Skessuhorn - 21.12.2016, Page 102
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2016102
Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr
Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, lék
fjórða hringinn á lokaúrtökumótinu
fyrir LET Evrópumótaröðina, sterk-
ustu mótaröð Evrópu, á 65 höggum
eða samtals sjö höggum undir pari
vallarins. Samanlagt er hún því á ell-
efu höggum undir pari á mótinu. Er
Valdís í 4.-6. sæti fyrir síðasta keppn-
isdaginn og örugg áfram á sem ein
þeirra 60 kylfinga sem fá að leika
lokahringinn í dag, miðvikudaginn
21. desember.
Það er mikið í húfi fyrir Valdísi
Þóru því 30 efstu eftir lokahringinn
í dag fá fullan keppnisrétt á Evrópu-
mótaröðinni. Þeir sem hafna í sætum
31.-60. fá takmarkaðan þátttökurétt.
Hún er hins vegar í góðum málum
eftir að hafa spilað frábært golf í gær.
kgk
Valdís Þóra í 4.-6. sæti fyrir lokahringinn
Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni.
Ljósm. kylfingur.is.
Nýverið kom í ljós að sigurvegari
draumaliðsdeildar Azazo 2016 er
Óliver Kristján Fjeldsted, ungur
Borgnesingur. Fékk hann að laun-
um glæsilegan síma. Önnur verð-
laun, sex mánaða áskrift af Sport-
pakka 365, fóru til Vöndu Sigur-
geirsdóttur, fyrrverandi landsliðs-
konu og fjölskyldu hennar en þau
mynduðu saman eitt lið. Bjarki
Hvannberg hlaut svo gjafabréf í
þriðju verðlaun en aðeins örfá stig
skildu að efstu sætin.
Það var Brynja Guðmunds-
dóttir, forstjóri Azazo, sem í sum-
ar tók ákalli Freys Alexanders-
sonar, landsliðsþjálfara kvenna í
knattspyrnu og Hallberu Gísla-
dóttur, landsliðskonu frá Akra-
nesi, um að styrkja aukna umfjöll-
un um kvennaknattspyrnu. Styrkti
fyrirtækið umfjöllun um knatt-
spyrnu kvenna á Fótbolta.net og
setti á laggirnar Draumaliðsdeild
kvenna. Í draumaliðsdeild Azazo
stilla þátttakendur upp liði og fá
stig eftir raunverulegum árangri
leikmanna. Draumaliðsdeildin er
fyrsta „Fantasy-deild“ um kvenna-
íþrótt á Íslandi og líklega í Evrópu.
„Árangurinn fór fram úr björtustu
vonum en um 2.500 manns skráðu
sig til leiks. Það er rúmlega 50% af
fjölda þátttakenda í karladeildinni
sem hefur verið starfrækt í tíu ár.
mm
Borgnesingur sigraði í Draumaliðsdeild Azazo
Á myndinni eru f.v. Brynja Guðmundsdóttir forstjóri Azazo, María Sól Fjeldsted, Óliver Fjeldsted og Bárður Örn Gunnarsson hjá
Azazo. Ljósm. Ómar Vilhelmsson.
Briddsfélag Akraness hefur spilað
á hverju fimmtudagskvöldi frá 29.
september í haust og þar til síðast-
liðinn fimmtudag, eða samtals 12
kvöld. Gekk á ýmsu eins og gengur
en alltaf var spilaður eins kvölds tví-
menningur. Hlutskarpastir í móta-
röðinni urðu Karl Alfreðsson og
Bjarni Guðmundsson sem spiluðu
á tíu kvöldum og sóttu fjóra sigra,
fengu þeir fyrir vikið 79 bronsstig.
Næstir komu Ingi Steinar Gunn-
laugsson og Óli Grétar Ólafsson
með þrjá sigra á öllum tólf kvöldun-
um. Fengu þeir fyrir það 80 brons-
stig. Í þriðja sæti urðu Árni Braga-
son og Guðmundur Sigurjónsson
með tvo sigra frá sjö kvöldum og
samtals 61 bronsstig. Þá Tryggvi
og Þorgeir með jafn marga sigra af
jafn mörgum kvöldum en 44 brons-
stig og í fimmta sæti enduðu Ein-
ar Guðmunds og Maggi Magg með
einn sigur af þessu eina kvöldi sem
þeir spiluðu saman. Hlutu þeir fyrir
það 37 bronsstig.
Framundan hjá Briddsfélaginu er
Jólasveina-Tvímenningur 29. des-
ember næstkomandi. Hefst hann
kl. 19:30 í sal Félags eldri borg-
ara á Akranesi að Kirkjubraut 40
og hvetja forsvarsmenn félagsins
áhugasama spilara til að fjölmenna
og eiga saman ánægjulega kvöld-
stund.
kgk
Kalli og Bjarni spiluðu til sigurs
Auður Íris Ólafsdóttir, sem leik-
ið hefur með Skallagrími í Dom-
ino‘s deild kvenna það sem af er
vetri, er hætt körfuknattleiksiðkun
um sinni. Mun hún því ekki leika
meira með Borgarnesliðinu á yfir-
standandi keppnistímabili. Í frétt á
karfan.is er haft eftir Auði Írisi að
ákvörðun hennar sé ekki tilkomin
vegna óánægju með spilatíma eða
neins í þá veru. Hún segir mikið
og gott starf vera unnið í Borgar-
nesi en sjálf ætli hún sér að horfa
til annarra hluta út þessa leiktíð og
mæta síðan í slaginn aftur á næsta
tímabili.
kgk
Auður Íris hætt í bili
Auður Íris Ólafsdóttir í leik með Skalla-
grími fyrr í vetur.
Ljósm. Skallagrímur/
Ómar Örn Ragnarsson.
Einn vestlenskur knattspyrnumað-
ur var nýverið valinn til að taka þátt
í úrtaksæfingum U17 ára landsliðs
karla. Það er Brynjar Snær Pálsson í
Borgarnesi og félagmaður í Skalla-
grími. Æfingarnar fara fram undir
stjórn Halldórs Björnssonar dagana
milli jóla og nýárs. mm
Valinn í úrtaksæfingar U17
Brynjar Snær ásamt afa sínum og nafna.
Síðasta umferð Dom-
ino‘s deildar karla í
körfuknattleik fyr-
ir jólafrí var leikin á
f immtudagskvöld.
Botnlið Snæfells tók á
móti nýliðum Þórs frá
Akureyri. Gestirnir
höfðu yfirhöndina all-
an leikinn og ekki fyrr
en í lokafjórðungn-
um að Snæfellingar
komust á almennilegt
skrið og í námunda
við gestina. En það
var heldur seint í rass-
inn gripið og voru það
því Þórsarar sem fóru
með sigur af hólmi,
92-102.
Gestirnir byrjuðu
af krafti og náðu yf-
irhöndinni snemma
leiks, höfðu sjö stiga
forystu eftir aðeins
þrjár mínútur og
leiddu með tíu stig-
um eftir upphafs-
fjórðunginn, 23-33.
Áfram voru gestirn-
ir sterkari og leiddu
með allt að tíu stigum
framan af öðrum leikhluta. Þeir stigu
síðan örlítið á bensínið allt til loka
hálfleiksins og leiddu með 14 stigum
í hléinu, 40-54.
Gestirnir voru sömuleiðis heldur
ákveðnari í upphafi síðari hálfleiks
og um miðjan þriðja fjórðung varð
mestur munur á liðunum, en Þór
leiddi þá með 28 stigum. Snæfelling-
ar tóku aðeins við sér og minnkuðu
muninn í 20 stig fyrir lokafjórðung-
inn. Það var síðan í upphafi hans að
var sem þrýst hefði verið á einhvern
rofa hjá heimamönnum. Þeir áttu
mjög góðan leikkafla og náðu snar-
lega að minnka muninn niður í tólf
stig og síðan hægt og rólega í sjö stig
þegar fjórar mínútur lifðu leiks. Nær
komust þeir hins vegar ekki og gest-
irnir höfðu að lokum tíu stiga sigur,
92-102.
Sefton Barrett var atkvæðamestur
Snæfells með 29 stig og 16 fráköst.
Næstur honum kom Andreé Fares
Michelsson með 19 stig og þeir Þor-
bergur Helgi Sæþórsson, Árni Elmar
Hrafnsson og Sveinn Arnar Davíðs-
son skoruðu níu stig hver.
Úrslit leiksins þýða að Snæfell er
enn án sigurs á botni deildarinn-
ar, átta stigum á eftir næstu liðum.
Jólafrí er skollið á í Domino‘s deild
karla og Snæfell leikur því næst á
nýja árinu þegar liðið tekur á móti
ÍR fimmtudaginn 5. janúar.
kgk
Snæfell fer stigalaust í jólafrí
Sefton Barrett treður í leiknum gegn Þór. Reyndist þetta
verða síðasti leikur hans fyrir Snæfell, því hann mun ekki
snúa aftur í Hólminn eftir jólafríið. Nánar um það í annarri
frétt í blaðinu. Ljósm. sá.