Skessuhorn


Skessuhorn - 11.04.2017, Page 21

Skessuhorn - 11.04.2017, Page 21
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2017 21 Líkt og fram kom í síðasta tölu- blaði Skessuhorns bauð Fimleika- félag Akraness upp á tvær vorsýn- ingar í Íþróttahúsinu við Vestur- götu um næstsíðustu helgi. Skessu- horn birti myndasyrpu frá sýning- unni sem bar nafnið „Tilfinninga- rússíbani“ og fjallaði um einelti og vináttu. Sýningin var af svipuðu um- fangi og undanfarin ár en þetta var í fyrsta sinn sem hún byggði á frum- saminni sögu. Stefanía Sól Sveinbjörnsdóttir, þjálfari hjá FIMA, hafði yfirumsjón með sýningunni og samdi söguna sem sögð var. Hún segir þjálfara félagsins hafa lagt mikla vinnu í sýn- inguna og að góð samvinna hafi ver- ið þeirra á milli en þeir komu allir að sýningunni með einum eða öðrum hætti. „Við erum um tuttugu þjálf- ararnir hjá félaginu og við unnum öll saman að atriðunum og sömdum dansana. Ég átti heiðurinn af fimm dönsum á sýningunni en hin sex at- riðin voru í umsjón þeirra þjálfara sem kenna þeim hópum,“ segir hún. Þá var þetta í fyrsta sinn sem þjálf- ararnir tóku þátt í sýningunni. „Við tókum þátt og sýndum nokkur vel valin spor og gamla takta á áhöldum. Krakkarnir vilja meina að það hafi verið toppurinn á sýningunni og eru ennþá að ræða þetta sín á milli á æf- ingum,“ útskýrir Stefanía. Á sýningunni var jafnframt kynnt- ur til sögunnar nýr framkvæmda- stjóri félagsins, Sigrún Ríkharðs- dóttir, sem og tveir nýir þjálfarar; Stefán Þór Friðriksson og Þórdís Þráinsdóttir sem hefur tekið við sem yfirþjálfari. Þá fékk Harpa Rós Bjarkadóttir, fimleikakona ársins, afhenta bikara fyrir góðan árang- ur. Það er því ýmislegt í gangi hjá Fimleikafélagi Akraness um þessar mundir en líkt og fram hefur komið hefur bæjarstjórn Akraness nýver- ið samþykkt að hefja byggingu nýs fimleikahúss við Vesturgötu, sem mun bæta aðstöðu íþróttafélagsins til muna. grþ Góð samvinna þjálfara hjá FIMA Sýningin Tilfinningarússíbani var hin glæsilegasta en hún fjallaði um einelti og vináttu. Þórdís Þráinsdóttir nýr yfirþjálfari hjá FIMA, Stefán Þór Friðriksson nýr þjálfari, Sigrún Ríkharðsdóttir nýr formaður FIMA, Harpa Rós Bjarkadóttir fimleikakona ársins og Stefanía Sól Sveinbjörnsdóttir. „Mér fannst vanta eitthvað til að draga fram sögu Borgarfjarðar við þjóðveg eitt hjá Borgarnesi. Borgarfjörðurinn er mjög merki- leg söguslóð og hún mætti vera meira áberandi fyrir vegfarend- ur,“ segir listamaðurinn Hilmar Páll Jóhannesson sem vill reisa 9 metra hátt listaverk á Selskeri út af Seleyri við syðri enda Borgar- fjarðarbrúarinnar. Um er að ræða hönd sem rís upp úr Borgarfirði sem heldur á exi sem vísar á haf út. Innblásturinn að verkinu sækir Hilmar í Egilssögu en tilefnið er 150 ára afmæli Borgarness. Hilmar segir að verkið sé gjöf til allra Borgfirðinga og hefur hann fengið vilyrði frá einkaaðilum um fjármögnun verksins. Uppsetning þess veltur þó á því hvort Borg- arbyggð vilji þiggja gjöfina fyrir hönd íbúa og hvílir erindi Hilm- ars um málið nú á borði sveitar- stjórnar Borgarbyggðar. Útþrá og kraftur „Innblásturinn að verkinu er feng- inn úr kvæði Egils Skalla-Gríms- sonar „Það mælti mín móðir“. Þar yrkir Egill um orð móður sinnar um að hann væri víkingsefni og gerir hann það heima á Borg. Öxin í verkinu vísar út á haf og er það tákn um útþrá Egils og ósk hans um að stýra dýrum knerri. Það er líka viðeigandi að hafa exi sem er tilvísun í fleyg lokaorð kvæðisins: „Höggva mann og annan“,“ segir Hilmar. „Önnur hugsun er sú að listaverkið sýni kraft og þá er við- eigandi að hafa verkið í sjó þar sem Egill sigldi víða. Verkið er líka vís- un í Snorra Sturluson í Reykholti sem af mörgum er talinn höfund- ur Egilssögu.“ Hilmar vill að verkið verði á Selskeri sem stendur út af Seleyri við syðri enda Borgarfjarðarbrú- ar. „Listaverkið blasir þar vel við þeim fjölda vegfarenda sem eiga leið yfir brúnna. Verkið tekur í raun á móti vegfarendum sem aka að sunnan og er í forgrunni þessa mikla söguhéraðs frá Seleyri,“ bætir hann við. Vegagerðin gefið grænt ljós Í Selskeri er steypt mælingamerki sem nýtt var sem grunnpunkt- ur landmælinga við gerð vegar og brúar yfir Borgarfjörð á áttunda áratugnum. „Það er ekki notað lengur en hugmyndin er sú að hafa punktinn í undirstöðu listaverks- ins. Vegagerðin hefur gefið grænt ljós að nota merkið með þessum hætti en stofnunin hefur umráð yfir skerinu. Skerið fer undir sjó á flóði og þá stendur merkið upp úr. Sama mun gilda um listaverk- ið sem vafalaust taka sig vel út á haffletinum,“ segir Hilmar Páll en verkið verður úr blöndu af plasti og stáli. „Þetta er samskonar efni og ytra byrði herskipa nútímans eru úr. Það á því að geta staðið af sér vatn og vinda,“ segir Hilmar en listaverkið verður grænt til að byrja með en veðrast svo upp og verður brúnleitt á litinn. Hoppar í allskyns verk Hilmar hefur fengist við ýmsa sköpun á undanförnum árum en hann starfrækir vinnustofu við Seljaveg í Reykjavík. Hann hef- ur bæði starfað við leikmynda- hönnun og eigin listsköpun. „Síð- ustu ár hef ég til dæmis verið Páli Óskari innan handar í atriði hans í gleðigöngunni á Gay Pride. Í fyrra smíðaði ég risastóran einhyrning fyrir hann sem vakti mikla athygli og gladdi þúsundir. Áður hafði ég smíðað víkingaskip og svan fyr- ir Palla,“ segir Hilmar sem kveðst hoppa í allskyns verk. „Hugmyndin að verkinu í Sel- skeri kviknaði í ferðum mínum í Borgarfjörðinn en konan mín, Inga Lóa Guðjónsdóttir, er frá Rauðanesi og þar dveljum við oft. Í ferðum mínum hef ég oft verið að spá hvort að ekki mætti nýta umhverfið við Borgarnes betur til að koma Egilssögu á framfæri. Þetta er mín útfærsla á því.“ Verkið vonandi reist á afmælisárinu Hilmar segir markmiðið með verkinu að gleðja fólk sem á leið yfir Borgarfjörðinn og fá það til að hugsa um söguna. „Ég held að flestir minnist Borgarness fyr- ir bensínstöðvanna sem þar eru. Verk eins og þetta fangar hins vegar augað og fær fólk virkilega til að spá af hverju það er þarna. Ég hugsa að margir munu vilja stoppa á Seleyri til að virða verk- ið betur fyrir sér og taka mynd. Þar væri hægt að koma fyrir skilti með kvæðinu og upplýsingum um söguna. Og alltaf yrði Borgarnes í bakgrunni,“ segir Hilmar Páll. „Ég er að vona að sveitarstjórnin taki vel í þetta hjá mér. Það tekur um 4-5 mánuði að gera verkið og reisa það upp á skerinu. Það væri ekki verra að geta gert það nú á 150 ára afmælisári Borgarness,“ segir Hilmar að lokum. hlh Útþrá og kraftur Egils fái að njóta sín í listaverki í Borgarfirði Hilmar Páll Jóhannesson listamaður. Í baksýn má sjá eina nýjustu hönnun Hilmars, hvalasporð, sem fer á kreik fljótlega. Svona mun listaverkið líta út á flóði frá Borgarfjarðarbrú. Það verður um 9 metra hátt.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.