Skessuhorn - 21.12.2016, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 201616
Einar Kristinn Guðfinnsson for-
maður dómnefndar í hönnunar-
samkeppni um nýbyggingu á Al-
þingisreit tilkynnti á laugardag-
inn um niðurstöðu dómnefnd-
ar í hönnunarsamkeppni um ný-
byggingu á Alþingisreit. Í fyrsta
sæti varð tillaga frá Arkitektar
Studio Granda. Í öðru sæti var
tillaga frá T.ark arkitektum og í
þriðja sæti tillaga frá PKdM arki-
tektum. Sýning á öllum tillögum
sem nefndinni bárust verður opin
á 1. hæð Landssímahúss á virkum
dögum kl. 16–18 fram að áramót-
um.
mm
Sú tillaga sem dómnefnd var einhuga um að velja til 1. verðlauna felur í sér sann-
færandi og listræna heildarlausn á þeim húsnæðis- og skipulagsmálum Alþingis
sem aðkallandi er að hrinda í framkvæmd. Jafnframt sýnir hún fram á dýrmæta
möguleika til framtíðarþróunar á húsakosti þingsins. Höfundarnir frá Arkitektum
Stúdíó Granda leituðust við að tengja nýbygginguna við sögu Alþingis og þróun
byggðar í Kvosinni allt frá landnámsöld.
Birtu niðurstöðu um hönnun
nýbygginga á AlþingisreitSamfélagssjóður Landsbankans út-hlutaði nýverið samfélagsstyrkjum
að upphæð 15 milljónum króna.
Alls hlutu 32 verkefni styrki að
þessu sinni. Öll eru þau fjölbreytt
en eiga það sameiginlegt að gagnast
fólki á öllum aldri og víða um land.
Samfélagsstyrkjum Landsbankans
er ætlað að styðja mannúðar- og
líknarmál, menntamál, rannsókn-
ir og vísindi, forvarnar- og æsku-
lýðsstarf, sértæka útgáfustarfsemi
og verkefni á sviðum menning-
ar og lista. Tæplega 500 umsókn-
ir bárust sjóðnum að þessu sinni en
þrjú verkefni hlutu styrk að fjárhæð
einni milljón króna, þrjú hlutu 750
þúsund króna styrk, 13 verkefni
hlutu 500 þúsund króna styrk og
önnur 13 verkefni fengu 250 þús-
und krónur í sinn hlut. Eitt þeirra
verkefna sem hlaut 750 þúsund
króna styrk var alþjóðlega kvik-
myndahátíðin Norhern Wave, sem
haldin hefur verið í Grundarfirði á
Rökkurdögum undanfarin ár og í
Frystiklefanum í Rifi nú í haust. Í
umsögn dómnefndar segir: „Styrk-
urinn er veittur til að standa að 10
ára afmælishátíð Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðarinnar Norhern Wave.
Hátíðin býður upp á fjölbreytta
dagskrá stuttmynda víðsvegar að úr
heiminum, íslensk tónlistarmynd-
bönd, vídeóverk og stuttmyndir.
Stuttmyndir eru mikilvægur þátt-
ur í kvikmyndagerð, enda það form
sem flestir kvikmyndagerðarmenn
hefja feril sinn á.“
grþ
Northern Wave
hlaut samfélagsstyrk
Lilja Mósesdóttir forsvarsmaður Northern Wave að taka við samfélagsstyrknum
frá Guðrúnu Agnarsdóttur lækni og formanni dómnefndar og Hreiðari Bjarnasyni
forstöðumanni Fjármála og staðgengils bankastjóra Landsbankans.
Ljósm. Landsbankinn.
Vegurinn milli Rifs og Ólafsvíkur
var lokaður í hálfan annan tíma síð-
astliðinn mánudagsmorgun vegna
olíuleka frá vöruflutningabíl með
aftanívagni. Óhapp þetta varð við
afleggjarann í Neðra-Rif. Báðir
bílar Slökkviliðs Snæfellsbæjar voru
kallaðir út um tíuleytið og tók fjór-
tán manna hópur slökkviliðsmanna
þátt í hreinsunarstarfinu. Að sögn
Svans Tómassonar slökkviliðsstjóra
var um töluvert mikinn leka að
ræða og áætlaði hann að um hundr-
að lítrar af olíu hefði farið niður.
Mikill viðbúnaður var enda er mik-
ið æðarvarp á þessum stað. Tókst
slökkviliðsmönnum að koma í veg
fyrir mengun. Ástæðu óhappsins
var að tankur losnaði og fór undir
hjól aftanívagnsins.
þa
Olía lak af vöruflutningabíl
Ilm- og snyrtivörur fyrir dömur og herra
Frábært úrval af gjafapakkningum fyrir dömur og herra þar sem þú borgar fyrir
ilminn, kremið eða snyrtivöruna og færð flotta kaupauka með í öskju eða tösku.
Okkar bestu jóla- og nýárskveðjur
Minnum á flottu gjafabréfin okkar.
Harðir, mjúkir og ilmandi
jólapakkar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6