Skessuhorn - 21.12.2016, Síða 103
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2016 103
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Skallagrímur mætti Grindavík í síð-
ustu umferð Domino‘s deildar karla
í körfuknattleik fyrir hátíðirnar.
Leikið var í Borgarnesi á fimmtu-
dag. Grindvíkingar náðu forystunni
snemma leiks og leiddu nánast allan
tímann og þó Skallagrímsmenn hafi
sjaldnast verið langt undan þá náðu
þeir sér einhvern veginn aldrei al-
mennilega á strik. Að lokum fór svo
að gestirnir höfðu sigur, 80-95 og
Skallagrímur verður því um miðja
deild yfir jólin.
Jafnræði var með liðunum í upp-
hafi leiks en Grindvíkingar höfðu þó
heldur yfirhöndina og leiddu eftir
fyrsta leikhluta, 23-26. Skallagríms-
menn svöruðu fyrir sig í öðrum
fjórðungi og jöfnuðu þegar hann var
hálfnaður. Grindvíkingar tóku aftur
forystuna en Skallagrímsmenn luku
fyrri hálfleik af krafti og komust yfir.
Þeir leiddu með einu stigi í hléinu,
43-42.
Grindvíkingar komust yfir á nýj-
an leik strax eftir hléið og leikurinn
var mjög jafn og spennandi þar sem
gestirnir leiddu með örfáum stig-
um þar til seint í þriðja leikhluta. Þá
tóku þeir góðan sprett og náðu tíu
stiga forskoti fyrir lokafjórðunginn,
60-70. Skallagrímsmenn náðu ekki
að svara fyrir sig í fjórða leikhluta
og gestirnir höfðu nokkuð þægilega
forystu allt til loka. Þegar leiktíminn
var liðinn munaði 15 stigum á liðun-
um, Grindvíkingar sigruðu 80-95.
Flenard Whitfield fór fyrir liði
Skallagríms með 28 stig og 15 frá-
köst. Næstur honum kom Darrell
Flake með 19 stig og sex fráköst og
Sigtryggur Arnar Björnsson lauk
leik með 16 stig og sex stoðsend-
ingar en aðrir höfðu minna.
Úrslit leiksins þýða að Skallagrím-
ur mun sitja í sjötta sæti deildarinn-
ar á meðan deildin er í jólafríi. Liðið
hefur tíu stig, jafn mörg og Þór Þor-
lákshöfn og Keflavík í sætunum fyr-
ir neðan en tvö stig eru í Þór Akur-
eyri í sætinu fyrir ofan.
Skallagrímur leikur næst á nýju
ári, fimmtudaginn 5. janúar, þegar
liði tekur á móti Haukum í Borgar-
nesi. kgk
Náðu sér aldrei almennilega á strik
Reynsluboltinn Darrell Flake átti prýðilegan leik.
Ljósm. Skallagrímur/ Gunnlaugur Auðunn Júlíusson.
Í síðustu umferð Domino‘s deild-
ar kvenna í körfuknattleik fyr-
ir jólafrí mættust nýliðar Skalla-
gríms og Njarðvíkur. Leikið var
suður með sjó og hafði Skallagrím-
ur betur, 72-78 en lokatölur leiks-
ins gefa þó ekki rétta mynd af yfir-
burðum Skallagrímskvenna í leikn-
um. Snemma lögðu þær grunn að
sigrinum og það var ekki fyrr en í
lokin að Njarðvík tók að minnka
muninn.
Jafnt var á með liðinum í blábyrj-
un leiksins en síðan ekki söguna
meir. Skallagrímskonur settu í flug-
gírinn í stöðunni 6-6, hertu varn-
arleik sinn til muna og sýndu hví-
lík gæða búa í liðinu á góðum degi.
Þær kafsigldu Njarðvík það sem eft-
ir lifði fyrsta leikhluta og að honum
loknum höfðu þær tíu stiga forskot,
11-21. Þær héldu síðan uppteknum
hætti í öðrum fjórðungi. Heima-
konur áttu engin svör við varnar-
leik Skallagríms og köstuðu boltan-
um ítrekað frá sér. Skallagrímskon-
ur fengu því auðveld stig úr hraða-
upphlaupum en auk þess nýttu þær
skotin sín vel. Þær voru einfaldlega
miklu betri í fyrri hálfleik, mun
ákveðnari og leiddu mjög afgerandi
í hálfleik, 26-47.
Leikmenn Njarðvíkur mættu
mun ákveðnari til síðari hálfleiks,
tóku á sig rögg í vörninni og náðu
aðeins að minnka muninn. Skalla-
grímskonur voru ef til vill orðnar
örlítið værukærar en engu að síð-
ur höfðu þær 19 stiga forystu fyrir
lokafjórðunginn og voru með unn-
inn leik í höndunum. Njarðvíking-
ar héldu áfram að kroppa aðeins
af forskotinu í lokafjórðungnum.
Skallagrímur svaraði þó fyrir sig og
náði 20 stiga forskoti á tímabili en
heimaliðið var mun sterkara á loka-
mínútum leiksins þar sem þær skor-
uðu 19 stig gegn aðeins fimm stig-
um Skallagríms. Það dugði þó ekki
til neins nema minnka muninn því
Skallagrímur sigraði með sex stig-
um, 72-78.
Tavelyn Tillman var atkvæða-
mest í liði Skallagríms með 31 stig
en Cameron Tyson-Thomas gerði
36 stig fyrir gestina. Sökum bilunar
í tölfræðiskráningu KKÍ er ítarlegri
tölfræði ekki aðgengileg og er beð-
ist velvirðingar á því.
Sigur Skallagríms gerir það að
verkum að liðið heldur þriðja sæti
deildarinnar yfir hátíðirnar. Lið-
ið hefur 18 stig eftir 13 leiki, jafn
mörg og Snæfell í sætinu fyrir ofan
en fjórum stigum á undan Stjörn-
unni sem situr í fjórða sæti.
Næst leikur Skallagrímur laugar-
daginn 7. janúar næstkomandi þeg-
ar liðið tekur á móti Val í Borgar-
nesi.
kgk
Tavelyn Tillman dró vagninn í liðið Skallagríms sem kafsigldi Njarðvík í fyrri
hálfleik og gerði þar með út um úrslit leiksins. Ljósm. Skallagrímur/ Ómar Örn
Ragnarsson.
Skallagrímur gerði út um leikinn í fyrri hálfleik
Skagamenn fóru vestur til Ísafjarðar
síðastliðinn föstudag og mættu liði
Vestra í 1. deild karla í körfuknatt-
leik. Eftir að nokkuð jafnræði hafði
verið með liðunum framan af leik
stungu heimamenn af um miðjan
annan fjórðung og unnu að lokum
stórsigur, 103-63.
Vestramenn byrjuðu betur en
ÍA minnkaði muninn í eitt stig um
miðjan upphafsleikhlutann. Leik-
urinn var nokkuð jafn eftir það, en
heimamenn höfðu þó heldur yfir-
höndina og leiddu með þremur stig-
um eftir fyrstu tíu mínúturnar. Þeir
juku síðan forskot sitt í sex stig í upp-
hafi annars fjórðungs en Skagamenn
spyrntu við fótum, reyndu að halda í
við heimamenn og minnkuðu mun-
inn í fjögur stig. Það var síðan um
miðjan annan leikhluta að heima-
menn gáfu allt í botn og stungu af.
Þeir skoruðu hverja körfuna á fæt-
ur annarri og Skagamenn áttu eng-
in svör. Í hléinu munaði 18 stigum
á liðunum, Vestri leiddi 48-30 og
heimamenn komnir í ansi hreint
vænlega stöðu.
Leikmenn ÍA náðu ekki að svara
fyrir sig og koma til baka í síð-
ari hálfleik. Vestramenn juku for-
skot sitt lítillega í þriðja leikhluta og
bættu enn við í lokafjórðungnum.
Þegar leiktíminn hafði runnið sitt
skeið á enda var forskot þeirra orðið
40 stig. Þeir sigruðu með 103 stig-
um gegn 63.
Derek Shosue skoraði 23 stig fyr-
ir ÍA og tók níu fráköst. Sindri Leví
Ingason skoraði 11 stig og Sigurður
Rúnar Sigurðsson var með tíu stig
og sjö fráköst en aðrir höfðu minna.
Skagamenn sitja í áttunda og
næstneðsta sætinu með sex stig þeg-
ar deildin fer í jólafrí, fjórum stig-
um frá næstu liðum fyrir ofan en
vel á undan stigalausu botnliði Ár-
manns. Fyrsti leikur ÍA á nýja árinu
verður einmitt gegn botnliðinu, en
hann verður leikinn fimmtudaginn
5. janúar í íþróttahúsinu við Vestur-
götu á Akranesi. kgk
Skagamenn fengu
skell fyrir vestan
Derek Shosue og félagar hans í ÍA höfðu ekki erindi sem erfiði vestur á Ísafirði.
Ljósm. úr safni/ jho.
Sefton Barrett hefur leikið sinn síð-
asta leik með Snæfelli í Domino‘s
deild karla í körfuknattleik. Hann
fer af landi brott í jólafrí, eins og svo
margir erlendir leikmenn, en mun
ekki snúa aftur eftir áramót. Má því
ætla að Snæfell tefli fram nýjum er-
lendum leikmanni þegar keppni hefst
í deildinni á nýjan eftir hátíðirnar.
Sefton skoraði 21 stig að meðaltali
í leik með Snæfelli, tók 11,3 fráköst
og gaf 3,1 stoðsendingu. Ingi Þór
Steinþórsson hefur hins vegar gagn-
rýnt hugarfar leikmannsins nokkuð
í viðtölum undanfarin misseri og nú
er ljóst að hann mun ekki leika meira
með liðinu.
Snæfell hefur átt afar erfitt upp-
dráttar það sem af er vetri. Liðið
vermir botnsæti deildarinnar og er
án sigurs eftir fyrri umferð deildar-
keppninnar, en átta stig eru í næstu
lið fyrir ofan.
kgk
Snæfell sendir Sefton heim
Sefton Barrett treður í leik með Snæfelli. Ljósm. úr safni.