja kenn-
ara skólans; Eðvarðs Lárussonar,
Birgis Þórissonar og Eriks Roberts
Qvick. Þau ætla að spila íslensk-
an djass eftir Jón Múla Árnason,
Tómas R. Einarsson og Sigurð
Flosason. Venjulega er hljóðlátt og
rólegheit á bókasöfnum en þarna
fáum við að njóta tónlistar og það
er örugglega svolítið skemmtileg
tilbreyting enda ákveðinn sjarmi
yfir því að vera á bókasafni undir
öðrum kringumstæðum en venju-
lega. Þetta verður í notalegri kant-
inum,“ segir Ella María í sam-
tali við Skessuhorn. Hátíðin sjálf
verður sett á fimmtudag klukk-
an 17 í Safnaskála Byggðasafns-
ins í Görðum þegar opnaðar verða
sýningarnar „Hver vegur að heim-
an er vegur heim,“ á verkum Gyðu
L. Jónsdóttur Wells, „Skart við
skóna,“ þar sem Dýrfinna Torfa-
dóttir sýnir skartgripi og skó og
sýningin „Bæjarbytturnar, brenni-
vínið og bannárin“ sem opin verð-
ur í Stúkuhúsinu yfir Vökudaga.
Menningarverðlaun Akraness 2016
verða einnig afhent við setningu
hátíðarinnar í Safnaskálanum.
Fjöldi spennandi
viðburða
Fleiri viðburðir verða á setningar-
deginum. Meðal annars má nefna
kvöldopnun hjá Café Kaju þar sem
myndlistarsýningin „Selfí“ verð-
ur opnuð. „Þar verður sýndur af-
rakstur stúlkna sem voru nýverið
á myndlistarnámskeiði hjá Önnu
Leif. Þá opnar ljósmyndasýning
Höfrungs í Akranesvita þennan
dag og þar verða einnig tónleikar
um kvöldið með Ömmu og úlfun-
um, sem eru Jónína Björg Magn-
úsdóttir, Elí Kristberg Hilmars-
son og Guðjón Jósef Baldurs-
son. Þeir tónleikar hefjast klukk-
an 20:30,“ segir Ella María. Hún
bætir því við að á fimmtudag verði
einnig opnuð myndlistarsýning
á Skökkinni þar sem Sylvía Vinj-
ars sýnir verk sín og ljósmynda-
sýning Jóns Rúnars Hilmarssonar,
„Töfrar himins,“ sem sett verður
upp í Tónlistarskólanum á Akra-
nesi. „Svo verður handavinnu-
sýning í Pennanum Eymundsson
og á bókasafninu verður sýningin
„Þetta vilja börnin sjá,“ sem er far-
andsýning á myndskreytingum úr
íslenskum barnabókum frá árinu
2015. Sýningar leikskólanna verða
einnig opnaðar þennan dag og að
vanda verður Garðasel með verk
á Höfða, Akrasel á Smiðjuvöllum,
Vallarsel í Tónlistarskólanum og
Teigasel í anddyri sjúkrahússins.
Þá verða einnig málverk frá öllum
leikskólunum á fjórðu hæð í Akra-
nesvita.“
Öflugir Skagamenn
Margt verður um að vera um
helgina. Ýmsar sýningar verða
opnaðar og má þar nefna ljós-
myndasýningu Vitans við Dalbraut
1. „Á föstudaginn verður listvið-
burður á Höfða. Þar verður boð-
ið uppá tónlistaratriði, Skraddara-
lýs munu sýna bútasaum og Elín-
borg Halldórsdóttir (Ellý) verður
með myndlistarsýningu. Á bóka-
safninu mun Philippe Ricard opna
sína sýningu þar sem hann sýn-
ir galdurinn við að vinna listaverk
úr fiskibeini,“ útskýrir Ella María.
Fjöldi annarra viðburða eru á döf-
inni á Akranesi um næstu helgi.
Sýningin „Geggjaðar peysur“ í
Galleríi Bjarna Þórs verður opn-
uð á laugardag og opið hús verður
í tónlistarskólanum. Einnig verður
opið hús í Samsteypunni og verð-
ur Þjóðahátíð Vesturlands haldin í
íþróttahúsinu við Vesturgötu, þar
sem Eliza Reid forsetafrú verður
heiðursgestur. Anna Leif Elídóttir
mun opna sýninguna „Ömmurnar“
í vinnustofu sinni við Brekkubraut
1 og samsýningin UMBREYT-
ING - Eitthvað verður annað
verður opnuð í matsal Sements-
verksmiðjunnar en þar sýna kenn-
arar og nemendur Grundaskóla. Á
sunnudag verður norðurljósakvik-
mynd eftir Jón Rúnar Hilmarsson
sýnd í tónlistarskólanum og við-
burðurinn King and court in ex-
ile hefst í Stúkuhúsinu. Í kjall-
ara íþróttahússins við Vesturgötu
verður eldri skólakór Grundaskóla
með hrollvekjandi uppákomu og
um kvöldið mun djasstríóið Hot
Eskimos koma fram í Vinaminni.
Líkt og sjá má verður nóg um að
vera og ættu flestir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. „Nánast all-
ir þessir viðburðir eru sjálfsprottn-
ir og það er gaman að sjá hvað
Skagamenn eru öflugir á þessu
sviði. Það kom mér skemmtilega á
óvart hvað fólkið í bænum er frjótt
og duglegt að láta vita af sér,“ segir
Ella María. „Við sem búum hérna
erum heppin að hafa kost á því að
sækja alla þessa viðburði í okkar
litla bæ og ég hlakka mikið til að
kíkja á sem flesta.“
Dagskrá Vökudaga má sjá á
blaðsíðu 3 í Skessuhorni en nán-
ari upplýsingar um hvern og einn
viðburð má finna á vefsíðu Akra-
neskaupstaðar og á Vökudagar á
Akranesi á Facebook.
grþ
Vökudagar hefjast á Akranesi á morgun
Ella María Gunnarsdóttir er forstöðumaður menningar- og safnamála á Akranesi.
Hún sá um skipulagningu Vökudaga í ár.