Skessuhorn - 21.12.2016, Blaðsíða 86
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 201686
Í Aðventublaði Skessuhorns, sem
kom út í lok nóvember, var kynnt
samkeppni meðal nemenda í grunn-
skólum á Vesturlandi um skemmti-
legar jólamyndir. Líkt og verið hef-
ur undanfarin ár var keppnin tví-
skipt eftir aldri og var yngri flokk-
urinn fyrir 1. - 4. bekk og sá eldri
fyrir börn í 5. - 7. bekk. Þátttakan
var að venju góð. Skessuhorni bár-
ust mörg hundruð fallegra jóla-
mynda og beið dómnefndar því erf-
itt val.
Í fyrstu verðlaun í báðum aldurs-
flokkum var stafræn myndavél sem
fæst í versluninni Model á Akra-
nesi en þeir sem lentu í 2. og 3. sæti
fengu bók að launum. Vinnings-
höfum verður öllum send verðlaun
sín. Við hjá Skessuhorni viljum
þakka þátttakendum fyrir áhugann
og margar frábærar myndir. Jafn-
framt óskum við sigurvegurunum
innilega til hamingju.
grþ
Úrslit í jólamyndasamkeppni grunnskólabarna
Mynd Heklu Kristleifsdóttur í 6.S í Brekkubæjarskóla hlaut fyrstu verðlaun í flokki
eldri nemenda. Einstaklega vönduð og falleg mynd. Hlýtur Hekla myndavél að
launum.
Mynd Lottu Finnsdóttur Reiher í 5. bekk í Grunnskóla Borgarfjarðar, Hvanneyrardeild, lenti í 2.-3. sæti í eldri flokki. Fær hún
að launum bók. Hlýtur Lotta að launum bókina Dodda, bók sannleikans eftir Þórdísi Gísladóttur og Hildi Knútsdóttur.
Mynd Haralds Wilhelms Þórissonar úr 1. bekk í Hvanneyrardeild Grunnskóla
Borgarfjarðar lenti í 2.-3. sæti í yngri flokki. Hlýtur hann að launum bókina Lóa,
þú flýgur aldrei einn.
Mynd Oliwiu Aleksöndru Lukasik í 6. bekk í Grunnskólanum í Stykkishólmi lenti í
2.-3. sæti í eldri flokki. Fær hún bók að launum. Hlýtur Oliwia að launum bókina
Dodda, bók sannleikans eftir Þórdísi Gísladóttur og Hildi Knútsdóttur.
Mynd Ernis Daða Arnbergs Sigurðssonar í 4. bekk Hvann-
eyrardeildar Grunnskóla Borgarfjarðar hlaut fyrstu verðlaun í
flokki yngri nemenda. Falleg og skemmtileg mynd. Hlýtur hann að
launum stafræna myndavél frá Módel.
Mynd Önnu Valgerðar Árnadóttur í 4. BS í Brekkubæjarskóla lenti í 2.-3. sæti í
yngri flokki. Hlýtur hún að launum bókina Lóa, þú flýgur aldrei einn.