Skessuhorn - 11.04.2017, Síða 14
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 201714
Ólöf Guðmundsdóttir viðskipta-
fræðingur var nýverið ráðin úr hópi
tæplega fjörutíu umsækjenda í starf
atvinnuráðgjafa hjá Samtökum
sveitarfélaga á Vesturlandi. Ólöf
stefnir nú að flutningi á heima-
slóðir, en hún er fædd og uppalin
í Borgarnesi og hefur starfað á höf-
uðborgarsvæðinu síðustu áratug-
ina. Nú setja þau, hún og Alexand-
er Hrafnkelsson eiginmaður henn-
ar, stefnuna á flutning á Vestur-
land að nýju. Fram kemur í spjalli
við Ólöfu að þau sem ungt fólk hafi
þurft að skipuleggja líf sitt upp á
nýtt þegar eiginmaðurinn greind-
ist með augnsjúkdóm. Þá hafi ekk-
ert verið til sem hét áfallahjálp, en
þeim hafi auðnast að láta mótlætið
ekki hefta för, heldur þvert á móti
hafi það mótað þeirra lífssýn. Hún
er sú að nýta tækifærin strax - það
væri ekki víst að þau kæmu aftur.
Ólst upp á Brennu-
holtinu í Borgarnesi
„Ég átti mína barnæsku í Borg-
arnesi og ólst þar upp við mikið
frjálsræði miðað við hvað þekkist
í dag. Þá voru börn miklu meira á
ferð og flugi en nú tíðkast. Ég ólst
upp á Holtinu í góðum hópi ætt-
menna. Þar höfðu amma Ólöf og
Ari maður hennar búið og þar var
dágóður hópur af systkinum pabba
og fólksins hans til staðar þegar ég
var að alast upp. Þau voru sjö börn
þeirra ömmu og afa og í mínum
uppvexti var þetta eiginlega eins
og að alast upp í lítilli kommúnu.
Ég var heimagangur hjá mínu fólki,
passaði minni frænsystkinin og var
hluti af stórum hópi. Amma mín,
Ólöf Sigvaldadóttir, varð ung ekkja,
missti afa minn árið 1959. Þessi
kjarnakona ól mig að hluta til upp
og henni á ég margt að þakka sem
og öðrum skyldmennum mínum á
Holtinu,“ segir Ólöf, eða Olla eins
og hún er jafnan kölluð, í upphafi
samtals okkar. Hún segir að þetta
frjálsræði sem hún fékk að kynnast
í uppvexti sínum hafi mótað sig og
síðar aukið henni víðsýni.
Fékk folald í fyrstu
vinnulaun
„Í dag þætti svona mikill samgangur
milli fólks sérstakur, í það minnsta
er það óvenjulegt. Ég upplifi þetta
þannig að verða fljótt sjálfstæð og
sjálfbjarga. Sem barn var ég farin
að trítla upp í hesthús, sem þá voru
í Votadalnum, um sex ára aldur-
inn og snúast í kringum karla sem
þarna voru með hross. Nú í dag
er hesthúsahverfi Skugga langt frá
byggðinni og þangað komast börn
ekki ein síns liðs, því þangað eru
ekki einu sinni strætóferðir og stór-
hættulegt að ganga eða hjóla eftir
þjóðveginum. Strax tíu eða tólf ára
gömul fór ég í reiðtúra með öðrum
krökkum í Borgarnesi. Það þótti
ekkert tiltökumál að fara til dæmis
alla leið vestur að Langá. Tímarn-
ir hafa því sannarlega breyst. Þegar
komið var á unglingsárin fóru flest-
ir krakkar í sveit og lærðu að vinna.
Ég fór að Skáney í Reykholtsdal og
var kaupakona hjá Marinó og Vil-
borgu og syni þeirra Bjarna. Tekj-
urnar eftir fyrsta sumarið voru fol-
ald sem mér þótti alveg frábær
vinnulaun. Að mínu mati var það
dýrmætt að vera virkjaður snemma
til vinnu. Ég hafði strax mikinn
áhuga á hestum og því hentaði mér
einstaklega vel að fara að Skáney.“
Kúvending í lífinu
Um sextán ára aldurinn fór Ólöf í
framhaldsskóla í Reykjavík því ekki
var hægt að stunda framhaldsnám
í Borgarnesi. „Eftir stúdentsnámið
kynntist ég Alexander Hrafnkels-
syni sem var einnig mikill hesta-
áhugamaður. Við bjuggum eitt ár
í Stykkishólmi og þar kynntist ég
bæjarlífinu og mörgu góðu fólki.
Alli var sjómaður og ég starfaði í
bankanum.“ Lífið virtist þannig
hafa fært unga fólkið í ákveðinn far-
veg og framtíðin virtist nokkuð ljós.
En örlögin gripu í taumana þannig
að kúvending beið unga fólksins.
„Á þessum tíma fær Alli að vita að
hann hafi augnsjúkdóm sem gæti
leitt til blindu og varð af þeim sök-
um að hætta í því starfi sem hann
var í. Á þessum tímapunkti þurft-
um við því að taka ákvörðun sem
eftir á að hyggja markaði sporin og
var á sinn hátt okkar gæfuspor. Ég
ákvað að í ljósi stöðunnar yrði ég að
mennta mig meira. Þetta var árið
1988. Við fluttum suður til Reykja-
víkur þá um haustið og hófum bæði
nám. Hann fer að læra nudd og ég
hélt áfram í viðskiptanámi sem ég
hafði aðeins verið byrjuð á áður en
við fluttum í Hólminn. Ég útskrif-
ast 1993 með ígildi meistaranáms
í viðskiptafræði af endurskoðunar-
sviði og hef í tvo áratugi starfað við
ýmist fjármál eða bókhald, bæði hjá
fjármálafyrirtækjum og einkaaðil-
um. Fyrir fimm árum síðan stofnaði
ég svo bókhaldsfyrirtækið Rekstr-
arsýn og hef starfað sjálfstætt, þar
til ég tók við ráðgjafastarfi hjá SSV
nú síðastliðinn vetur.“ Olla aflaði
sér að auki framhaldsmenntunar
veturinn 2015 og fram á vor 2016
og fór í nám við Háskólann á Bif-
röst þar sem hún lauk meistaranámi
í forystu og stjórnun. „Með mennt-
uninni á Bifröst efldi ég sjálfa mig í
nútíma stjórnunarháttum en vissu-
lega krafðist það skipulags og tölu-
verðrar útsjónarsemi að vera í námi
samhliða rekstri, hestamennsku og
öðru sem þá var í gangi.“
Hestamennskan
alltaf með
Ólöf segir að allan þennan tíma frá
barnæsku hafi hún samhliða öðrum
störfum eða alfarið unnið við hesta-
mennsku ásamt eiginmanni sínum.
„Að hluta til hef ég haft atvinnu af
tamningum og sölu hrossa úr eig-
in ræktun. Um tíma var ég fram-
kvæmdastjóri hjá Sölusamtökum
íslenskra hrossabænda. Þar kynnt-
ist ég ýmsu sem snýr að hrossum
og markaðsmálum hrossabænda.
Sjálf höfum við ræktað okkar eig-
in hross. Við höfum haft aðstöðu
fyrir uppeldi og ræktun hjá frænd-
fólki mínu á Skálpastöðum í Lund-
arreykjadal. Síðan erum við með
góða aðstöðu í Mosfellsbæ, reið-
höll og 35 hesta hús.“
Hún segir að hestamennskan hafi
alla tíð verið hluti af hennar lífi, en
um þessar mundir sé þungt undir
fæti í sölu hrossa. „Meðan markað-
urinn er svona lélegur eins og raun
ber vitni ætlum við bara að njóta
þess að eiga og brúka okkar eigin
hross.“
Ný lífssýn
Ólöf segir að það hafi ekki verið
fyrr en löngu síðar sem henni varð
ljóst að tíðindin um augnsjúkdóm
eiginmanns hennar hafi í raun verið
eins og hvert annað áfall. Það hafi
hins vegar styrkt þau bæði að ná að
vinna úr aðstæðunum á skynsamleg-
an hátt. „Það er auðvitað áfall fyr-
ir ungt fólk að þurfa að hugsa lífið
allt upp á nýtt, ef svo má segja. Við
þurftum að taka ákvörðun, hann
myndi missa sjónina og hvern-
ig myndi okkur vegna þegar hann
„Það mótaði okkur að þurfa ung að
skipuleggja lífið upp á nýtt“
Rætt við Ólöfu Guðmundsdóttur hestakonu og atvinnuráðgjafa á Vesturlandi
Ólöf Guðmundsdóttir tók nýverið við starfi atvinnuráðgjafa hjá SSV. Samtökin hafa nú opnað skrifstofu á Akranesi þar
sem Ólöf og annað starfsfólk SSV verður með viðveru einu sinni í viku. Hér er hún á nýju skrifstofunni í Nýsköpunarsetrinu
Coworking við Akratorg.
Olla og Alli á góðri stund í hestaferð. Ljósm. úr einkasafni.
Olla sýnir hér hryssuna Aríu á innanfélagsmóti í fyrrasumar hjá Herði í Mosfellsbæ. Ljósm. Sonja Noack.