Skessuhorn - 21.12.2016, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2016 31
Nú á aðventunni var í fyrsta sinn
rekið útvarp á vegum Grunnskóla
Snæfellsbæjar. Sent var út á tíðn-
inni 103,5 og náðust útsending-
ar í Ólafsvík, Rifi, Hellissandi og í
Grundarfirði. Jafnframt var sent út
á netinu. „Við höfum haft spurnir
af hlustendum víða um heim. Út-
sendingartíminn var 32 klukku-
stundir. Ýmist var sent út í beinni
eða sendir út þættir sem voru hljóð-
ritaðir fyrirfram. Megin reglan var
sú að nemendur í 1.-7. bekk unnu
bekkjarþætti sem voru hljóðrit-
aðir fyrir útsendingu, undir stjórn
kennara. Nemendur í 8.-10. bekk
sömdu handrit sín í skólanum, und-
ir handleiðslu kennara, og fluttu
svo í beinni útsendingu. Nemendur
fengu tækifæri til að vinna verkefni
á fjölbreyttari hátt þar sem reyndi
á skipulagshæfni, framkomu og
framburð,“ segir Hilmar Már Ara-
son skólastjóri.
Skipað var útvarpsráð nemenda
sem hélt utan um dagskrárgerðina
og var það undir stjórn Hugrúnar
Elíasdóttur, verkefnastjóra við skól-
ann. Tilnefnt var í tækninefnd sem
hafði umsjón með tæknimálunum,
tók upp það allt efni og hafði um-
sjón með útsendingunni. Þröstur
Kristófersson, tölvuumsjónarmað-
ur, var þeirra umsjónaraðili. Fyrir-
tæki og stofnanir styrktu nemend-
ur með kaupum á auglýsingum og
jólakveðjum sem nemendur lásu og
léku með tilþrifum. Setti sá þáttur
skemmtilegan svip á útvarpið.
„Heilt yfir gekk útvarpsútsend-
ingin mjög vel. Starfsfólk og nem-
endur stóðu vel saman í þessari
vinnu og höfðu allir gagn og gaman
af. Fljótlega eftir að útvarpinu lauk
var verkefnið metið af nemendum
og starfsmönnum. Tvær spurning-
ar voru lagðar þar til grundvallar
með það að markmiði að gera betur
næst: Hvað heppnaðist vel og hvað
getum við gert betur? Við viljum
þakka fyrir frábærar móttökur og
jákvæð viðbrögð. Stefnt er að því að
vera með útvarp að ári liðnu,“ seg-
ir Hilmar Már.
mm
Grunnskólanemendur í Snæfellsbæ
starfræktu útvarpsstöð
Gaman saman
um áramótin
Fjölskyldan saman
18 ár a ábyrgð
Bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar
26. desember. Annar í jólum
Lokað.
Bókasafn Akraness
24. desember. Aðfangadagur
Lokað.
26. desember. Annar í jólum
Lokað.
31. desember. Gamlársdagur
Lokað.
Íþróttamiðstöðin og Jaðarsbakkalaug
Dagsetning Dagur Opnunartími
23. desember Föstudagur ........ 06:15-18:00
24. desember Laugardagur ...... 09:00-11:00
25. desember Sunnudagur ....... Lokað
26. desember Mánudagur ........ Lokað
27. desember Þriðjudagur ........ 06:15-22:00
28. desember Miðvikudagur ..... 06:15-22:00
29. desember Fimmtudagur ..... 06:15-22:00
30. desember Föstudagur ........ 06:15-22:00
31. desember Laugardagur ...... 09:00-11:00
1. janúar Sunnudagur ....... Lokað
2. janúar Mánudagur ........ 06:15-22:00
Íþróttahús Vesturgötu
Dagsetning Dagur Opnunartími
19. desember Mánudagur ........ 07:00-22:00
20. desember Þriðjudagur ........ 07:00-20:00
21. desember Miðvikudagur ..... 07:00-20:00
22. desember Fimmtudagur ..... 07:00-20:00
23. desember Föstudagur ........ 07:00-15:00
24. desember Laugardagur ...... Lokað
25. desember Sunnudagur ....... Lokað
26. desember Mánudagur ........ Lokað
27. desember Þriðjudagur ........ 07:00-20:00
28. desember Miðvikudagur ..... 07:00-20:00
29. desember Fimmtudagur ..... 07:00-20:00
30. desember Föstudagur ........ 07:00-20:00
31. desember Laugardagur ...... Lokað
1. janúar Sunnudagur ....... Lokað
2. janúar Mánudagur ........ 07:00-20:00
3. janúar Þriðjudagur ........ 07:00-20:00
Bjarnalaug
Lokað frá 21. desember til og með 3. janúar 2017.
Akraneskaupstaðu� yfi� jó� og áramó�
ATHUGIÐ AÐ OPNUNARTÍMI ER HEFÐBUNDINN FYRIR
UTAN EFTIRFARANDI DAGA:
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6