Skessuhorn - 21.12.2016, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 20166
Heimilis-
ofbeldi tilkynnt
yfirvöldum
VESTURLAND: Tvö
heimilisofbeldismál komu
upp í umdæmi Lögregl-
unnar á Vesturlandi í lið-
inni viku. Annað var á
Akranesi en hitt í Borgar-
nesi. Að sögn lögreglu voru
börn á báðum heimilunum
og var viðkomandi barna-
verndaryfirvöldum tilkynnt
um málin.
-mm
Óhöpp án slysa
VESTURLAND: Einn
ökumaður var tekinn grun-
aður um akstur undir áhrif-
um fíkniefna í vikunni sem
leið. Að sögn lögreglu voru
fimm umferðaróhöpp í
umdæmi LVL í vikunni,
en öll voru þau án teljandi
meiðsla að því best er vitað
og allir með öryggisbelt-
in spennt. Talið er að öku-
maðurinn hafi sofnað und-
ir stýri er bíll fór útaf Akra-
fjallsvegi sunnan Akrafjalls
í vikunni. Bíllinn valt ekki
en fór nokkurn spöl með-
fram veginum og hafn-
aði að endingu ofan í veg-
skurði. Ökumann og far-
þega sakaði ekki en þeir
voru báðir í öryggisbeltum.
Stóðu þeir á þaki bílsins er
lögreglan kom á staðinn en
töluvert vatn var í skurð-
inum. Kranabíll var feng-
inn til að ná bílnum upp úr
skurðinum. Þá missti öku-
maður fólksbíl sinn útaf
í hálku á Snæfellsnesvegi
við Brúarland á Mýrum sl.
fimmtudag og valt bíllinn
heilan hring og staðnæmd-
ist hálfur ofan í vegskurði.
Ökumann og farþega sak-
aði ekki en þeir voru báð-
ir í öryggisbeltum. Ætluðu
þeir þó til öryggis að fara í
læknisskoðun.
-mm
Brotist inn í
hótelafgreiðslu
BORGARFJ: Aðfararnótt
sunnudagsins var farið inn í af-
greiðslu Hótel Bifrastar og stol-
ið þar nokkrum munum og lítil-
ræði af peningum. Að sögn lög-
reglu hafðist upp á þjófunum
sem reyndust tveir saman. Við
yfirheyrslur játuðu þeir verkn-
aðinn. Þýfinu höfðu þeir skipt á
milli sín en það fannst á heim-
ilum þeirra og var því komið til
skila.
-mm
Sjómenn felldu
kjarasamninga
LANDIÐ: Í síðustu viku kom í
ljós að sjómenn höfðu með mikl-
um mun fellt kjarasamningana
sem skrifað var undir 11.-15.
nóvember síðastliðinn við SFS.
Ótímabundið verkfall stéttar-
félaganna hófst strax um kvöld-
ið. Síðar í vikunni felldu vélstjór-
ar einnig sinn samning og er því
allsherjar verkfall í gangi á öllum
stærri skipum flotans.
-mm
Háskólar í
fordæmalausri
stöðu
LANDIÐ: „Ljóst er að þær
fjárhæðir sem háskólum lands-
ins eru ætlaðar samkvæmt fyr-
irliggjandi fjárlagafrumvarpi
standa ekki undir því mikilvæga
starfi sem skólarnir sinna,“ seg-
ir í yfirlýsingu frá rektorum allra
íslensku háskólanna. „Háskólar
í nágrannaríkjum okkar fá tvö-
falt hærri framlög á hvern nem-
anda og endurspeglar það raun-
verulegan kostnað háskólastarfs.
Til þess að ná meðaltali framlaga
í OECD-ríkjunum þarf 8 millj-
arða kr. til viðbótar við þá fjár-
hæð sem gert er ráð fyrir í fjár-
lagafrumvarpinu og 16 milljarða
kr. þarf til að ná meðaltali Norð-
urlandanna. Háskólar á Íslandi
eru því í fordæmalausri stöðu,“
segja rektorarnir og bæta því
við að niðurskurður síðustu ára
og viðvarandi undirfjármögn-
un ógni öllu starfi háskólanna
og komi í veg fyrir nauðsynlega
þróun.
-mm
Varamaður á þing
NV-KJÖRD: Hafdís Gunn-
arsdóttir, sem skipar fjórða sæt-
ið á lista Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi, tók í síð-
ustu viku sæti á þingi. Leysir
hún Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð
Gylfadóttur af, en hún er í fæð-
ingarorlofi. Hafdís býr á Ísafirði
og starfar sem forstöðumaður
liðveislu hjá Ísafjarðarbæ.
-mm
Falleg ljós sem lýsa upp tré í Garða-
lundi hafa nú verið kveikt og fá að
loga á aðventunni. Ljósin eru köll-
uð „Ljósin hans Gutta“ og er um
að ræða samfélagsverkefni sem
Hollvinir Grundaskóla, skólafólk á
Akranesi og fleiri standa að í minn-
ingu um Guðbjart Hannesson,
fyrrverandi skólastjóra Grunda-
skóla, bæjarfulltrúa, alþingismann
og ráðherra. Guðbjartur, eða Gutti
eins og hann var ávallt kallaður, lést
23. október á síðasta ári. Í fréttatil-
kynningu frá Grundaskóla segir að
ljósunum sé ætlað að gleðja bæjar-
búa en í störfum sínum lagði Gutti
mikla áherslu á að menn hefðu
bjartsýni og framfarir að leiðarljósi
í öllum verkum.
„Sem skólastjóri studdi hann
dyggilega við verk- og listgreina-
starf og munu ljósin hans Gutta
lýsa okkur áfram veginn á því
sviði.“ Þá segir einnig að ljósin vísi
til skólaverkefnis þar sem grunn-
skólarnir á Akranesi og tónlistar-
skólinn munu í sameiningu standa
að leiklistarverkefni í Garðalundi,
þar sem ungt og hæfileikaríkt fólk
mun leika og spila á hljóðfæri fyr-
ir bæjarbúa. Er markmiðið að gera
árlegan listgjörning þar sem fjöl-
skyldur koma saman og skemmta
sér saman í Garðalundi. Leitin að
jólasveininum sem haldin var síð-
astliðið föstudagskvöld er fyrsta
skrefið í því verkefni. „Ljósin hans
Gutta er verkefni sem er ætlað að
auka samstarf skólastofnana á Akra-
nesi, verkefni sem er ætlað að auka
samkennd og gleði í samfélaginu á
Akranesi, verkefni sem er ætlað að
hafa börn og barnamenningu í for-
grunni.“
grþ
„Ljósin hans Gutta“ lýsa í Garðalundi
Ljósin hans Gutta lýsa fallega í skammdeginu í Garðalundi. Ljósm. jho.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís-
lands lækkaði í morgun vexti bank-
ans um 0,25 prósentustig. Megin-
vextir Seðlabankans, vextir á sjö daga
bundnum innlánum, verða því 5,0%.
Í yfirlýsingu nefndarinnar nefndinni
segir að ákvörðunin um að lækka
vexti sé tekin með hliðsjón af síðustu
spá auk nýrra upplýsinga. „Gengi
krónunnar hefur hækkað um 1,5%
frá síðasta fundi nefndarinnar og er
nú þegar orðið nokkru hærra en spáð
var að það yrði að meðaltali á næsta
ári. Þá er samsetning hagvaxtar hag-
stæðari en spáð var í nóvember að
því leyti að útflutningur og atvinnu-
vegafjárfesting vega þyngra. Hvort
tveggja hefur áhrif á áhættumat
nefndarinnar. Sem fyrr er töluverð
óvissa um stefnuna í ríkisfjármál-
um, en aðhald hennar hefur slaknað
nokkuð undanfarin tvö ár og enn er
óljóst hver efnahagsstefna næstu rík-
isstjórnar verður. Þá gætir áfram óróa
á vinnumarkaði og óvissa er um áhrif
næstu skrefa við losun fjármagns-
hafta,“ segir í yfirlýsingunni.
Þjóðhagsreikningar fyrir fyrstu níu
mánuði ársins 2016 sýna meiri hag-
vöxt en Seðlabankinn spáði í nóvem-
bermánuði. Vöxtur þjóðarútgjalda
var svipaður og spáð var en samsetn-
ing hans önnur. Atvinnuvegafjárfest-
ing jókst meira en einkaneysla minna
og þá var vöxtur útflutnings einnig
meiri en spáð hafði verið. Munar þar
fyrst og fremst um þjónustuútflutn-
ing. Metafgangur var á viðskipta-
jöfnuði á þriðja ársfjórðungi.
Verðbólga mældist 2,1% í nóvem-
ber og hefur hún haldist undir mark-
miði í tæp þrjú ár, þrátt fyrir mikl-
ar launahækkanir og öran vöxt eft-
irspurnar. „Þar vega þungt hagfelld
ytri skilyrði og hækkun á gengi krón-
unnar en ekki síður aðhaldssöm pen-
ingastefna sem hefur skapað verð-
bólguvæntingum kjölfestu,“ seg-
ir í yfirlýsingunni. „Kjölfesta verð-
bólguvæntinga við verðbólgumark-
miðið virðist hafa styrkst og að-
hald peningastefnunnar að einhverju
leyti aukist í gegnum hækkun gengis
krónunnar. Það gefur nefndinni svig-
rúm til að lækka nafnvexti nú,“ seg-
ir í yfirlýsingu nefndarinnar sem þó
mælir með því að stigið verði varlega
til jarðar við ákvörðun vaxta. „Eigi
að síður kalla kröftugur vöxtur eftir-
spurnar og ofangreindir óvissuþætt-
ir á varkárni við ákvörðun vaxta. Að-
haldsstig peningastefnunnar á kom-
andi misserum mun ráðast af fram-
vindu efnahagsmála og annarri hag-
stjórn.“ kgk
Stýrivextir lækkaðir í fimm prósent