Skessuhorn - 21.12.2016, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 201644
Níræður á nagladekkjum
Hinn níræði Ríkharður
Jónsson, fyrrum bóndi í
Gröf í Laxárdal, lætur ekki
deigan síga þrátt fyrir háan
aldur og hugsar betur um
heilsuna en margir sem eru
áratugum yngri en hann.
Ríkharður stundar hjól-
reiðar og hjólar á hverj-
um einasta degi, að heita
hvernig sem viðrar. Síðasta
vetur fékk hann sér nagla-
dekk undir reiðhjólið sitt
og þeystist um götur Búð-
ardals um hávetur. Vel lá á Ríkharði þegar fréttaritari heim-
sótti hann á Silfurtún, þar sem hann er nú búsettur og minntist
hann þess að hafa byrjað ungur að hjóla og fengið síðar reið-
hjól í fermingargjöf. „Það var góð gjöf,“ sagði Ríkharður með
áherslu í röddinni.
Sleit hásin í tvígang
Einn af virkari fréttariturum Skessuhorns er Tómas Freyr Krist-
jánsson í Grundarfirði. Hann varð fyrir því óláni að slíta tvisv-
ar hásin með skömmu milli. Fyrst slitnaði sinin þegar hann lék
fótbolta með syni sínum í svokölluðum foreldrafótbolta á haust-
mánuðum 2015. Hann var fluttur undir læknishendur til að-
hlynningar og síðar tók við hefðbundið ferli bata og endurhæf-
ingar. Bataferlið gekk að óskum þar til það fékk snöggan endi í
byrjun febrúar. Þá var Tómas á gangi úr bílskúrnum sínum og
fann smell í fætinum. Var hann þess fullviss að hrunið hefði snjór
ofan af þakinu og lent aftan á fótlegg hans. „Ég leit við og þar var
ekki neitt. Það rann upp fyrir mér hvað hefði gerst og þá gersam-
lega féllust mér hendur. Ég skildi að hásinin hefði slitnað á nýj-
an leik,“ sagði Tómas í samtali við Skessuhorn. Hann stóð engu
að síður vaktina, tók myndir og flutti fréttir úr Grundarfirði eft-
ir fremsta megni.
Meirihlutinn féll í Borgarbyggð
Snörp pólitísk átök hófust bak við tjöldin í Borgarbyggð snemma
í febrúarmánuði. Síðdegis fimmtudaginn 11. febrúar var meiri-
hlutasamstarfi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks formlega
slitið, strax að loknum sveitarstjórnarfundi. Ágreiningur um
skólamál á Hvanneyri réði úrslitum að upp úr slitnaði, en það
var óneitanlega þyngsta mál sveitarstjórnarinnar það sem af er
kjörtímabili og hafði ollið deilum sem ristu djúpt. Meðal ann-
ars höfðu íbúasamtök Hvanneyrar lagt fram þá tillögu að þau
fengju að stofna og reka sinn eigin grunnskóla en þær hugmynd-
ir hlutu ekki náð fyrir augum sveitarstjórnarfulltrúa. Það var síð-
an eftir nokkurt japl, jaml og fuður að lögð var fram tillaga, að
frumkvæði sveitarstjórnarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, þess efnis að
hætta við ákvarðanir um lokun Andakílsskóla og færslu þriggja
bekkja grunnskólans inn í leikskólann Andabæ. Tillagan var auk
þess studd með atkvæðum minnihlutafulltrúa en Framsóknar-
menn sátu hjá. Þreifingar um myndun nýs meirihluta voru hafn-
ar fyrir áðurnefndan fund. Þá hafði Framsókn boðið fulltrúum
Samfylkingar „upp í dans“, en Samfylking var í oddastöðu með
tvo fulltrúa í sveitarstjórn og gat hafið samstarf við hvorn flokk-
inn sem var af fráfarandi meirihlutaflokkum. Þessu boði Fram-
sóknar höfnuðu Samfylkingarfulltrúar sem þótti vænlegra í ljósi
þeirra málefna sem steytti á að hefja fyrst viðræður við Sjálfstæð-
isflokkinn. Hófust þær strax um kvöldið og náðu flokkarnir sam-
an nokkrum dögum síðar og stýrði sínum fyrsta sveitarstjórnar-
fundi föstudaginn 24. febrúar.
Kolfinna hætti og
Gunnlaugur tók við
Í kjölfar þess að meirihluti sveitarstjórnar í Borgarbyggð féll
fimmtudaginn 11. febrúar, eins og sagt er frá í síðustu frétt að
ofan, dró Kolfinna Jóhannesdóttir sveitarstjóri sig í hlé frá störf-
um daginn eftir. Samþykkti
nýr sveitarstjórnarmeiri-
hluti viku síðar að segja upp
ráðningasamningi henn-
ar og auglýsa starf sveitar-
stjóra laust til umsóknar. Á
vormánuðum var síðan ráð-
inn nýr sveitarstjóri Borgar-
byggðar, hagfræðingurinn
Gunnlaugur A. Júlíusson.
112 deginum haldinn hátíðlegur
Víða á Vesturlandi var 112 dagurinn haldinn hátíðlegur fimmtu-
daginn 11. febrúar. Buðu björgunarsveitir og viðbragðsaðilar í
landshlutanum og um allt land gestum og gangandi að líta við á
opnu húsi og kynna sér starfsemina. Víða heimsóttu viðbragðs-
aðilar skóla og fræddu grunnskólabörn að morgni dags áður en
almenn dagskrá tók við síðdegis. Fullorðnir og börn virtu fyrir
sér tækjakost viðbragðsaðila og yngri kynslóðin fékk jafnvel að
máta sig við fararskjótana, eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Eitt hlaupársbarn fæddist
Hlaupársdagur fór heldur
rólega af stað á fæðingadeild
HVE á Akranesi og fram eft-
ir degi var útlit fyrir að ekk-
ert barn fæddist þann daginn.
Það átti þó eftir að breytast,
því kl. 21:15 fæddist stúlka,
48 sentímetra löng og 3.470
grömm að þyngd. Foreldr-
ar stúlkunnar eru þau Dini
Damayanti og Hafþór Páls-
son, búsett á Akranesi.
Hausaþurrkunarmál
til lykta leitt
Deilur um fiskþurrkun HB Granda á Akranesi voru bæði lang-
ar og harðar. Þær hófust árið 2015 og hafa því gert annálsrit-
ara kleift að nota sama brandarann tvö ár í röð. Í stuttu máli var
tekist á um hvort samþykkja ætti tillögu að breyttu deiliskipu-
lagi Breiðarsvæðisins, sem myndi heimila HB Granda að stækka
verulega fiskþurrkunarverksmiðju fyrirtækisins, áður Lauga-
fisk. Náðu átökin í bænum hámarki um mánaðamótin febrú-
ar-mars þegar í gangi voru tveir undirskriftalistar og bæjarbú-
ar ýmist hvattir til að leggja nafn sitt við áskorun til bæjarstjórn-
ar um að samþykkja deiliskipulagstillöguna óbreytta eða fella
hana. Íbúar tókust á um málið, bæði í aðsendum greinum á síð-
um Skessuhorns, í umræðuhópum á netinu og á fundum. Mál-
inu lauk ekki að sinni fyrr en bæjarstjórn Akraness samþykkti til-
lögu að breyttu deiliskipulagi á fundi sínum 24. maí með fimm
greiddum atkvæðum, en fjórir sátu hjá. Málinu er þar með lok-
ið að hálfu bæjaryfirvalda og boltinn er nú hjá forsvarsmönnum
HB Granda sem geta, að fengnu framkvæmdaleyfi, hafið bygg-
ingu nýrrar og talsvert stærri fiskþurrkunar á Breiðarsvæðinu í
samræmi við deiliskipulag.
Stærsta einstaka
verkefni Skagans
Skaginn hf. á Akranesi, ásamt samstarfsfyrirtækum sínum Frost
ehf. og Rafeyri ehf. á Akureyri, samdi í marsbyrjun við Eskju
hf. á Eskifirði um smíði og uppsetningu á búnaði í nýja verk-
smiðju fyrir vinnslu á uppsjávarfiski til manneldis á Eskifirði.
Verksmiðjan verður í nýju sjö þúsund fermetra húsnæði. Stefnt
er að því að þar verði hægt að frysta um 700 til 900 tonn afurða
á sólarhring með tólf plötufyrstum með stækkunarmöguleika í
1.200 tonn með 16 plötufyrstum, smíðuðum hjá Þorgeiri&Ell-
ert á Akranesi. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er heildar-
verðmæti samningsins á fjórða milljarð króna. Þetta er einungis
hluti af verkefnum Skagans sem hefur á liðnum árum vaxið gríð-
arlega og er eitt öflugasta fyrirtæki í heiminum á sínu sviði. Kæli-
tækni sem þar hefur verið þróuð á ekki síst þátt í velgengninni.
Umhleypingar en lítið tjón
Önnur vika marsmánaðar einkenndist af umhleypingatíð um allt
vestanvert landið. Sérstaklega var fimmtudagurinn slæmur, en
þá gerði asahláku með tilheyrandi vatnavöxtum. Krapaflóð féllu
úr Ólafsvíkurenni og flæddi inn í lifrarvinnsluna Ægi í Ólafsvík.
Mjög hvasst var og fór vindur upp undir 50 m/sekúndu í hviðum
undir Hafnarfjalli. Um kvöldið bætti aftur í vind með öskubyl
til fjalla og urðu fjallvegir ófærir. Aðeins dró úr en á föstudags-
kvöld var hávaðarok um allt Vesturland. Verst var veðrið þó á
sunnudegi og þar til aðfararnótt mánudags þegar djúp lægð gekk
yfir vestan- og norðvestanvert landið. Sinntu björgunarsveit-
ir fjölmörgum útköllum vegna veðursins um kvöldið og fram á
nótt. Þrátt fyrir veðrið var blessunarlega lítið um alvarlega fok-
skemmdir og engin slys urðu á fólki.
Risaþorskur dreginn úr Faxaflóa
Óvenjumikið af stórþorski
veiddist á innanfélagsmóti
Sjóstangveiðifélagsins Skipa-
skaga á Akranesi um miðjan
marsmánuð, fyrir hrygning-
arstopp og á meðan stór-
þorskurinn er enn í Faxa-
flóa. Meðalþyngd fiskanna
var fyrir vikið 9,5 kíló sem
er töluvert hærri en þau 1,5
til 2 kg sem er hefðbundn-
ari meðalvigt í mótum sem
þessum. Meðal fiska sem
komu upp úr hafinu var risa-
þorskur, 37,5 kg sem Gunnar Jónsson leikari dró úr sjó. Bend-
ir allt til þess að þar fari stærsti þorskur sem veiðst hefur við Ís-
landsstrendur. Opinbert Íslandsmet er þó ekki fallið, því fiskar
veiddir á innanfélagsmótum teljast ekki með í landsmetum. Met-
ið er því enn skráð 26 kg.
Hótel stækkuð og
gististaðir opnaðir
Vaxandi fjöldi ferðamanna sem sækir landið heim hefur kom-
ið vel við vestlenska ferðaþjóna. Hótel og gistipláss hafa verið
þéttsetin og víða spretta upp nýir gististaðir. Til að mæta vax-
andi eftirspurn réðust hótelrekendur víða á Vesturlandi í stækk-
anir á árinu sem er að líða. Stækkað var á Hótel Hamri í Borgar-
nesi, á Húsafelli í Borgarfirði auk þess sem enn stendur yfir viða-
mikil stækkun Fosshótels Reykholti og Hótel Langaholti á Snæ-
fellsnesi. Þá hafa hótelrekendur á Búðum á Snæfellsnesi hug á
stækkun og einnig er hugur í forsvarsmönnum Hring Hotels að
stækka Hótel Stykkishólm, svo fátt eitt sé nefnt. Einnig hafa ver-
ið opnaðir nýir gististaðir á árinu sem er að líða, til dæmis Hótel
Fransiskus í Stykkishólmi, Sauðafell Guesthouse í Dölum, Álfta-
land á Reykhólum, Kastalinn í Búðardal og Öxl á Snæfellsnesi,
svo fáein dæmi séu útlistuð. Þá er ótalinn fjöldi áningarstaða,
veitingastaða, uppbygging afþreyingarmöguleika hvers kyns og
annarra þjónustufyrirtækja sem ný eru á árinu 2016. Á meðfylgj-
andi mynd má sjá vaskan hóp iðnaðarmanna sem vann að stækk-
un Hótels Húsafells í sumar.
Forsætisráðherra sagði af sér
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði af sér sem forsætisráð-
herra Íslands í kjölfar Wintris-málsins svokallaða. Í örstuttu máli
Framhald á næstu opnu
Fréttaannáll ársins 2016 í máli og myndum