Skessuhorn - 17.01.2018, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 17. jANúAR 2018 13
Einkunnarorð sveitarfélagsins eru jákvæðni, metnaður og víðsýni.
Akraneskaupstaður er ört vaxandi bæjarfélag með rúmlega sjö þúsund
íbúa. Mikil áhersla er lögð á góða þjónustu við bæjarbúa og fagleg
vinnubrögð í stjórnsýslunni.
Akraneskaupstaður auglýsir nýjar fjölbýlishúsalóðir í Skógar-
hver 1. áfanga og einnar hæðar par- eða raðhúsalóðir
Skógarhver 2. áfanga lausar til umsóknar.
Um að ræða 12 fjölbýlishúsalóðir við Asparskóga sem tilheyra
Skógahver 1. áfanga og 29 einnar hæðar par- eða
raðhúsalóðir við Álfalund og Akralund sem tilheyra
Skógarhver 2. áfanga. Lóðirnar eru þegar byggingarhæfar.
Um auglýsingu og úthlutun lóða gilda reglur Akraneskaup-
staðar frá árinu 2015 en auglýsa skal nýjar lóðir sérstaklega
með 2ja vikna umsóknarfresti að lágmarki og fer úthlutun fram
samkvæmt vinnureglum ef eiri en einn sækir um hverja lóð.
Umsóknareyðublöð, lóðarblöð, gjaldskrár, skipulags- og
byggingaskilmálar og aðrar upplýsingar er að nna á
vefsíðunni www.akranes.is/nyjarlodir
Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2018.
Akraneskaupstaður
auglýsir nýjar lóðir
til úthlutunar
Hljóðsokkar á stóla
Verð 862 kr. stykkið
(Þrír litir)
Leitið tilboða í stærri kaup
www.stalidjan.is
Stáliðjan ehf - Smiðjuvegi 5, 200 Kópavogi - Sími 564 5885 - www.stalidjan.is
Dempar hljóð um allt að 18dB.
Minnkar slit á gólfi .
Má þvo í þvottavél.
Mjög létt að setja á og taka af.
Bráðnauðsynlegt í skóla, mötuneyti
og allstaðar þar sem að fjölmenni
kemur saman.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Kvöldið fyrir gamlársdag stöðvaði
Lögreglan á Vesturlandi við reglu-
bundið eftirlit bifreið á leið norð-
ur Vesturlandsveg. Var ökumað-
ur bifreiðarinnar, að sögn lögreglu,
greinilega undir áhrifum fíkniefna
og var því handtekinn og færður á
lögreglustöð ásamt farþega. Við leit
í bifreiðinni, á ökumanni og farþega,
fannst mikið magn af fíkniefnum.
Alls fundust 98 e-töflur, ætlað am-
fetamín, nokkuð magna af kannabis-
efnum og eitthvað af öðrum efnum
sem eru til frekari rannsóknar. Einn-
ig fundust hnífar og exi í bifreiðinni.
Er málið til rannsóknar en grunur er
um að efnin hafi átt að selja á Norð-
urlandi. mm/ Ljósm. LVL.
Fundu mikið magn fíkni-
efna í bíl á norðurleið
Grunnskóli Snæfellsbæjar tekur
þátt í þróunarverkefninu Hreint haf
- ungt fólk gegn plastmengun í hafi
í samstarfi við Landvernd. Fulltrú-
ar frá Landvernd komu í heimsókn
í skólann í síðustu viku þar sem
verkefnið var kynnt á öllum starfs-
stöðvum skólans ásamt því að fram
fór fræðsla og verkefnavinna. Efnið
mun svo verða öllum aðgengilegt á
heimasíðu Landverndar.
þa
Taka þátt í
þróunarverkefninu
Hreint haf
Akurnesingar þurftu að játa sig sigr-
aða fyrir Dalvíkurbyggð þegar lið
sveitarfélaganna mættust í útsvari,
spurningakeppni sveitarfélaganna
á RúV, síðastliðið föstudagskvöld.
Lið Akraness hefur því lokið þátt-
töku í keppninni að þessu sinni.
Eftir jafna viðureign framan af
tók lið Dalvíkurbyggðar að síga
fram úr í valflokkaspurningun-
um um miðjan þátt. Í stóru spurn-
ingunum í lok þáttar var lukk-
an ekki með Akurnesingum í liði
en mótherjarnir fóru á kostum og
gerðu út um viðureignina. Fór svo
að lokum að Dalvíkurbyggð sigraði
með 84 stigum gegn 46 stigum Ak-
urnesinga.
Lið Akurnesinga var sem fyrr
Akranes tapaði í Útsvari
skipað Gerði jóhönnu jóhanns-
dóttur, Vilborgu Þórunni Guð-
bjartsdóttur og Erni Arnarsyni.
kgk