Skessuhorn - 18.10.2017, Síða 1
Séra Elínborg Sturludóttir sóknar-
prestur í Stafholti í Borgarfirði var
einn fimm umsækjenda um stöðu
prests í Dómkirkjunni í Reykjavík,
en umsóknarfrestur um stöðuna rann
út 14. ágúst síðastliðinn. Þegar kom
síðan að vali á presti nýverið reynd-
ust ýmsir formgallar á framkvæmd
þess sem endaði með því að hlutkesti
var látið ráða um hver fengi brauðið.
Séra Elínborg telur ýmsa formgalla
hafa verið á vali nýs sóknarprests í
Dómkirkjunni.
Hlutkesti látið ráða og
biskup staðfestir það
Kjörnefnd á alla jafnan að vera skip-
uð ellefu einstaklingum og vara-
menn kallaðir til ef aðalmenn eru
forfallaðir. Þegar kom að kjör-
fundi nýverið mættu hins vegar tíu.
Í fyrri hluta kosningar í kjörnefnd-
inni hlaut Elínborg fimm atkvæði af
tíu, einn skilaði auðu og aðrir tveir
umsækjendur skiptu með sér fjór-
um atkvæðum. Þannig hlaut Elín-
borg helming greiddra atkvæða í
fyrstu umferð kosninganna og meira
en helming atkvæða þeirra sem tóku
afstöðu. Telur hún því að hún hafi
verið rétt kjörinn prestur Dómkirkj-
unnar. „Við þessa afgreiðslu kjör-
nefndar hlaut ég meirihluta greiddra
atkvæða og bendi á að í starfsreglum
Þjóðkirkjunar er aðeins talað um að
sá sem hljóti meirihluta greiddra
atkvæða skuli valinn. Í reglunum
stendur ekki að það þurfi meiri-
hluta viðstaddra kjörmanna,“ segir
Elínborg í samtali við Skessuhorn.
Kjörnefnd ákvað hins vegar að kjósa
að nýju og í síðari umferð kosn-
ingar í nefndinni skiptust atkvæði
jafnt milli sr. Elínborgar og sr. Evu
Bjarkar Valdimarsdóttur. Þá hafi
kjörnefndin ákveðið að varpa hlut-
kesti þar sem Eva Björk varð hlut-
skarpari. Á vef Þjóðkirkjunnar sagði
í frétt 11. október síðastliðinn að
Agnes M Sigurðardóttir biskup Ís-
lands hafi ákveðið að skipa séra Evu
Björk í embætti prests frá og með 1.
nóvember nk.
Annmarkar á
starfsreglum
Elínborg Sturludóttir telur að
framhjá sér hafi verið gengið og
að verulegir formgallar hafi verið
á málsmeðferð kjörnefndar Dóm-
kirkjunnar. Átti hún fund með bisk-
upi síðastliðinn föstudag og lagði þar
fram formlega kvörtun. Segir hún að
biskup hafi á fundinum lýst yfir vilja
sínum til þess að leitað verði til óháðs
aðila til að fara yfir allar hliðar máls-
ins. Elínborg telur framkvæmd þessa
á vali á presti ámælisverða. „Það er
sjálfsögð krafa að farið sé að stjórn-
sýslulögum og að val á nýjum dóm-
kirkjupresti standist lög um opin-
berar embættisveitingar,“ segir hún
í samtali við Skessuhorn. „Ég hafði
stuðning meirihluta kjörmanna sem
afstöðu tóku í fyrri hluta kosningar
og álít að það hafi verið rangt að fara
í aðra umferð kjörsins sem endaði
síðan með því að hlutkesti var varp-
að. Kirkjuþing þarf að mínu áliti að
lagfæra gildandi starfsreglur um val
og veitingu prestsembætta. Kirkju-
þing þarf einnig að skerpa enn frek-
ar á þeim forsendum sem matsnefnd-
in starfar eftir til að meta hæfi ein-
stakra umsækjenda. Eins og þetta er í
dag eru forsendur matsnefndar alltof
óskýrar sem leiðir til þess að hæfnis-
matið er alltof huglægt. Þessu verður
að breyta. Kirkjustjórnin þarf að læra
af þessu máli og reyna að nýta þessa
reynslu til bættra vinnubragða. Mér
finnst einfaldlega að biskup hafi flýtt
sér allt of mikið að undirrita skipun-
arbréf nýs dómkirkjuprests á þeim
forsendum sem ég hef hér rakið,“
segir Elínborg og bætir við: „Ef bisk-
upi er ljóst að verulegir formgallar
hafi verið á málsmeðferð kjörnefnd-
ar getur biskup ákveðið að skipa ekki
í embættið og auglýsa það einfaldlega
að nýju. Það er ótækt fyrir presta-
stéttina að það sé ekki hafið yfir all-
an vafa að farið sé að lögum og eft-
ir settum reglum og öllum formsat-
riðum fylgt. Það er Dómkirkjunni í
Reykjavík ósamboðið að hrein tilvilj-
un ráði því hver hljóti embættið burt-
séð frá hæfi þeirra sem sækjast eftir
starfinu,“ segir Elínborg. mm
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 42. tbl. 20. árg. 18. október 2017 - kr. 750 í lausasölu
Loratadin
LYFIS
- fæst án lyfseðils
Besta bankaappið
á Íslandi
Samkvæmt könnun MMR
Til alþingismanna
Tökum upp
US Dollar
Pétur Geirsson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Vökudagar
á Akranesi
26. okt. – 5. nóv.
Nánari upplýsingar
um alla viðburði á
www.akranes.is
Séra Elínborg telur að ekki hafi verið
rétt staðið að kjöri dómkirkjuprests
Sr. Elínborg Sturludóttir.
„Það væri óskandi að nýjar áherslur yrðu ráðandi við gerð
næstu búvörusamninga. Að mínu viti þurfum við að líta
á bændur í auknum mæli sem vörslumenn landsins. Færa
kerfið meira í þá átt að styrkja þá til að hugsa enn betur
um landið og tryggja sjálfbæra nýtingu þess, frekar en að
greiða bændum fyrir hvert framleitt kíló af kjöti eða líter
af mjólk,“ segir Sæmundur Sveinsson settur rektor LbhÍ í
viðtali í Skessuhorni í dag.
Sjá bls. 20. Ljósm. kgk