Skessuhorn - 21.12.2016, Qupperneq 46
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 201646
komust fjölmiðlar víða um
Evrópu undir gögn frá fyr-
irtæki í Panama sem sýndu
fram á tengsl fjölmargra
stjórnmálamanna, kaup-
sýslumanna, íþróttamanna
og ýmissa þekktra einstak-
linga við fyrirtæki í skatta-
skjólum. Meðal annars
fundust í gögnunum nöfn
forsætisráðherra Sigmund-
ar Davíðs Gunnlaugsson-
ar og ráðherranna Bjarna
Benediktssonar og Ólafar
Nordal, auk fjögurra þáverandi og fyrrverandi borgarfulltrúa.
Ákváðu fjölmiðlar að vinna saman að rannsókn þessara gagna
og fjalla um málið á sama tíma, sunnudaginn 3. apríl kl. 18 að ís-
lenskum tíma. Þá var sýndur á RÚV Kastljóssþáttur sem verð-
ur lengi í minnum hafður. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra sat þá fyrir svörum og endaði með því að hann
gekk út úr viðtalinu þegar hann beðinn um að útskýra tengsl sín
við aflandsfélagið Wintris. Tveimur dögum eftir sýningu þáttar-
ins sagði Sigmundur Davíð síðan af sér sem forsætisráðherra og
Sigurður Ingi Jóhannsson atvinnuvegaráðherra tók við forsætis-
ráðuneytinu af honum. Síðan hefur ýmislegt gengið á. Sigmund-
ur neitaði að víkja sem formaður Framsóknarflokksins en varð
að lokum að játa sig sigraðan þegar flokksmenn völdu nýjan for-
mann á flokksþingi, Sigurð Inga. Sigmundur Davíð hlaut engu
að síður oddvitasætið í NA-kjördæmi og tók sæti á þingi eftir ný-
lega afstaðnar kosningar.
Fullkomin steinefnaþvottastöð
tekin í notkun
Efnisvinnslan Tak-Malbik ehf. tók í notkun nýja og mjög full-
komna steinefnaþvottastöð í malarnámunni að Hólabrú við ræt-
ur Akrafjalls. Aðeins er ein sambærileg stöð fyrir í landinu. Stöð-
in er af gerðinni CDE 2500 og er mikið mannvirki, kostaði upp-
sett um 220 milljónir króna. Nýja þvottastöðin gerir Tak-Mal-
biki kleift að skapa aukin verðmæti úr þeim efnum sem unnið er
með fyrir sakir hreinsunar og flokkunar. Sagði Halldór Gunn-
laugsson, einn þriggja eigenda fyrirtækisins, að kröfur efniskaup-
enda færu vaxandi hvað varðar grófleika og hreinleika efnisins.
„Til að uppfylla þær kröfur þurftum við nýjar og betri græjur,“
sagði hann í samtali við Skessuhorn. „En nú getum við einnig
hreinsað fínna efni og selt sem hágæða hráefni til steypuvinnslu,
efnis sem áður var umframefni hjá okkur,“ bætti hann við. Á
Hólabrú kepptust menn síða við að hreinsa efni og byggja upp
lager fyrir veturinn, en um þúsund tonn af efni á dag fóru í gegn-
um þvottastöðina. Rekstur stöðvarinnar hefur gengið mjög vel
frá opnun, samkvæmt heimildum Skessuhorns.
Tvö sveitarfélög
fengu úr Fjarskiptasjóði
Úthlutað var úr Fjar-
skiptasjóði til ljósleið-
aravæðingar landsins í
tengslum við verkefnið
Ísland ljóstengt. Alls voru
450 milljónir til ráðstöf-
unar úr sjóðnum á síð-
asta ári og áætlað að verði
að tengja um 1100 heim-
ili fyrir þann aur. Sem kunnugt er er unnið að því víða um land
þessi misserin að reyna að koma á skaplegri internettengingu
fyrir íbúa til sjávar og sveita. Af sveitarfélögum vestlenskum var
bæði Borgarbyggð og Eyja- og Miklaholtshreppi boðinn styrk-
ur úr Fjarskiptasjóði á árinu sem leið. Tvö önnur höfðu sótt
um, Snæfellsbær og Dalabyggð. Mótmæltu Dalamenn harðlega
framkvæmd úthlutana og þykir óeðlilegt að sveitarfélög séu lát-
in keppa sín í milli um úthlutanir ríkisfjár. Auk þess komu þeir
á framfæri þeirri skoðun sinni að dreifbýl sveitarfélög sem hafi
átt undir högg að sækja, ættu að njóta forgangs við slíkar úthlut-
anir. Ljósleiðaravæðing sveitarfélaga á Vesturlandi er enn í full-
um gangi og verður næstu árin. Þá eru enn önnur sveitarfélög að
vinna að áætlunum um ljósleiðaravæðingu og bætt fjarskipti.
Þjóðgarðsmiðstöð
mun rísa á Hellissandi
Ákveðið var á vormánuðum að hefja byggingu Þjóðgarðsmið-
stöðvar á Snæfellsnesi. Það tilkynnti umhverfisráðherra á Um-
hverfisþingi. Fimmtíu milljónir verða lagðar í verkið fyrst um
sinn en áætlað er að miðstöðin kosti fullbúin um 300 milljónir
króna. Bygging Þjóðgarðsmiðstöðvar á sér nokkurn aðdraganda,
en árið 2006 ákvað Snæfellsbær og Umhverfisstofnun að efna til
samkeppni um hönnun þjónustumiðstöðvar Þjóðgarðsins Snæ-
fellsjökuls á Hellissandi. Um þremur árum síðan kom fram í
fréttum Skessuhorns að Teiknistofan Arkís ehf. hefði orðið hlut-
skörpust í þeirri keppni. Voru þá kynntar hugmyndir um bygg-
ingu Jökulhöfða á Hellissandi. Gjaldþrot bankanna og þrenging-
ar í ríkisfjármálum ollu því hins vegar að máli var sett á ís þar til í
vor að ráðherra ákvað að hafist yrði handa. Notaðar verða teikn-
ingar þær sem legið hafa fyrir og tók Sigrún Magnúsdóttir um-
hverfisráðherra fyrstu skóflustunguna að Jökulhöfða 12. ágúst.
Norðurál og Landsvirkjun
framlengdu orkusamning
Samkomulag náðist milli Landsvirkjunar og Norðuráls um end-
urnýjun raforkusamnings fyrirtækjanna fyrir 161 MW á kjör-
um sem endurspegla raforkuverð á mörkuðum í Norður-Evr-
ópu. Eftirlitsstofnun EFTA hefur síðan tekið samninginn til
formlegrar og endanlegrar umfjöllunar og lagt blessun sína yfir
hann. Hinn endurnýjaði raforkusamningur nær til fjögurra ára
og hljóðar upp á 161 MW, sem er nær þriðjungur af orkuþörf
álvers Norðuráls á Grundartanga. Hann tekur gildi í nóvember
2019 og gildir til loka árs 2023. Núverandi samningur verður því
áfram í gildi út októbermánuð árið 2019.
Þrjár reiðskemmur
rísa á Snæfellsnesi
Límtré-Vírnet reisir reiðskemmur fyrir Hesteigendafélag Stykk-
ishólms, Hesteigendafélagið Hring í Ólafsvík og ferðaþjónustu-
bændurna Agnar og Jóhönnu á Lýsuhóli í Staðarsveit. Skrifað
var undir samninga um byggingu þessara þriggja reiðskemma
í sumar. Ekki leið á löngu þar til framkvæmdir gátu hafist og
gengur bygging reiðskemmanna þriggja samkvæmt áætlun.
Víðgelmir nær
öllum aðgengilegur
Hjónin Stefán Stefánsson
og Þórhalla Laufey Guð-
mundsdóttir keyptu á síð-
asta ári jörðina Fljótstungu
í Borgarfirði, en henni til-
heyrir hellirinn Víðgelmir.
Var á árinu hafist handa við
að gera hellinn aðgengileg-
an nánast öllum sem eiga
leið hjá. Komið var fyr-
ir tréstiga, göngupöllum og mikilli lýsingu í hellinum, auk þess
sem byggð var móttaka fyrir hellinn í Fljótstungu. Hlutu rekstr-
araðilar Víðgelmis fyrir framtak sitt nýsköpunarverðlaun SSV
2016. „Ásetningur okkar var að búa til neðanjarðarævintýri og
það tókst,“ sagði Stefán þegar hann veitti verðlaununum viðtöku
og kvaðst líta björtum augum til framtíðar, reiðubúinn að taka á
móti enn fleiri gestum á árinu 2017.
Hvalsuggi í Pampoil garðinum
Grundfirðingurinn Unnsteinn Guðmundsson smíðaði í sumar
listaverk, stærðarinnar hvalsugga, sem nú prýðir Paimpol garð-
inn í Grundarfirði. Hugmyndina að listaverkinu fékk hann þar
sem hann reri á kajak árið 2013 á spegilsléttum Grundarfirðinum
þegar skyndilega kom hvalurinn Thunderstorm syndandi og reis
uggi hans upp rétt fyrir framan hann. Segir hann það hafa ver-
ið magnaða upplifun og orðið honum innblástur við smíði stytt-
unnar af ugga Thunderstorm sem komið var á sinn stað í Paim-
pol garðinum í júnímánuði.
Vilja sameinast á Snæfellsnesi
Sameiningarhugur er í stjórnendum sveitarfélaga á Snæfells-
nesi, en mismikill þó. Í sumar lýsti bæjarstjórn Stykkishólmsbæj-
ar yfir áhuga á að ræða sameiningu fjögurra sveitarfélaga; Stykk-
ishólmsbæjar, Helgafellssveitar, Grundarfjarðarbæjar og Eyja-
og Miklaholtshrepps. Í Snæfellsbæ mátu menn stöðuna svo að
sameining væri ekki vænlegur kostur að svo búnu máli. Í kjölfar
þess urðu stjórnendur Eyja- og Miklaholtshrepps síðar afhuga
hugmyndinni. Þeim fannst ekki vænlegt að ræða sameiningu án
Snæfellsbæjar og töldu eðlilegt að sveitarfélögin á sunnanverðu
Nesinu væru samstíga þegar kæmi að hugsanlegri sameiningu.
Forsvarsmenn Stykkishólmsbæjar, Helgafellssveitar og Grund-
arfjarðarbæjar hafa hins vegar haldið óformlegum viðræðum
áfram og í októberbyrjun var bæjarstjóra Stykkishólms falið að
undirbúa formlegar viðræður við stjórnendur hinna sveitarfélag-
anna tveggja.
Guðni Th. kjörinn
forseti Íslands
Íslendingar gengu til kosninga laugardaginn 25. júní og völdu
sér forseta. Níu frambjóðendur gáfu kost á sér til embættisins en
þegar talið hafði verið upp úr kössunum fór svo að Guðni Th.
Jóhannesson sagnfræðingur hlaut flest atkvæði, 71.356 talsins
sem nemur 39,1% fylgi. Kjörsókn var fremur góð, eða 75,7%. Í
öðru sæti hafnaði Halla Tómasdóttir með 27,9% atkvæða en í því
þriðja var Andri Snær Magnason með 14,3%, þá Davíð Odds-
son með 13,7% og í fimmta sæti Sturla Jónsson með 3,5%. Aðrir
frambjóðendur fengu innan við eitt prósent fylgi. Guðni Th. er
sjötti forseti Íslands, 48 ára sagnfræðingur og fimm barna faðir.
Hann er giftur Elizu Reid og eiga þau saman fjögur börn, en fyrir
átti Guðni eina dóttur. Tók Guðni við embætti forseta Íslands 1.
ágúst síðastliðinn og flutti fjölskyldan að Bessastöðum.
Álfar frá eyjunni grænu
Bæjar- og héraðshátíðir eru haldnar í nær öllum sveitarfélögum
á Vesturlandi og var engin undantekning á því í ár. Bæjarhátíðin
Írskir dagar fór venju samkvæmt fram á Akranesi fyrstu helgina
í júlí. Þótti hún takast með ágætum þó hefði mátt vera hlýrra í
veðri framan af helginni. Margir Skagamenn nýta tækifærið og
klæddu sig upp, en þegar kom að klæðaburði Írskra daga í ár
stóðu engir þeim Halldóri Hallgrímssyni og Þórólfi Guðmunds-
syni á sporði. Klæddust þeir einhverjum „írskustu“ jakkafötum
sem sést hafa og engu líkara en mættir væru á Akranes álfar frá
eyjunni grænu. Er þá ekki átt við eyjuna grænu sem Bubbi Mort-
hens söng um með Egó, heldur hina einu sönnu Grænu eyju; Ír-
land.
Framhald á næstu opnu
Fréttaannáll ársins 2016 í máli og myndum