Skessuhorn - 21.12.2016, Page 42
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 201642
Hjónin á Húsafelli voru
Vestlendingar ársins 2015
Um síðustu áramót veitti Skessuhorn samkvæmt venju verð-
laun Vestlendingum ársins, en þau falla í hlut þess eða þeirra
sem þykja hafa skarað fram úr á árinu. Fyrir árið 2015 kom út-
nefningin í hlut hjónanna Bergþórs Kristleifssonar og Hrefnu
Sigmarsdóttur hjá Ferðaþjónustunni á Húsafelli. Vöktu þau
verðskuldaða athygli fyrir þá uppbyggingu sem átti hefur sér
stað á Húsafelli, en þar hafa þau um langar um árabil rekið eitt
vinsælasta tjaldsvæði landsins, sundlaug og þjónustumiðstöð.
Þau eru auk þess með hitaveitu og þrjár rennslisvirkjanir þar
sem vatnið í Kiðá er virkjað og framleiða þau allt rafmagn fyrir
svæðið og bæina alveg niður að Deildartungu í Reykholtsdal.
Á árinu gerðu hjónin gott betur og opnuðu glæsilegt fjögurra
stjörnu hótel í hjarta Húsafells með glæsilegum veitingastað.
Framkvæmdin þykir hafa heppnast einstaklega vel enda unnin
af miklum metnaði og forsjálni.
Amman tók á móti fyrsta
Vestlendingnum
Fyrsta barnið sem fæddist á
Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands á Akranesi á árinu var
sveinbarn sem kom í heiminn
á nýársdag, laust fyrir klukkan
18:00. Vó drengurinn 3.325
grömm og mældist 51 sentí-
metri að lengd. Foreldrar
drengsins eru Anna Caroline
Wagner og Arnar Þór Har-
aldsson. Fjölskyldan er búsett
í Reykjavík en amma barns-
ins, Ásthildur Gestsdóttir er
búsett á Akranesi. Þar starfar
hún einmitt sem ljósmóðir á
kvennadeild HVE og tók hún á móti barnabarninu. „Á gamlárs-
dag vorum við stödd í matarboði á Akranesi, heima hjá ljósmóð-
urinn, þegar Anna Caroline missti vatnið. Rúmum sólarhring
síðar var drengurinn fæddur og allt gekk ljómandi vel,“ sagði
faðir barnsins í samtali við Skessuhorn.
KG Fiskverkun í
Rifi keypti nýjan bát
Faxaborg SH-207 kom fyrsta sinni til heimahafnar í Rifi að
morgni gamlársdags. Hét hann áður Sólborg RE og var í eigu
Brims. Báturinn var smíðaður árið 2001 en eftir að KG Fisk-
verkun keypti bátinn var hann lengdur úr 19 metrum í 24 og
yfirbyggður, auk þess sem millidekkið var yfirfarið og sett upp
nýtt glussakerfi og sitthvað fleira. Eftir breytingar hefur Faxa-
borgin 24 rekka fyrir línuna eða samtals 30 þúsund króka. Við
breytingarnar stækkaði báturinn sömuleiðis um 79 tonn, úr
115 tonnum í 194.
Íslandspóstur skerti
þjónustu í dreifbýli
Póst- og fjarskiptastofnun heimilaði með ákvörðun sinni 8.
janúar að Íslandspósti yrði heimilt að fækka dreifingardögum
sínum í dreifbýli niður í annan hvern virkan dag, í stað allra
virkra daga eins og verið hafði um árabil. Breytingarnar hafa
náð til um sjö þúsund íslenskra heimila, ríflega 5% heim-
ila landsins. Um er að ræða allar sveitir landsins, auk margra
smærri þéttbýlisstaða á við Hvanneyri, Bifröst og Kleppjárns-
reyki í Borgarfirði, Melahverfi í Hvalfjarðarsveit og Reykhóla.
Frá því breytingarnar tóku gildi hefur póstur borist til þess-
ara staða mánudaga, miðvikudaga og föstudaga aðra vikuna og
þriðjudaga og fimmtudaga hina vikuna.
Fast 8 skotin á Akranesi
Tilkynnt var um það í janú-
arlok að kvikmyndin Fast 8,
áttunda mynd The Fast &
The Furious kvikmynda-
syrpunnar, yrði meðal ann-
ars tekin upp á Akranesi, en
kvikmyndasyrpan hefur not-
ið mikilla vinsælda í gegn-
um tíðina. Með aðalhlut-
verk myndarinnar fóru am-
eríska vöðvatröllið Dwayne
„The Rock“ Johnson, stór-
leikkonan Charlize The-
ron og breski töffarinn Jason
Statham. Tökur á kvikmynd-
inni hófust síðan á Akranesi í
aprílmánuði og fylltust stræti
og torg Akranesbæjar af alls kyns fararskjótum, allt frá sportbíl-
um til skriðdreka. Tökur fóru einnig upp í Mývatnssveit.
Særðri össu komið til hjálpar
Á meðfylgjandi mynd má sjá Róbert Arnar Stefánsson hjá Nátt-
úrustofu Vesturlands í Stykkishólmi halda á særðri össu. Hafði
stofunni verið tilkynnt um örn sem í erfiðleikum í Berserkja-
hrauni og fóru starfsmenn stofunnar á stúfana. Fundu þeir inn-
an við ársgamlan kvenfugl með laskaðan væng. Var hún hand-
sömuð og komið undir læknishendur í Reykjavík og aðhlynn-
ingar í Húsdýragarðinum. Reyndist assan ekki vera vængbrot-
in og náði hún sér að fullu og fékk frelsið á ný í byrjun apríl-
mánaðar. Var þá farið með hana vestur á Snæfellsnes og henni
sleppt á sama stað og þar sem hún hafði fundist í Berserkja-
hrauni. Eitthvað var hún ryðguð í flugtækninni eftir veruna í
Húsdýragarðinum því henni fataðist flugið í fyrsta flugtaki og
hlunkaðist í sjóinn og lá þar eins og slytti án þess að reyna að
synda. Bar þá að tvær álftir og tóku össuna í sundkennslu. Við
það var eins og lifnaði yfir henni og gat hún synt í land og kom-
ið sér á þurrt. Þrír ernir úr nágrenninu voru þá komnir á stað-
inn og sveimuðu yfir í dágóða stund meðan fólk var á staðn-
um.
Mokuðu saur fyrir aur
Krakkar í unglingadeild Auðarskóla í Búðardal voru að safna
sér fyrir utanlandsferð síðasta vetur. Brugðu á það ráð í fjáröfl-
unarskyni að bjóða fram starfskrafta sína gegn styrkveitingu í
ferðasjóðinn. Meðal fyrstu verkefna sem hópnum barst var skít-
mokstur í fjárhúsunum á Hrappsstöðum. Var verkefninu einkar
vel tekið og fóru nemendahópar þrjá daga í röð til moksturs-
ins. Hvort þeir fengu skítnóg af peningum fyrir vikið skal ósagt
látið en sjóðurinn varð lítið eitt digurri fyrir vikið og höfðu
krakkarnir gaman af, því samkvæmt heimildum Skessuhorns
voru nemendur á einu máli að þar færi ein skemmtilegasta fjár-
öflunarleið sem þeir hefðu farið.
Framhald á næstu opnu
Fréttaannáll ársins 2016 í máli og myndum
Tímastjórnun verður seint talin til helstu mannkosta
undirritaðs, sem situr við skrifborð sitt og fer yfir það
sem sætti tíðindum á árinu sem er að líða aðfararnótt
mánudagsins fyrir jólablað Skessuhorns, stærsta blaðs
ársins. Hvað veldur veit enginn, en undirrituðum þykir
tímastjórnun hans hafa farið aftur með árunum, rétt
eins og stundvísinni. Þegar kemur að kosningum er
undirritaður hins vegar nokkuð stundvís. Þegar kosið
var til forseta í sumar greiddi hann til að mynda at-
kvæði með stimpli á skrifstofu sýslumanns, mörgum
vikum fyrir kosningar. Það kallast að vera tímanlega
í því, en hann myndi þó ekki voga sér að mæta svo
tímanlega í matarboð hjá tengdó. Þegar kom að
næstu kosningum, þegar kosið var til Alþingis, mætti
undirritaður einnig tímanlega. Í það minnsta nógu tím-
anlega svo að það var enn opið á kjörstað og einnig
nógu tímanlega til að lenda akkúrat í mestu traffíkinni
og þurfa að standa í biðröð. Á meðan sátu morgun-
hanar eflaust hlæjandi heima hjá sér að seinagangi
undirritaðs, löngu búnir að kjósa og fara í sund (heita
pottinn). Á móti kemur að undirritaður gat fylgst
með fram eftir nóttu og fljótlega var ljóst að stefndi
í ánægjuleg tíðindi í kosningunum. Þessi ánægjulegu
tíðindi vísa ekki til skiptingar þingsæta á nokkurn
hátt, heldur til þeirrar staðreyndar að þeim flokki sem
iðkaði hreinan og beinan rasisma og popúlisma í að-
draganda kosninga var gersamlega hafnað og hent
öfugum út. Þjóðfylkingin fékk aðeins 303 atkvæði á
landsvísu og það þótti undirrituðum ánægjulegt. Yljaði
það honum um hjartarætur að Íslendingar skyldu svo
afgerandi taka afstöðu gegn popúlisma, rasisma og
mannhatri. Slíkt er nefnilega ekki sjálfgefið, því víða í
löndunum í kringum okkur hafa popúlistaflokkar sem
ala á mannhatri og fordómum náð brautargengi og
kjörnum fulltrúum. Sé litið vestur til Ameríkuhrepps
má sjá hvar popúlisminn holdi klæddur bíður þess að
verða settur í embætti Bandaríkjaforseta. Vera kann
að víðsjárverðir tímar séu í uppsiglingu og verðum
við, hinir almennu borgarar, að vera vakandi og upp-
lýstir því þegar allt kemur til alls þá er ábyrgðin okkar
kjósenda. Lýðræðisríki fær þá stjórn sem íbúar þess
kjósa og í ljósi sögunnar hefur það aldrei reynst mann-
skepnunni neitt auðnuspor að hleypa til valda popúl-
istum sem ala á mannhatri og fordómum. Höfum augu
og eyru hjá okkur, verum gagnrýnin á umræðuna því
stjórnmálamenn annarra og mun hófsamari og hefð-
bundnari stjórnmálaflokka eru þegar farnir að máta
sig við slíka orðræðu popúlismans. Það er ekkert að
óttast, nema óttann sjálfan og vinna má bug á þeim
ótta með gagnrýninni hugsun.
Að öðrum kosti svarar undirritaður því til að það sé
„allt gott að frétta“ og viðburðaríkt ár að renna sitt
skeið á enda. Vestlendingar hafa verið atorkusamir á
árinu, sem endranær. Þeir hafa staðið í ströngu og það
sem mér þykir mest um vert; látið sig varða málefni
líðandi stundar, staðið saman, verið sammála, verið
ósammála, rökrætt, vegið og metið, þorað að skipta
um skoðun, þorað að standa á sínu og gefið náung-
anum gaum og komið fram við hann af virðingu. Allt
samfélaginu til heilla.
Hér að neðan er stiklað á stóru í tíðindum ársins 2016.
Þar er af nógu að taka og upptalningin er ekki tæm-
andi. Það er nefnilega nóg að frétta.
Ást og friður,
Kristján Gauti Karlsson, blaðamaður.
„Það sætir tíðindum“