Skessuhorn - 17.01.2018, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 17. jANúAR 2018 19
ardeild HVE í Stykkishólmi. Sam-
kvæmt áætlun munu breytingar á
sjúkrahúsinu kosta um 650.000.000
krónur sem er umtalsvert lægri upp-
hæð en áætlun frá 2011 gerði ráð
fyrir. Sú áætlun náði ekki fram að
ganga. Samkvæmt fjárhagsáætlun
Stykkishólmsbæjar er gert ráð fyrir
því að þegar hjúkrunardeildin hefur
verið færð í sjúkrahúsið verði gömlu
heimavistinni sem þjónar í dag sem
Dvalarheimili aldraðra breytt í íbúð-
ir. Þær íbúðir verði leigðar út með
svipuðum hætti og þjónustuíbúðirn-
ar sem eru fyrir. Matsalurinn verði
þá nýttur fyrir félagsstarf aldraðra og
einnig til þess að þjóna sem matsal-
ur fyrir þá sem búa í þjónustu íbúð-
unum og vilja kaupa mat frá eldhúsi
sjúkrahússins. Vonandi ganga þessi
áform eftir en öllum má ljóst vera að
það þolir ekki lengri bið að gera úr-
bætur á húsnæði hjúkrunarheimilis-
ins fyrir aldraða þrátt fyrir heimilis-
legar aðstæður og einstaklega hæft
fólk sem sinnir öldruðu heimilisfólki
við erfiðar aðstæður. Þá er vert að
geta þess að á síðasta ári hefur verið
unnið að því að breyta herbergjum
dvalarheimilisins, stækka og bæta
þar aðstöðuna. Í áætlun þessa árs er
gert ráð fyrir því að halda þeim end-
urbótum áfram.
Vinna við fjölmörg
skipulagsverkefni
Á síðasta ári var lokið við vinnu
við deiliskipulag íbúðabyggðar á
Vatnsási vestan tjaldsvæðis og upp
með þjóðveginum, en það svæði
gæti komið til úthlutunar innan
tíðar. Það skipulag var unnið vegna
úthlutunar lóða fyrir smáhýsi nærri
tjaldstæðinu. Deiliskipulagi bland-
aðrar byggðar við Reitaveg er lokið
og því hægt að úthluta lóðum fyrir
atvinnuhúsnæði. Unnið hefur verið
að deiliskipulagi miðbæjar og hafn-
arsvæða sem og athafnasvæðis þar
sem hótel á að rísa við Móvík innan
við Víkursvæðið. Þá er gert ráð fyr-
ir því að vinna að ýmsum skipulags-
breytingum vegna breyttrar nýting-
ar íbúðarhúsa í þágu ferðaþjónustu,
svo sem gamla sýslumannsbústaðn-
um við Aðalgötu. Það er vissulega
mikil gróska í bænum og því mik-
ilvægt að sinna vel skipulagi þeirra
bæjarhluta sem hafa verið valdir
sem uppbyggingarsvæði. Á síðasta
ári var úthlutað byggingarlóðum í
Víkurhverfi og í tengslum við það
unnar nokkrar breytingar á skipu-
lagi svæðisins til þess að fjölga rað-
húsa- og parhúsalóðum sem eftir-
spurn er eftir. Er þess að vænta að
það svæði verði gert byggingarhæft
svo fljótt sem kostur er til þess að
þar geti hafist íbúðarhúsabygging-
ar.
Atvinnumál
Bæjarstjórn hefur efnt til íbúafund-
ar um atvinnu- og skipulagsmál sem
vissulega eru nátengd. Þar töluðu
sérfræðingar Hafró um rannsóknir
á hörpudiski og þörungum. Fulltrúi
sjávarútvegsráðuneytis kynnti nýja
löggjöf um öflum sjávargróðurs í at-
vinnuskyni og forstöðumaður Nátt-
úrustofu Vesturlands fjallaði um
auðlindanýtingu í Breiðafirði. Arki-
tektar stofunnar GlámaKím kynntu
skipulagstillögur af miðbæjarsvæði
og hafnarsvæði Skipavíkurhafn-
ar sem og Stykkishafnarsvæðinu.
Einnig kynntu arkitektarnir þörfina
fyrir endurskoðun aðalskipulags. Sá
fundur heppnaðist vel og er stefnt
að því að efna til annars fundar fljót-
lega á þessu ári. Þar verði einnig
fjallað um atvinnumál og uppbygg-
ingu í tengslum við ný atvinnutæki-
færi sem stefnt er að með enn frek-
ari nýtingu náttúruauðlinda sem má
nýta í Breiðafirði sem og uppbygg-
ingu í sjávarútvegi sem gæti orð-
ið veruleg þegar skelveiðar hefjast
að nýju í meira mæli en sem nem-
ur tilraunaveiðunum sem hafa ver-
ið stundaðar og lofa góðu. Síðast
en ekki síst er þörf fyrir að fjalla um
mikla uppbyggingu í ferðaþjónustu
sem er fyrirhuguð og þá þróun að
veita heimild til rekstrarleyfa vegna
gistiaðstöðu í íbúðarhúsahverfum.
Þá er gert ráð fyrir því að fjalla um
nauðsyn nýsköpunar í samstarfi við
atvinnulífið. Í fjárhagsáætlun er gert
ráð fyrir fjárframlagi til stuðnings
við nýsköpunarverkefni sem unn-
in verði í samstarfi við atvinnulífið í
bænum. Það gæti verið nefnt „Star-
tup Stykkishólmur“ til samræmis við
önnur svipuð verkefni sem hafa verð
sett af stað í öðrum sveitarfélögum.
Íbúafundurinn verður kynntur fljót-
lega.
Samstarf á vettvangi
Sjávarorku ehf.
Stykkishólmsbær er hluthafi í fé-
laginu Sjávarorku ehf. sem hefur
stundað rannsóknir á sjávarföllum
og aðstæðum í Breiðafirði með það
að markmiði að kanna hvort sjávar-
föllin geti verið virkjanleg. Leiðandi
í þessu starfi eru Rarik og Lands-
virkjun.
Fyrir skömmu birtist grein um
virkjun sjávarfalla í Morgunblaðinu.
Þar er vakin athygli á því að tækni
hefur fleygt fram við sjávarfallavirkj-
anir. Bæjaryfirvöld hafa hvatt til þess
að áfram verði unnið að rannsókn-
um á virkjun sjávarfalla í Breiðafirði
á vegum Sjávarorku og allra leiða
leitað til þess að koma upp RANN-
SÓKNASETRI Á SVIÐI SjÁVAR-
ORKU hér í Stykkishólmi og herða
róðurinn að því marki að virkja sjáv-
arföllin í Breiðafirði. Um er að ræða
stórt verkefni sem gæti skapað mikla
möguleika við raforkuframleiðslu
og um leið atvinnuuppbyggingu í
bænum sem tengist orkunýtingu.
Úthlutun lóða
Auglýstar hafa verið lóðir fyrir íbúð-
arhús á Víkursvæði austan við golf-
völlinn. Á heimasíðu bæjarins er
einnig vakin athygli á lausum lóð-
um hér og þar í bænum bæði fyrir
íbúðarhús og atvinnuhúsnæði. Er
ástæða til þess að vekja athygli á því
að á þessum svæðum eru mjög álit-
legar byggingarlóðir og því má ætla
að framkvæmdir við húsbyggingar
muni aukast enda þörf fyrir fjölgun
íbúðarhúsa..
Framkvæmdir við
gatnagerð og endur-
bygging gangstíga
Viðhald og endurnýjun gatna og
gangstétta er viðvarandi verkefni sem
mikilvægt er að sinna vel svo ásýnd
bæjarins skaðist ekki vegna slitinna
og holóttra akbrauta og sundur-
sprunginna gangstétta sem var áber-
andi. Á síðustu þremur árum náðist
nokkur áfangi í þessu viðhaldi sem
var vel metið af bæjarbúum mið-
að við þau viðbrögð sem urðu þeg-
ar framkvæmdum lauk við breyt-
ingar á Víkurgötu og endurbæt-
ur á Aðalgötu við gatnamót Borg-
arbrautar. Þá var lokið við malbik-
un á Hamraenda, Silfurgötu, Reita-
vegi, Hafnargötu, plani við Hafnar-
húsið og Áhaldshús, Smiðjustíg og
klæðningu gatnanna Hjallatanga,
Ásklif, Ásbrú, Lágholt, Skúlagötu,
Austurgötu og hluta Borgarbrautar.
Þá hefur verið unnið við endurgerð
gangstétta víða í bænum. Hluti þess
að byggja upp gatnakerfið eru ný-
bygging gatna sem þarf að undirbúa
og er hluti af þeim framkvæmdum
sem er gert ráð fyrir að hefja vegna
nýrra gatna í Víkurhverfi og tengi-
braut inn að hótellóðinni sem var
búið að úthluta í Skothúsmýri milli
Móvíkur og Sundvíkur.
Rekstur og eignarhald
lagnakerfis
Á sínum tíma var talið hagkvæmt
fyrir bæinn að selja Orkuveitu
Reykjavíkur bæði hitaveitu og vatns-
veitu. Ekki er að efa að það var rétt
ákvörðun og hagfelld fyrir íbúa bæj-
arins. Gjaldskrá hitaveitu er hagstæð
en verðlagning á kalda vatninu hef-
ur verið hærri en góðu hófi gegn-
ir. Eftir árangursríkar viðræður og
samskipti við stjórnendur Veitna
ehf., sem er dótturfyrirtæki OR, var
verðið á kalda vatninu lækkað um
8,8% frá 1.1.2017. Eftir ákvörðun
bæjarstjórnar hafa verið í gangi við-
ræður um þann möguleika að Veit-
ur ohf. taki við rekstri fráveitunnar.
Það blasir við að ekki er hagkvæmt
að tveir aðilar sinni rekstri og upp-
byggingu lagnakerfanna í götunum
til viðbótar við þá sem sjá um raf-
lagnir, ljósleiðara og koparlagn-
ir . Þess er vænst að samningar tak-
ist við Veitur ohf . um að fyrirtæk-
ið taki yfir og kaupi allt holræsakerf-
ið og skapi þannig enn aukna hag-
kvæmni við rekstur veitukerfanna í
bænum. Það ætti að geta verið öll-
um til hagsbóta, bæði Veitum ohf.
og bæjarbúum. Inn í þær viðræður
mun þurfa að taka afstöðu til þess að
umfangsmiklar framkvæmdir standa
fyrir dyrum við að sameina útrásir
fráveitunnar og endurbyggja hluta
veitukerfisins svo ákvæði reglugerð-
ar um fráveitur verði uppfyllt. Þar er
um mjög umfangsmikið verkefni að
ræða miðað við þá áætlun sem verk-
fræðistofan Verkís hefur unnið fyr-
ir bæinn og kallar á miklar fram-
kvæmdir og rekstur dælustöðva
og endurnýjun útrásanna fram í
strauma Breiðafjarðar.
Viðhald húseigna
Fasteignir í eigu bæjarins þarfnast
stöðugs viðhalds. Nokkur stór verk-
efni bíða og hafa beðið lengi svo
sem viðgerðir Eldfjallasafnsins sem
er mjög aðkallandi. Þá er komið að
viðgerðum og viðhaldi útisundlaug-
ar í íþróttamiðstöðinni. Í fjárhags-
áætlun 2018 eru settir nokkrir fjár-
munir til viðhaldsverkefna og verð-
ur að gera ráð fyrir enn frekari fjár-
útlátum næstu árin. Í íþróttamið-
stöðinni var unnið af kappi við við-
hald og endurbætur lagna og hús-
næðis og er gert ráð fyrir því að
halda þeirri vinnu áfram í ár. Unnið
var að því að bæta aðgengi fatlaðra
að byggingum bæjarins svo sem
íþróttamiðstöð, grunnskóla og dval-
arheimilis. Það má enn gera betur
og er verið að setja upp áætlun um
þær framkvæmdir sem tryggja fötl-
uðu fólki greiðan aðgang að stofn-
unum bæjarins svo sem með lyftu í
skólanum.
Nýr samningur við
Íslenska Gámafélagið
Vönduð og umfangsmikil flokkun
sorps í Stykkishólmi hefur vakið at-
hygli víða og í raun aðdáun þeirra
sem leggja áherslu á umhverfismál
í víðasta skilningi þess málaflokks.
Frumkvöðlar þess verkefnis eiga
heiður skilið fyrir framsýni og fram-
kvæmd alla. Árið 2016 var gerður
nýr samningur við Íslenska Gáma-
félagið sem sér um sorphirðu í
bænum. Sá samningur felur í sér
nokkra lækkun á einingaverðum og
því sparnað gagnvart bænum, sem
veitir ekki af því kostnaður er all-
nokkur miðað við það, sem gerist
hjá þeim sveitarfélögum sem leggja
minni áherslu á flokkun, moltugerð
og vandaða urðun. jafnframt var
samið um að Íslenska Gámafélagið
reisi flokkunarskemmu á athafna-
svæði sorphirðunnar við Snoppu
sem fyrirtækið byggir og rekur. Það
verkefni er komið af stað er þess
að vænta að skemman verði tekin í
notkun snemma á þessu ár. Það er
því að vænta enn vandaðri vinnu við
flokkun og meðferð sorpsins sem
fellur til og koma fyrir í samræmi
við vandaðar verklagsreglur.
Stykkishólmshöfn
Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins
2018 og 2019 eru áætlaðar nokkrar
framkvæmdir í höfninni. Þar er um
að ræða dýpkun, gerð göngubrúar
að ferjulæginu meðfram smábáta-
bryggjunum í austurhöfninni, koma
upp búnaði vegna gjaldskyldra bíla-
stæða svo það helsta sé nefnt. Í
gildandi Samgönguáætlun er gert
ráð fyrir því að dýpka Stykkishöfn-
Fjölgun barna á leikskólaaldri fylgir íbúafjölguninni og kallaði á stækkun leikskólans á liðnu ári. Því verkefni er lokið og
rekstur hafinn í nýrri deild sem hefur fengið nafnið Bakki þar sem er deild yngstu barnanna. Hér er verið að setja á grunn hús
sem keypt var til að hýsa deildina.
Valentínus Guðnason að handfjatla fisk við höfnina. Framhald á næstu síðu