Skessuhorn - 21.12.2016, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 201626
Í vor voru gamlir sem nýir fé-
lagar í Leikdeild Ungmennafélags-
ins Skallagríms boðaðir á fund til
að fá fram hugmyndir um hvern-
ig haldið skyldi upp á 100 ára af-
mæli leikdeildarinnar á þessu ári.
Ákveðið var að halda afmælissýn-
ingu á haustdögum þar sem saman
yrði dregið starf félagsins þessi 100
ár. Einnig var farið í að safna sam-
an sem mestu af efni, tengdu fé-
laginu, í máli og myndum. Söfn-
uðust mörg hundruð ljósmyndir úr
starfinu ásamt leikskrám og hljóð-
og myndupptökum. Afrakstur þess-
arar samantektar, í mynd og hljóði,
var settur upp á Brákarhátíð í sum-
ar og var gerður góður rómur að.
Þá voru prentuð 25 stór mynda-
spjöld með um 200 ljósmyndum úr
50 leikritum, auk mynda af leik-
skrám, listaverkum og fleiru. Þessi
veggspjöld hafa nú verið hengd
upp til sýnis í verslunarmiðstöðinni
Hyrnutorgi í Borgarnesi. Þar verða
þau fram á þrettándann, 6. janúar.
Eftir það verður sýningin flutt um
set, en þó ekki langt, því áformað
er að setja hana upp í Brákarhlíð.
„Á spjöldunum er að finna marg-
ar athyglisverðar myndir af kunn-
um andlitum úr Borgarnesi frá
árum áður og er það von þeirra sem
að þessu standa að sýningin verði
fólki, sem leið á um Hyrnutorg
þessa daga, til ánægjuauka,“ segir
í tilkynningu frá Leikdeild Skalla-
gríms. mm
Afmælissýning leikdeildar
hengd upp í Hyrnutorgi
Vilhjálmur Hjörleifsson frá Tungufelli er hér að koma fyrir veggspjöldum í
Hyrnutorgi síðastliðinn mánudag. Ljósm. tkþ.
Rjómabúið á Erpsstöðum í Dölum
var með opið fjós á fjórða sunnu-
degi í aðventu. Boðið var upp á
kynnisferðir um sali Rjómabúsins
og leiðsögn. Einnig gat fólk skoð-
að gamla fjósið á Erpsstöðum sem
nýlega hefur farið í gegnum mikl-
ar endurbætur en þar hafa ver-
ið endurnýjaðar innréttingar og
gerðir legubásar fyrir geldneyti.
Rúmar gamla fjósið nú allt að 110
nautgripi. Guðbjartur Björgvins-
son hélt uppi jólastemningunni
með gestum og heimafólki þegar
hann spilaði jólalög á harmonikk-
una um leið og gestir gæddu sér á
ís og kaffi.
sm
Gestir skoðuðu fjósin á Erpsstöðum
Svipmynd frá opnu fjósi á Erpsstöðum.
Gamla fjósið á Erpsstöðum hefur nú verið endurbætt mikið og tekur allt að 110 nautgripi.
GLEÐILEG JÓL
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum góð viðskipti á árinu
HOTELHUSAFELL.IS BÓKANIR Í SÍMA 435 1551 • BOOKING@HOTELHUSAFELL.IS
HÓTEL HÚSAFELL
MUNIÐ JÓLAGJAFABRÉFIN
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6