Skessuhorn - 18.10.2017, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 20176
Hreinsa
göngin
HVALFJ.G: Vegagerðin vek-
ur athygli á því að Hvalfjarð-
argöng eru lokuð fyrir um-
ferð í þrjár nætur í þessari
viku vegna viðhalds og hrein-
gerningar. Lokað var aðfarar-
nótt þriðjudags og miðviku-
dags og sömuleiðis aðfarar-
nótt fimmtudagsins 19. októ-
ber. Lokað er fyrir umferð frá
miðnætti til kl. 6 að morgni.
„Það er árlegur viðburður í
rekstri ganganna að loka þeim
í nokkrar nætur að vori og
hausti af þessu tilefni. Lokun
nú er því hefðbundin ráðstöf-
un og beðist er velvirðingar á
óþægindum sem hún kann að
valda.“
-mm
Aðskota-
hlutur fannst í
Tuborg Classic
LANDIÐ: Matvælastofn-
un hefur í samráði við Heil-
brigðiseftirlit Reykjavíkur og
Ölgerðina byrjað innköllun á
einni lotu af hálfs líters bjór-
dósum vegna aðskotarhlut-
ar sem fannst í einni dós. Um
er að ræða glerbrot eða hart
plast. Í tilkynningu frá Mast
segir að eftirfarandi upplýs-
ingar auðkenni vöruna sem
innköllunin einskorðast við:
Tuborg Classic, lotunúmer:
02L17263 002359. Pökkunar-
dagur: 20.09.17 og merkt best
fyrir: 20.03.18. „Viðskiptavin-
um sem hafa keypt vöruna er
bent á að neyta hennar ekki
og farga eða skila henni til Öl-
gerðarinnar eða í næstu versl-
un ÁTVR og fá nýja vöru í
staðinn. Nánari upplýsingar
fást hjá Ölgerðinni.
-mm
Tíu ára
Ugluklettur
BORGARNES: Leikskólinn
Ugluklettur í Borgarnesi er tíu
ára um þessar mundir. Af því
tilefni bjóða börnin í skólanum
til afmælishátíðar næstkom-
andi föstudag frá klukkan 13
til 16. Í boðskorti frá þeim seg-
ir: „Velkomin í afmæli Leik-
skólans. Ugluklettur á afmæli.
Maður verður að vera kurteis,
það verða kökur. Við ætlum að
gefa ykkur flotta mynd og það
verður kaffi og allt. Þetta verð-
ur mjög skemmtilegt afmæli,
verið þið bara velkomin og
gangið inn. Þið verðið að vera
í fínum fötum.“ Meðfylgjandi
mynd var tekin á vígsludegi
Uglukletts 21. október 2007.
-mm
Haustfagnaður
um helgina
DALIR: Félag sauðfjár-
bænda í Dalasýslu stendur
fyrir sínum árlega Haust-
fagnaði dagana 20. og 21.
október næstkomandi.
Verður dagskráin með
nokkuð hefðbundnu sniði,
að sögn Eyjólfs Ingva
Bjarnasonar, formanns
FSD. Sviðaveislan árlega
verður á Laugum í Sæ-
lingsdal að kvöldi föstu-
dagsins, með hagyrðinga-
kvöldi og dansleik með
hljómsveitinni Bland á eft-
ir. Tíunda Íslandsmeist-
aramótið í rúningi verð-
ur aðalviðburður laugar-
dagsins, haldið í reiðhöll-
inni í Búðardal. Sirkus Ís-
lands skemmta gestum
og gangandi og ýmis fyr-
irtæki munu kynna sína
þjónustu. Dagskrá Haust-
fagnaðar lýkur síðan með
stórdansleik með hljóm-
sveitinni Sóldögg í Dala-
búð í Búðardal að kvöldi
laugardagsins. Haustfagn-
aður er orðinn stórvið-
uburður á svæðinu, þetta
er nokkurs konar árshátíð
og uppskeruhátíð sauð-
fjárbænda í Dölum og ná-
grenni. Menn láta ekki
deigan síga þó móti blási
á öðrum vettvangi og al-
veg ástæða til þess að lyfta
sér upp eina kvöldstund
eða tvær,“ segir Eyjólfur
Ingvi Bjarnason. Ítarlega
dagskrá er að finna á Fa-
cebook-síðu Félags sauð-
fjárbænda í Dalasýslu.
-kgk
Menningarhátíðin Vökudagar
hefst á Akranesi fimmtudaginn 26.
og standa til 5. nóvember. Um er
að ræða árlegan viðburð sem hefur
notið mikilla vinsælda meðal Skaga-
manna og annarra gesta sem sækja
bæinn heim. Að sögn Ellu Maríu
Gunnarsdóttur, forstöðumanns
menningar- og safnamála á Akra-
nesi, verður að þessu sinni lögð sér-
stök áhersla á barnamenningu.
„Þetta er hluti af áhersluverkefni
undir Sóknaráætlun Vesturlands á
vegum SSV, Samtaka sveitarfélaga
á Vesturlandi. SSV veitir árlega
ákveðnum sveitarfélögum á Vestur-
landi styrk til barnamenningarhá-
tíða ætluðum miðstigum grunn-
skólanna og í ár var Bókasafninu á
Akranesi veittur styrkurinn. Verk-
efnið er unnið með kennurum og
nemendum grunnskóla sveitar-
félaganna sunnan Skarðsheiðar;
Akranesi og Hvalfjarðarsveit. Við
ákváðum að flétta þessu verkefni
inn í Vökudaga með því að leggja
meiri áherslu á fjölskylduna í há-
tíðardagskránni,“ segir Ella María.
„Í skólunum hefur verið unnið með
þetta verkefni undanfarnar vikur
þar sem börn í 6. bekk hafa unn-
ið ýmis verkefni tengd bókmennt-
um og listum. Við munum setja
upp þrjár sýningar á Vökudögum
þar sem verk barnanna verða sett
fram,“ segir Ella María og bætir því
við að í ár, eins og í fyrra, sé ætl-
unin að þjófstarta hátíðinni með
svokölluðum upptakti fyrir Vöku-
daga í Akraneskirkju. „Þar munu
fjórir organistar, Þeir Jón Bjarna-
son, Arnór Vilbergsson, Sveinn
Arnar Sæmundsson og Viðar Guð-
mundsson, halda tónleika. Þeir
ætla að spila skemmtileg dægur-
lög og kvikmyndatónlist fyrir alla
fjölskylduna. Tónleikarnir hefjast
klukkan átta miðvikudaginn 25.
október og kostar ekkert inn,“ segir
Ella María.
Gamlar perlur í bland
við nýja viðburði
Dagskráin í ár verður með fjöl-
breyttu sniði þar sem nýjum við-
burðum verður blandað saman við
gamlar perlur. „Við verðum með
ýmsar skemmtilegar nýjungar í ár.
Má þar t.d. nefna hrekkjavöku-
dagskrá í Dularfullu búðinni og á
Byggðasafninu. Eins og fyrir ári
verður kosið til Alþingis á meðan
Vökudagar standa yfir, en við von-
um að það verði ekki árlegur við-
burður,“ segir Ella María og bætir
því við að rithöfundakvöld á bóka-
safninu verði á sínum stað en það
hefur alltaf verið mjög vel sótt. Þá
verða tónleikarnir Ungir gamlir
einnig á sínum stað en það er ár-
legt tónlistarverkefni þar sem ungu
tónlistarfólki á Akranesi gefst tæki-
færi á að vinna með reyndara fólki.
„Þessu verkefni lýkur með tvenn-
um tónleikum miðvikudaginn
1. nóvember þar sem Páll Óskar
Hjálmtýsson mun koma fram með
unga tónlistarfólkinu okkar í ár,“
segir Ella María. „Á dagskrá verða
margskonar listasýningar, opin hús
og tónleikar, allt frá einleik á píanó
upp í popptónleika og kóra.“ Það
er gaman að sjá hvað við eigum öfl-
ugt ungt listafólk í bænum, þar má
t.d. nefna Gróu Dagmar sem ætl-
ar að opna sína fyrstu myndlistar-
sýningu í Vitanum og Brynjar Mar
sem mun opna myndlistarsýningu í
Dularfullu búðinni.
„Við erum mjög ánægð með þátt-
töku bæjarbúa og annarra sem koma
að Vökudögum en Skagamenn hafa
verið duglegir að mæta á viðburði,
taka þátt og standa fyrir viðburð-
um. Ég vil bara benda fólki á að ef
það vill taka þátt á einhvern hátt er
enn hægt að skrá viðburð út þessa
viku. Þá er best að gera það annað
hvort inni á vef Akraneskaupstaðar
eða með því að hafa samband við
okkur á Facebook síðu Vökudaga,“
segir Ella María að endingu.
arg
Vökudagar hefjast á Akranesi í næstu viku
Fjórir organistar þjófstarta Vökudögum með upptakti í Akraneskirkju næst-
komandi miðvikudagskvöld. „Við ætlum að syngja, spila átthent og jafnvel fara í
kapphlaup,“ sögðu þeir í kynningu um væntanlega tónleika.
Að þessu sinni verður lögð sérstök áhersla á barnamenningu á Vökudögum.